Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 2
2 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR Kristín, reið þetta ykkur að fullu? „Alla leið.“ Kristín Gígja Sigurðardóttir tók þátt í kynlífstilraun útvarpsstöðvarins Kanans ásamt kærasta sínum, Eiríki Birki Ragnarssyni. Tilraunin heppnaðist framar vonum og hefur samband þeirra aldrei veriðið styrkara. LÖGREGLUMÁL Lögregla í borginni Plattsburgh í New York-ríki í Bandaríkjunum handtók í gær 42 ára íslenska konu, Lindu Björk Magnúsdóttur, sem í fyrrakvöld strauk úr varðhaldi þegar hún beið eftir því að verða leidd fyrir dómara með því að lauma sér út um salernisglugga. Eftir flóttann var lýst eftir Lindu Björk í fjöl- miðlum í borginni, vegatálmar settir upp og gerð út sveit lögreglu að leita hennar. Hennar var meðal annars leitað úr þyrlu. Leitin bar árangur í gær- morgun og er hún nú í varðhaldi hjá alríkislögregl- unni FBI. Linda var upphaflega handtekin við komuna til Bandaríkjanna fyrir brot sem ekki hefur verið gefið upp hvers eðlis er. Einhverjir miðlar hafa hins vegar sagt hana vera ólöglegan innflytjanda í Bandaríkjunum. Hún var þá á leiðinni yfir landa- mærin frá Kanada. Þegar átti að færa hana fyrir dómara strauk hún. Linda Björk var á sínum tíma forstöðukona í trúar söfnuði sem hét Frelsið, kristileg miðstöð, og var starfræktur á árunum 1995 til 2001. - sh Linda Björk Magnúsdóttir handtekin í Bandaríkjunum eftir flótta og leit: Íslensk kona flúði út um glugga LINDA BJÖRK Rak trúarsöfnuð á Íslandi um sex ára skeið. DANMÖRK „Danska hagstofan hefur komið af stað mjög niður- drepandi umræðu vegna talna um fjölda gjaldþrota og nauðungar- uppboða,“ segir í frétt danska við- skiptablaðsins Børsen í gær. Vitnað er til nýbirtra talna hag- stofu landsins um að nauðungar- uppboð í Danmörku hafi ekki verið fleiri síðan í maí 1995 og gjaldþrot hafi ekki verið fleiri frá því að mælingar hófust fyrir þrjátíu árum, árið 1979. „Í október urðu 537 gjaldþrot miðað við 490 í fyrra mánuði,“ er haft eftir hagstofunni, en aukn- ingin milli mánaða nemur 9,6 prósentum. Þá voru í mánuðin- um 423 nauðungaruppboð, átján prósentum fleiri en í september þegar þau voru 357. - óká Metfjöldi danskra gjaldþrota: Tölurnar sagðar niðurdrepandi VIÐ NÝHÖFN Gjaldþrot í Danmörku í einum mánuði hafa ekki verið fleiri en í október frá því að mælingar hófust fyrir þrjátíu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VIÐSKIPTI Slitastjórn Kaupþings hefur vísað einu máli til sérstaks saksóknara eftir athugun á bók- haldi félagsins. Slitastjórnin hefur unnið að rannsókn á ráðstöfunum bankans í aðdraganda hruns með liðsinni endurskoðunarfyrirtækis- ins PricewaterhouseCoopers frá því í ágúst. Ólafur Þór Hauksson staðfestir að mál hafi borist frá slitastjórn en vill ekkert tjá sig frekar um það. Hann segir þó að þetta sýni að reglur sem settar voru um upp- lýsingaskyldu til rannsóknar aðila beri árangur. Ólafur Garðars son, formaður slitastjórnarinnar, vill ekkert tjá sig um málið. - sh Slitastjórn Kaupþings: Einu máli vísað til saksóknara STJÓRNMÁL „Við ætlum ekki að breyta þeirri grundvallarhug- mynd að einkahlutafélög eru með takmarkaðar ábyrgðir. Það er grundvöllur hlutafélagaforms- ins,“ segir Gylfi Magnússon við- skiptaráðherra. Áætlað er að skuldir einka- hlutafélaga nemi hátt í tvö þús- und milljörðum króna. Haft hefur verið eftir Gylfa að féð sé að mestum hluta glatað þar sem litlar sem engar eignir eru á móti skuldum. Ríkisstjórnin undirbýr umfangs- miklar breytingar á lögum um hlutafélög og einkahlutafélög. Gylfi nefndi nokkrar þeirra á fundi Íslands- banka um mikil- vægi fjárfesta í endurreisn hag- kerfisins í gær. Þar á meðal eru reglur um æðstu stjórn- endur fjármála- fyrirtækja, hertar reglur um lán með veði í hlutabréfunum sjálfum, lán til tengdra aðila og aukin ábyrgð endurskoðenda. Í þeim stjórnarfrumvörpum sem þegar eru komin til Alþingis er fjallað um kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja og þak á eignarhlut tengdra aðila í skráðu félagi. Þá er stefnt að því að leggja fyrir þingið á næstunni stjórnar- frumvarp sem þrengir svigrúm fjármálafyrirtækja til lánveit- inga, svo sem veitingu á lánum sem nýta á til kaupa á hlutabréf- um sömu fjármálafyrirtækja. Þá er stefnt að því að leggja fyrir þingið frumvarp um verndun minnihluta í hlutafélögum og einkahlutafélögum. „Þetta eru viðbrögð við því sem fór úrskeiðis á uppgangstímunum og á að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig,“ segir Gylfi. - jab Ríkisstjórnin stefnir að umfangsmiklum breytingum á lögum um hlutafélög: Kemur í veg fyrir aðra óráðsíu GYLFI MAGNÚSSON HEILBRIGÐISMÁL Sóttvarnalæknir hvetur fólk með undirliggjandi sjúkdóma til að panta bólusetn- ingu gegn svínaflensu sem fyrst. „Því fleiri sem bólusettir eru, þeim mun hraðar gengur að draga úr far- aldrinum,“ segir Harald- ur Briem. „Við erum í kapp- hlaupi við tím- ann.“ Alls hafa nítján manns lagst inn á sjúkrahúsið á Akureyri af völdum svínaflensu, að sögn Har- aldar. Í gær voru þrír flensusjúk- lingar á spítalanum og einn hafði lent á gjörgæslu. Í gær lágu 29 manns á Landspítalanum af völd- um flensunnar, þar af átta á gjör- gæslu. Sex höfðu verið útskrifað- ir, en tveir nýir bæst við. - jss Sóttvarnalæknir vill bólusetja: Í kapphlaupi við tímann ALÞINGI Kosið verður til stjórnlaga- þings samhliða sveitarstjórnar- kosningum næsta vor, samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem fjár- málaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þingið á að koma saman í síðasta lagi 17. júní 2010, starfa í þremur lotum og ljúka störfum fyrir 17, febrúar. Á þinginu munu sitja 25-31 þjóðkjörinn fulltrúi, sem kjósa á persónukosningu. Samkvæmt frumvarpinu getur stjórnlagaþing ákveðið að fjalla um þau atriði sem það sjálft kýs en frumvarpið tiltekur nokkur verkefni sérstaklega, og segir í greinargerð að það séu þeir þætt- ir stjórnarskrárinnar, sem staðið hafa lítt breyttir frá árinu 1874. Þetta eru: Undirstöður íslenskrar stjórnskipunar og helstu grunn- hugtök hennar; skipan löggjaf- arvalds og framkvæmdarvalds og valdmörk þeirra; hlutverk og staða forseta Íslands; sjálfstæði dómstóla og eftirlit dómstóla með öðrum handhöfum ríkisvalds og loks ákvæði um kosningar og kjör- dæmaskipan og lýðræðislega þátt- töku almennings. Samkvæmt frumvarpinu á fyrsta lota stjórnlagaþings að standa frá 17. júní til 15. júlí 2010. Næst á þingið að koma saman 4. október næsta haust og sitja til 5. nóvember. Loks á það að sitja frá 10. janúar til 16. febrúar 2011. Þingforseti verður kosinn við setningarathöfnina úr hópi þing- fulltrúa. Milli þinglotanna eiga þrjár þriggja manna starfsnefndir stjórnlagaþings að halda áfram störfum. Fulltrúar á stjórnlagaþingi munu fá greidd laun þá daga sem þingið situr. Launin miðast við þingfararkaup alþingismanna, sem er um 520.000 kr á mánuði. Nefndarformenn, þingforseti, og meðlimir fastanefnda verða á fullum launum allt kjörtíma- bilið. Laun þingforsetans verða miðuð við laun forseta Alþingis, sem hefur ráðherralaun. Laun nefndar formanna við laun nefndar- formanna á Alþingi, en þeir fá greitt fimmtán prósenta álag á þingfararkaup. Fyrir þriðju og síðustu þinglotu á forseti stjórnlagaþings að leggja fram frumvarp til stjórnskipunar- laga, sem stjórnlagaþingið fjallar um og samþykkir við tvær umræður. Að lokinni umfjöllun stjórnlagaþings fær Alþingi frum- varpið til meðferðar. Í frumvarpinu eru ákvæði sem ætlað er að tryggja jafnrétti kynj- anna þannig að hlutfall annars kynsins verði ekki hærra en sex- tíu prósent þingfulltrúa. Í kostnaðarmati kemur fram að heildarkostnaður við stjórnlaga- þing er áætlaður allt að 392 millj- ónir króna. peturg@althingi.is Stjórnlagaþing taki til starfa 17. júní Frumvarp til laga um stjórnlagaþing lagt fyrir Alþingi. 25-31 þingfulltrúi verði kosinn persónubundinni kosningu samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor. STJÓRNARSKRÁ FRÁ 1874 Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, afhenti Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra, frumrit stjórnarskrár Íslendinga frá 1874 þegar hann kom í opinbera heimsókn til landsins árið 2003. Nú á þjóðkjörið stjórnlagaþing að taka íslensku stjórnarskrána til heildarendurskoðunar, samkvæmt nýju frumvarpi forsætisráðherra. BANDARÍKIN, AP Að minnsta kosti tólf manns lágu í valnum og tugir særðust þegar tveir vopnaðir menn hófu skothríð á tveimur stöðum í herstöð í Fort Hood í Texas í gær. Annar byssumaðurinn var handtekinn, en hinn var ófundinn í gærkvöldi. Sumir fjölmiðlar sögðu árásarmennina hafa verið þrjá. Einnig ríkti óvissa um það hve margir voru látnir. Árásarmennirnir voru klædd- ir í herbúninga. Fyrri skotárásin var gerð á starfsmannaskrifstofu í herstöðinni, en hin í leikhúsi. Mikið álag hefur verið á banda- rískum hermönnum vegna stríðs- rekstrar bæði í Írak og Afganist- an. - gb Byssumenn í Bandaríkjunum: Tvær skotárásir í herstöð í Texas HARALDUR BRIEM Jeppi valt í Langadal Jeppi valt í fljúgandi hálku í Langa- dal í Húnavatnssýslu um sjöleytið í gærkvöld. Karl og kona, sem voru í jeppanum, voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík. Óhappið varð skammt frá bænum Auðólfs- stöðum, en akstursaðstæður voru erfiðar á slysstaðnum sakir hálkunnar. LÖGREGLUFRÉTTIR SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.