Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 62
42 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR bio@frettabladid.is Spennumyndin Law Abiding Cit- izen og körfuboltamyndin More Than a Game verða frumsýndar á morgun. Töffararnir Gerard Butler og Jamie Foxx fara með aðalhlutverk- in í Law Abiding Citizen. Myndin fjallar um Clyde Shelton (Butler) sem verður fyrir hræðilegu áfalli þegar kona hans og dóttir eru myrtar á hrottafenginn hátt. Morð- ingjarnir eru ákærðir fyrir verkn- aðinn en sleppa við refsingu eftir að saksóknarinn Nick Rice (Foxx) semur við þá um lausn allra mála gegn því að veita honum upplýs- ingar um aðra glæpamenn. Clyde leggst í mikið þung- lyndi og í framhaldinu tekur við óslökkvandi hefndar- þorsti. Ákveður hann að gera allt sem hann getur til að hefna fyrir bæði morðin og svik saksóknarans í sinn garð. More Than a Game er heim- ildarmynd um upphafsár eins ástsælasta körfu- boltamanns samtímans, LeBron James. Hann er yngsti einstaklingurinn til að prýða for- síðu Sports Illustrated og er af mörgum talinn arftaki sjálfs Michaels Jordan. Myndin segir frá uppvexti James í borginni Akron í Ohio og fjögurra félaga hans úr körfuboltaliði menntaskól- ans. Kvikmyndin Desember eftir Hilmar Oddsson verður frumsýnd á morgun. Hún fjallar á ljúfsáran hátt um alvarlega hluti í íslensku samfélagi. Desember er ljúfsár gamanmynd sem gerist í Reykjavík á jólun- um. Hún fjallar um popparann Jonna (Tómas Lemarquis) sem snýr heim til Íslands eftir að hafa flutt óvænt til Argentínu nokkr- um árum áður. Hann dreymir um að ná gömlu hljómsveitinni sinni saman á ný, endurnýja kynnin við kærustuna sína (Lay Low) og hlakk- ar til að halda jól í faðmi fjölskyld- unnar. Fljótlega uppgötvar hann að allt hefur breyst og heimurinn sem hann þekkti áður stendur á haus. „Einhver sagði að þetta væri „feelgood-mynd“ og kannski er hún það. Það eru fáránlegar, broslegar uppákomur í henni og þú ferð von- andi út af henni með bros á vör,“ segir leikstjórinn Hilmar Odds- son. „Þetta er jólamynd, örugglega fyrsta íslenska jólamyndin og þótt hún sé ekki Love Actually þá fer hún í þann flokk. Hún var tekin um síðustu jól og þau voru sérstök fyrir margra hluta sakir. Það var enginn snjór og engar skreytingar en samt voru þetta jól.“ Hugmyndin að Desember kom í miðju góðærinu og voru það Hilmar og handritshöfundurinn Páll Krist- inn Pálsson sem veltu henni á milli sín. „Þetta var þegar allir voru í brjálaðri útrás og einhverjum flott- ræfilshætti. Á sama tíma var venju- legt fólk í Reykjavík sem gat ekki haldið jól vegna þess að fjárhagur- inn var svo bágur. Hlutunum var svo misskipt,“ segir Hilmar. „Við ætluðum að gera mynd um alvar- lega hluti á eins léttan hátt og hægt væri. Þannig byrjaði þetta en svo gerist það að það sem við vorum að fjalla um og átti að vera ábending með smá ádeilu var orðið að hlut- skipti þorra almennings eftir að allt hrundi.“ Hilmar og samstarfsfólk hans var í fjögur ár að ljúka við myndina og lítur hann á það sem kraftaverk að hún hafi náð að klárast þrátt fyrir erfiðar aðstæður. „Við erum að gera mynd í fullri stærð án þess að slaka á gæðakröfum. Þetta er töff og það hlýtur að segja eitthvað um ástand samfélagsins og kvikmyndagerðar- manna að það hafa aldrei fleiri myndir verið á leiðinni og meira en helmingur þeirra fær ekki krónu úr kvikmyndasjóði.“ Einnig er vert að minnast þess að myndin er sú fyrsta sem er alfarið unnin hér á landi þegar öll hljóð- og myndvinnsla er tekin með í reikninginn. Hilmar segist hafa tekið mikla áhættu með því að ráða Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur, Lay Low, í annað aðalhlutverkanna og sér ekki eftir því. „Hún skilar þessu eins og engill. Hún er með mjög mikinn myndþokka og geislar af hlýju og fegurð. Þegar hún skilar þessu eins fallega og hún gerir er maður bara stoltur og ánægður,“ segir hann og ber öðrum leikurum einnig vel söguna: „Tommi er ynd- islegur og ég er rosalega ánægður með alla leikarana og eiginlega allt. Þetta eru allt frábærar manneskjur og miklir fagmenn.“ freyr@frettabladid.is > MIRREN Í NJÓSNATRYLLI Breska leikkonan Helen Mirren mun leika í njósnatryll- inum Red sem er byggður á sam- nefndum teiknimynda- sögum. Áður höfðu Morgan Freeman og Bruce Willis samþykkt að leika í myndinni, sem fer í tökur í janúar. Hryllingsmyndin Paranormal Acti- vity, sem verður frumsýnd hérlendis á morgun, hefur slegið rækilega í gegn í Bandaríkjunum og Kanada síðan hún var frumsýnd fyrir nokkrum vikum. Hún hefur þénað rúmlega 85 milljónir dala, eða um 10,6 milljarða króna, sem er ótrúlegur árangur miðað við að hún kostaði innan við tvær milljónir króna í framleiðslu og var aðeins tekin upp á einni viku. Engin sjálfstætt framleidd mynd í sögunni hefur þénað jafnmikið miðað við framleiðslukostnað. Hefur hún þar með slegið út The Blair Witch Project sem rakaði inn tæpum 250 milljón- um dala í miðasölunni víðs vegar um heiminn, eða rúmum þrjátíu milljörð- um króna. Hún kostaði aftur á móti 7,5 milljónir króna í framleiðslu. Paranormal Activity var tekin upp á gömlu heimili leikstjórans og hand- ritshöfundarins Oren Peli í San Diego í Kaliforníu. Peli, sem er fyrrverandi tölvuleikjahönnuður, eyddi heilu ári í að innrétta húsið sérstaklega fyrir tökurn- ar. Til að auka hræðsluáhrifin var not- ast við handhelda upptökuvél, rétt eins og gert var í The Blair Witch Project með góðum árangri. Myndin er tekin upp í heimildar- myndastíl og fjallar um ungt par, Katie og Micah. Katie heldur því fram að yfir- náttúruleg vera hafi ásótt sig alla sína ævi, þar á meðal á heimili þeirra. Micah kaupir sér þá upptökuvél í von um að festa óskapnaðinn á filmu. Viðtökurnar við myndinni hafa eins og áður sagði verið rosalegar og hafa margir gengið út af henni af hræðslu. Eins og gefur að skilja er framhalds- mynd nú þegar í undirbúningi. Óhemjuvinsæll hryllingur PARANORMAL ACTIVITY Hryllingsmyndin Paranormal Activity verður frumsýnd hérlendis á morgun. HILMAR ODDSSON Nýjasta mynd Hilmars nefnist Desember og fjallar á ljúfsáran hátt um alvarlega hluti í íslensku samfélagi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LEIKSTJÓRINN HILMAR: Kallakaffi (Sjónvarp-2005) Kaldaljós (2004) Sporlaust (1998) Tár úr steini (1995) Eins og skepnan deyr (1986) LJÚFSÁR, ALÍSLENSK JÓLAMYND Steve Martin og Alec Baldwin verða kynnar á næstu Óskars- verðlaunahátíð. Síðast þegar kynnar voru fleiri en einn var árið 1987 en þá fóru Chevy Chase, Goldie Hawn og Paul Hogan með gamanmál. Vanga- veltur eru uppi um að Tina Fey, sem leikur á móti Baldwin í sjónvarpsþáttunum 30 Rock, muni taka þátt í að semja grín- efni fyrir hátíðina. Steve Martin hefur áður verið kynnir við afhendingu Óskarsverðlauna, árin 2001 og 2003. Hann og Baldwin leika einmitt saman í gamanmynd- inni It´s Complicated sem verður frumsýnd vestanhafs á jóladag. Myndin fær vænt- anlega álíka mikið umtal og Australia fékk í kringum síð- ustu Óskarshátíð þegar aðal- leikari hennar, Hugh Jackman, var kynnir. Hann þótti standa sig vel og átti þátt í því að auka áhorfið á hátíðina. Tveir kynnar á Óskarnum KYNNARNIR Steve Martin verður kynnir á Óskarshátíðinni í þriðja sinn á næsta ári og Alec Baldwin í fyrsta sinn. Hefndarþorsti og körfuboltahetja LAW ABIDING CITIZEN Clyde Shelton gerir allt sem hann getur til að hefna fyrir morðin á dóttur sinni og eiginkonu. LEBRON JAMES Heimildar- mynd um körfubolta- snillinginn verður frumsýnd á morgun. Ást vid fyrstu syn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.