Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 78
58 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT 2. lampi, 6. óreiða, 8.
meiðsli, 9. ránfugl, 11. núna, 12.
nær öll, 14. spergill, 16. tvíhljóði,
17. stefna, 18. suss, 20. rykkorn, 21.
faðmlag. LÓÐRÉTT 1. gryfja, 3. kring-
um, 4. tónverki, 5. hyggja, 7. ráðning,
10. tangi, 13. fyrirboði, 15. flóki, 16. í
viðbót, 19. gyltu.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lukt, 6. rú, 8. mar, 9. örn,
11. nú, 12. flest, 14. aspas, 16. au, 17.
átt, 18. uss, 20. ar, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. gröf, 3. um, 4. kantata,
5. trú, 7. úrlausn, 10. nes, 13. spá, 15.
strý, 16. auk, 19. sú.
„Tilraunin gerði stórt kraftaverk
– ég mæli eindregið með þessu,“
segir Kristín Gígja Sigurðar-
dóttir.
Kristín Gígja og Eiríkur Birkir
Ragnarsson, kærasti hennar, tóku
þátt í kynlífstilraun útvarpsstöðv-
arinnar Kanans sem hófst fyrir
tæpum mánuði. Tilraunin gekk
út á að tvö pör stunduðu kynlíf
einu sinni á dag í heilan mánuð og
deildu svo reynslunni á nafnlausu
bloggi á vefsíðu Kanans.
„Fyrst var þetta algjör kvöð.
Þetta var eiginlega partur af pró-
gramminu hjá mér þó að hann
hafi verið spenntur allan tímann,“
segir Kristín. „Eftir fyrstu vikuna
fórum við að sjá breytingu á því
hvernig við tölum saman og hvern-
ig líf okkar í kringum heimilið og
krakkana breyttist til batnaðar.
Ég fór að vera ánægð með þetta og
byrjaði að sýna frumkvæði, sem
gerðist mjög sjaldan áður.“
Kristín og Eiríkur lýstu til-
rauninni oft á afar berorðan hátt
á blogginu. Eiríkur var til dæmis
mjög ánægður með baðferð þegar
farið var að síga á seinni hluta til-
raunarinnar: „Ég ætla að tala um
miðnæturstundina okkar Krist-
ínar, sem var í baðkarinu hérna
heima. Gott spjall á undan, sem er
einstakur forleikur, og svo var látið
allt vaða. Þetta var nýtt, spennandi
og framandi,“ sagði hann.
Tilrauninni lýkur á morgun, en
Kristín býst þó ekki við að hún
og Eiríkur hætti að stunda kyn-
líf daglega − enda misstu þau ekki
úr dag meðan á tilrauninni stóð,
þrátt fyrir að vera bæði mjög upp-
tekin. „Ég var einu sinni sofandi
þegar hann kom seint heim og
hann vakti mig bara,“ segir hún og
hlær. „Þetta er ekki kvöð, okkur
finnst þetta skemmtilegt og það
er alltaf eitthvað nýtt hjá okkur.
Á tímapunkti hættum við að spá í
að stunda kynlíf vegna þess að við
vorum í tilraun. Núna er það orðið
spennandi. Við erum farin að tala
meira saman á kvöldin áður en til-
raunin er framkvæmd og forleik-
urinn okkar er djúpt og skemmti-
legt spjall. Það er svo margt sem
spilar inn í. Tilraunin er búin að
bjarga miklu í okkar sambandi.“
atlifannar@frettabladid.is
KRISTÍN GÍGJA SIGURÐARDÓTTIR: KYNLÍFSTILRAUN KANANS VIRKAÐI
Kynlífið gerði kraftaverk
VEL HEPPNUÐ TILRAUN Kristín Gígja og Eiríkur Birkir stunduðu kynlíf á hverjum degi í
mánuð og sambandið batnaði til muna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir, hárgreiðslu- og
förðunarfræðingur, sá um förðun á helstu
stórstjörnum sakamálaþáttarins Forbrydel-
sen II (Glæpnum) sem nú slær öll áhorfsmet
í dönsku sjónvarpi. Þetta er önnur þáttaröð-
in um lögreglukonuna Söruh Lund en fyrri
þáttaröðin naut mikilla vinsælda hér á landi
á sínum tíma. „Þetta vildi þannig til að mað-
urinn minn, Steffen Wiederman Larsen, er
að vinna við þættina. Og þegar ein af þremur
förðunarstelpunum forfallaðist vegna veik-
inda mundi einhver eftir því að Steffen væri
giftur förðunarfræðingi,“ segir Áslaug, sem
fékk því heldur óvænt atvinnutilboð á föstu-
degi í sumar þegar tökurnar fóru fram. „Mér
var bara sagt að koma út á mánudegi og ekki
getur maður sagt nei við svona tilboði.“
Meðal þeirra sem settust í stólinn hjá
Áslaugu voru aðalleikarnir tveir, þau Sofie
Gråbøl og Mikael Birkkjær. Auk þeirra voru
þeir Nicolas Bro og Søren Pilmark meðal
gesta hennar. Báðir tveir léku stór hlutverk
í kvikmynd Dags Kára, Voksne mennesker.
Áslaug var í förðunarteyminu í þremur þátt-
um og segir þetta hafa verið alveg ótrúlega
skemmtilegt. „Ég var reyndar ekki orðin
nógu sleip í dönskunni og ruglaði einu sinni
saman orðunum terrorister og túristi með
nokkuð skondnum afleiðingum.“
En ákveðin togstreita er nú kominn upp á
heimili þeirra hjóna því eiginmaðurinn veit
hver morðinginn er. „Ég hef reynt að pína það
upp úr honum en hann brosir bara og segir
mér að fylgjast með. Ég hef samt mínar kenn-
ingar og þótt ég hóti honum öllu illu er hann
þögull sem gröfin.“ - fgg
Farðaði stórstjörnurnar í Forbrydelsen
Á MÁLA HJÁ FORBRYDELSEN Hjónin Áslaug Dröfn og
Steffen Wiederman komu bæði að gerð annarrar serí-
unnar um Söruh Lund í Forbrydelsen. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Greint var frá því á þessum
stað að Baltasar Kormá-
kur hygðist frumsýna
kvikmynd sína
Inhale á American
Film Market sem
hófst í gærkvöldi.
Þetta ku ekki vera
rétt. Baltasar fer nú reglulega frá
Skagafirðinum og til Hollywood til
að fínpússa myndina aðeins. Inhale
verður því að öllum líkindum ekki
sýnd fyrr en eftir áramót.
Meira af kvikmyndum. Nú er
kominn frumsýning-
ardagur á kvikmynd
Sigurjóns Sighvats-
sonar, Brothers. Hún
verður frumsýnd hinn 4.
desember næstkomandi
en aðalleikararnir eru
þau Natalie Portman,
Jake Gyllenhaal og
Toby Maguire. Ljóst
er að myndin á
eftir að vekja mikla
athygli enda er stríðið í Afganistan
í forgrunni en það hefur komið
aftur upp á yfirborðið eftir að allri
orkunni var eytt í Írak. Aðalleikari
myndarinnar, Toby Maguire, lýsti
því síðan yfir í viðtali við Los Ang-
eles Times að hann hefði fundið
lífskraftinn aftur við það að leika í
myndinni.
Fyrirtöku í skuldamáli viðburða-
fyrirtækisins Élan Production á
hendur Jóni Ásgeiri Jóhannes-
syni og Ingibjörgu Pálmadóttur
var frestað í gær. Öll skjöl voru þó
komin til landsins og ekkert því til
fyrirstöðu að taka málið fyrir. Þeir
blaðamenn sem biðu fyrir utan sal
103 fóru því í fýluferð enda voru
engar skýringar
gefnar á því
af hverju
enginn væri
mættur. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég fæ mér nú bara Cheerios
og mjólk, en um helgar förum
við oft í bakarí og kaupum
rúnstykki og fáum okkur skyr-
búst með. Eða spælum egg og
beikon.“
Kristín Hrefna Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Anna Mjöll Ólafsdóttir býr og starfar í Los Angeles.
Hún heldur fyrstu stóru sólótónleikana sína í borg-
inni í kvöld, á hinni gagnmerku djassbúllu The Baked
Potato. „Eigandinn er búinn að biðja mig lengi um að
koma einhverju saman og troða upp hjá sér og það
passar vel að gera það núna þegar nýja sólóplatan mín
er að koma út,“ segir Anna Mjöll.
Sólóplatan heitir Shadow of Your Smile og kemur út
í lok nóvember. „Ég syng djassstandarda í nútímaleg-
um útgáfum, enda er ég með svo hipp gaura með mér.
Það er búið að auglýsa þessa tónleika mikið og Íslend-
ingafélagið ætlar að minnsta kosti að fjölmenna. Það
situr á fremsta bekk og heldur í höndina á mér.“
Anna blæs á það að vera orðin amerísk þrátt fyrir
amerískan hreim. „Við vorum einmitt að tala um
þetta í Íslendingafélaginu. Þótt maður hafi búið úti
í 100 ár talar maður alltaf um að „fara heim“ þegar
maður fer til Íslands. Þetta er rannsóknarefni. Ég
kem oft heim til að hlaða batteríin. Ég kem um jólin
og syng þá örugglega eitthvað.“
Anna Mjöll skildi við eiginmann sinn fyrir tveim-
ur mánuðum. „Það er bara ein regla: Að fólk mæti
með tissjú-box! Og ég ætla að nota þau öll sjálf,“ segir
söngkonan, meira í gríni en alvöru. Og þó. „Það pass-
ar náttúrlega mjög vel að syngja þessa músík núna.
Ég ætla að taka skilnaðarblúsinn út á áhorfendum.“
Anna einbeitir sér nú að sólóferlinum, en að auki
fær hún verkefni. Hún samdi þrjú lög fyrir grín-
myndina For Your Consideration – „Það er þó ekkert
merkilegt. Merkilegast finnst mér að fá að syngja
djass. Það er það sem stendur hjarta mínu næst.“ - drg
Anna Mjöll með skilnaðarblús
TAKIÐ VASAKLÚTANA
MEÐ! Anna Mjöll
Ólafsdóttir treður
upp á Bökuðu kart-
öflunni í kvöld.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Árni Johnsen.
2 Langholtsskóla.
3 Gísli Örn Garðarsson.