Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 10
10 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR Það er 800 4000 • siminn.is VIST Öryggi og hagræðing í rekstri Með fyrirtækið í VIST getur þú dregið úr kostnaði um leið og þú færð trausta þjónustu sem tryggir öryggi gagna og aðgengi að nauðsynlegum upplýsingum. Í VIST er heimasvæði fyrirtækisins hýst á netþjónum Símans sem eykur samnýtingu skjala og öryggi gagna. Með reglulegri afritun og vírusvörnum er öryggi tryggt enn frekar. Fyrirtækjapósturinn í VIST veitir starfsmönnum aðgang að póstinum hvar sem er, auk þess sem hægt er að deila dagbókum, tengiliðum og verkefnum. Veldu hagkvæma og örugga VIST fyrir fyrirtækið þitt. Villuboðin heyra sögunni til – þú heldur bara áfram að vinna VIST fyrir fyrirtækið þitt E N N E M M / S ÍA / N M 3 9 7 13 EFNAHAGSMÁL „Þessi matsfyrirtæki hafa lengi legið undir ámæli fyrir að hafa verið of jákvæð gagnvart bönkunum í mestu upp- sveiflunni. Því er skiljanlegt að þau vilji fara í hina áttina nú. Matið má því skoða að hluta sem tilraun Fitch til að verða sér úti um trúverðugleika á kostnað íslenskra banka. Þeir liggja vel við höggi,“ segir Þórólfur Matthíasson, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, um falleinkunn íslenska bankakerfisins. Það er alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch sem gefur bankakerfinu þessa afleitu einkunn, eða BSI E. Á botninum eru tólf lönd, þar á meðal Víetnam. Ekki er útilokað að fleiri lönd bætist á hann á næstu skýrslu, að mati Fitch. Þar koma helst til greina Aserbaídsjan, Hvíta-Rússland, Eistland og Litháen. Í næsta flokki fyrir ofan Ísland eru Írland og Belgía með einkunnina BSI D. Meirihluti landa með þróað hagkerfi lenda ýmist í flokki B eða C. Enginn vermir efsta flokk. Ástralía, Hong Kong og Kanada komast þó næst því. Matsfyrirtækið segir í skýrslu sinni að þótt engin breyting hafi orðið frá fyrra mati sé of snemmt að segja til um hvort nú dragi úr kerfisáhættu fjármálakerfisins. Sérstaklega er bent á hægan útlánavöxt bankageirans. Hann hefur að meðaltali dregist saman um 2,5 prósent á árinu frá í fyrra. Þetta er engu að síður jákvætt frá í fyrra en þá drógust útlán saman um fimmtán prósent milli ára. Þetta segir Fitch vísbendingar um að stöðug- leiki sé að færast yfir fjármálaheiminn og séu fá alvarleg hættumerki í loftinu. Þórólfur segir margt ógert í bankakerfinu. „Það er ekki enn búið að hreinsa upp úr bankakerfunum. Í sumum tilvikum er ekki vitað hvað leynist í þeim. Enn kunna því erfið mál að vera eftir,“ segir hann. - jab Íslenska bankakerfið fær falleinkunn hjá Fitch Ekkert land fær hæstu einkunn í hálfsársmati Fitch á styrk fjármálageirans. Íslands skrapar botninn í mat- inu. Fitch leitar að trúverðugleika eftir of góðar einkunnir í uppsveiflunni, segir háskólaprófessor. Matsfyrirtækið Fitch gaf gömlu íslensku bönk- unum þremur toppeinkunn í tvígang árið 2007. Fyrsta einkunn skilaði sér í hús í febrúar en hin í október. Í seinni skýrslu matsfyrirtækisins um bankana sagði meðal annars að þeir hefðu minnkað þörf sína fyrir skuldabréfafjármögnun og náð tökum á lausafjárstöðu sinni, svo sem með aukinni inn- lánastarfsemi frá einstaklingum og fyrirtækjum. Greint er frá nokkrum mun á innlánastarfsemi bankanna en sérstaklega tekið fram að Lands- bankinn hafi náð góðum árangri með Icesave- innlánsreikningum sínum í Bretlandi. Á sama tíma hafði undirmálslánakreppan látið á sér kræla í Bandaríkjunum. Fitch taldi bankana hafa nægt lausafé til að standa af sér tólf mánaða tímabil án aðgangs að fjármagnsmörkuðum. Í byrjun október, tæpu ári eftir útgáfu matsins, hafði ríkið tekið bankana yfir. FENGU TOPPEINKUNN 2007 LÍTIÐ AÐ GERA Í BANKANUM Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch segir of snemmt að segja til um hvort farið sé að draga úr kerfisáhættu fjármálakerfisins. Áhersla er lögð á hægan útlánavöxt bankanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ALÞINGI Bergur Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs. Hann hóf störf um mánaða- mótin. Bergur er umhverfisefna- fræðingur frá Háskólanum í Osló og hefur síðastliðin þrjú ár starfað sem framkvæmdastjóri Landverndar. Þar áður starfaði hann við heil- brigðiseftirlit á Suðurnesjum. Bergur tekur við starfinu af Drífu Snædal, framkvæmda- stjóra flokksins, sem jafnframt hefur haft umsjón með málefnum þingflokksins. - sh Bergur Sigurðsson: Ráðinn til þingflokks VG BERGUR SIGURÐSSON KVEIKT Á KERTUM Síkhar á Indlandi kveikja á kertum í gullna hofinu í Amritsar þegar 540 ár voru liðin frá fæðingu hins helga manns Sri Guru Nanak Dev. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.