Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 78
54 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR Samningar hafa náðst á milli Sögur útgáfu og spænska bókaforlags- ins Duomo Ediciones um útgáfu á Sólkrossi og Hnífi Abrahams eftir Óttar M. Norðfjörð á spænsku. „Þetta er mjög öflugur útgefandi,“ segir Tómas Hermannsson hjá Sögum. Samningurinn, sem náðist á bókamessunni í Frankfurt, er ein- stakur fyrir þær sakir að ekki er aðeins miðað við útgáfu bókanna á Spáni, heldur í öllum hinum spænskumælandi heimi, sem þýðir útgáfu í allt að tuttugu löndum. Að sögn Tómasar fær Óttar sjálfur langmestan peninginn sem felst í samningnum. „Fyrir höfunda skiptir þetta rosalegu máli. Það gerir þeim kleift að lifa á því að skrifa ef þeir ná því að vera gefnir út í mörgum löndum. Hvert land er kannski ekkert rosalegt en þegar höfundurinn er kominn til nokk- urra landa fer að vera grundvöllur fyrir hann að lifa á þessu.“ Fyrirhugað er að Sól kross komi út á spænsku jólin 2010. Duomo hyggst leggja mikið í markaðs- setningu á bókinni því miklar vonir eru bundnar við hana, enda eru nor- rænir krimmahöfundar vinsælir um þessar mundir. Hnífur Abra- hams kemur síðan út 2011. Duomo Ediciones er í eigu ítalska útgáf- urisans Gruppo editoriale Mauri Spagnol, sem er meðal þeirra allra stærstu á Ítalíu, og rekur til að mynda níu bókaforlög. Hnífur Abrahams hefur áður komið út í Hollandi og Sólkross hefur nú þegar verið seldur til Þýskalands, Austurríkis og Sviss. Hér heima hefur Hnífur Abrahams selst í um sex þúsund eintökum og Sól- kross í um þremur þús- undum. Nýútkomin bók Óttars nefnist Paradísarborgin. - fb 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. æsa, 6. í röð, 8. bók, 9. læsing, 11. tveir eins, 12. súla, 14. afdrep, 16. tveir eins, 17. runa, 18. útgerðarstað- ur, 20. fyrir hönd, 21. skál. LÓÐRÉTT 1. líkamshluti, 3. tveir eins, 4. hrörn- un, 5. sigað, 7. kæna, 10. afbrot, 13. ferskur, 15. innyfla, 16. innilokað svæði, 19. slá. LAUSN LÁRÉTT: 2. örva, 6. áb, 8. rit, 9. lás, 11. tt, 12. stöng, 14. skýli, 16. kk, 17. röð, 18. ver, 20. pr, 21. ílát. LÓÐRÉTT: 1. háls, 3. rr, 4. vitglöp, 5. att, 7. bátskel, 10. sök, 13. nýr, 15. iðra, 16. kví, 19. rá. „Þetta var alveg geðveikt, í einu orði sagt. Ég hef aldrei séð jafn stórt batterí og það var alveg frá- bært að fá að taka þátt í þessu,“ segir Svandís Dóra Einarsdóttir leiklistarnemi. Þau Svandís Dóra og Hilmar Guðjónsson, leiklistar- nemar á fjórða ári í leiklistardeild LHÍ, fengu fljúgandi start á ferli sínum þegar þau lönduðu litlum hlutverkum í stórmynd rússneska leikstjórans Aleksandr Sokurov um Faust. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hefur tökuliðið verið hér á landi í tæpar tvær vikur en það hélt af landi brott í gærmorgun. Tökur hafa farið fram víðs vegar um Suðurlandið og í hrauninu við Bláa lónið. Þá leikur Sigurður Skúlason föður Faust í myndinni eins og komið hefur fram í Frétta- blaðinu en þær tökur áttu sér stað í Tékklandi. Þótt Sokurov sé ekki frá Hollywood nýtur hann mikillar virðingar í hinum alþjóðlega kvik- myndaheimi og hefur verið settur á stall með Ingmar Bergman og Stanley Kubrick. „Þetta byrjaði allt saman í vor,“ segir Svandís. „Þá voru Eskimo með opnar prufur fyrir leikara og ég hitti hann í fyrsta skipti. Þegar það var síðan hringt í mig aftur þá hélt ég fyrst að það væri verið að ráða mig í einhverja auglýsingu,“ segir Svandís en hún lýsir leik- prufunum sem mjög óhefðbundn- um, hún hafi setið og spjallað við leikstjórann. Hún heldur vart vatni yfir rússneska leikstjóranum sem hefur fengið orð á sig fyrir að vera bæði skapstór og sérvitur. „Nei, hann var það alls ekki, hann var alltaf að koma og hlýja manni og það var bara stjanað við mig í hví- vetna.“ Og þótt tökuliðið hafi að mestu leyti komið frá Rússlandi og Tékklandi voru engir tungumála- örðugleikar. Nema kannski helst fyrir leikstjórann sjálfan. „Það var þarna frábær túlkur, Aleksandr leikstýrði og svo heyrði maður bara aðra rödd frá öðrum stað.“ Svandís hefur að undanförnu verið að sýna Eftirlitsmanninn með Nemendaleikhúsinu í leik- stjórn Stefáns Jónssonar og henni líst vel á þessa djúpu og harð- skeyttu leiklistarlaug. „Ég er bæði hrifin af leikhúsinu og kvikmynd- unum, þetta er að mörgu leyti ólíkt en samt svo líkt. Ég bíð bara spennt eftir að takast á við þetta.“ freyrgigja@frettabladid.is SVANDÍS DÓRA EINARSDÓTTIR: FÉKK LEIÐBEININGAR Í GEGNUM TÚLK Leiklistarnemar fá hlut- verk í rússneskri stórmynd Í RÚSSAMYND Svandís Dóra leikur lítið hlutverk í kvikmynd Aleksandr Sokurov um Faust ásamt bekkjarbróður sínum, Hilmari Guðjónssyni. Sigurður Skúlason leikur föður Fausts í myndinni en tökulið myndarinnar var hér á landi í tvær vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÓTTAR M. NORÐFJÖRÐ Samningar hafa náðst um að gefa tvær bækur Óttars út í hinum spænskumælandi heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR TÓMAS HERMANNSSON Tómas er mjög ánægður með samninginn við Duomo Ediciones. „Shakira kveikir hreinlega í dýn- unni með heitum dansaralegum náunga og sannar að hún getur enn þá dansað eins og hún gerði í myndbandinu við lagið Whenever, Wherever árið 2001.“ Þetta skrif- ar Tanner Stransky, blaðamaður vefútgáfu Entertainment Weekly, á vefsíðu tímaritsins. Stransky er yfir sig hrifinn af nýjasta myndbandi latínu- bombunnar Shakiru, en eins og Fréttablaðið greindi frá á þriðju- dag samdi Katrín Hall, listrænn stjórnandi Íslenska dansflokks- ins, umræddan dans. Hann var augljóslega ekki með allar upplýs- ingar á hreinu þegar hann skrifaði umfjöllunina þar sem hann veltir fyrir sér hver í ósköpunum samdi dansinn. „Spurningin sem brenn- ur á mér er; hver samdi dansinn? Sú sem gerði það gerir svipaða hluti og voru í gangi í Matrix- trílógíunni,“ skrifaði Stransky. Hann virðist síðan hafa komist í vefútgáfu Fréttablaðsins, þar sem hann uppfærir umfjöllunina og segir að það hafi verið afar áhuga- verð ákvörðun að fá Katrínu Hall í verkefnið. Elena Gorgan, lífsstílspenni vef- ritsins Softpedia, gengur skref- inu lengra og segir að dansinn sé sá heitasti sem sést hafi á rúmi. „Þau eru elskendur og eru að ríf- ast heiftarlega, en á sama tíma er mikil ástríða á milli þeirra.“ - afb Shakiru-dansinn vekur athygli KATRÍN HALL Vekur athygli fyrir dans sem hún samdi fyrir Shakiru. MYND/JÓNATAN Óttar Norðfjörð á spænsku í tuttugu löndum BESTI BITINN Í BÆNUM „Mér finnst veitingastaðurinn Garðurinn á Klapparstíg vera bestur. Ég get verið mjög mat- vönd en mér finnst maturinn þar alltaf góður.“ Tanya Pollock, tónlistarkona og skipu- leggjandi Weirdcore-skemmtikvöldanna. VEITINGASTAÐURINN er loksins komin á koppinn SÚPA, FISKUR OG KAFFI Aðeins 990 Opið 11:30-14:30 Jibbí! Jibbí! VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Ágústs Guðmundssonar (í Bakkavör). 2 Hilmar Oddsson. 3 Glæpinn (Forbrydelsen). Kvikmyndagerðar- menn hljóta að varpa öndinni léttar því Ari Kristinsson upplýsir í viðtali við vefsíðu norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn að menningarmála- ráðherrann Katrín Jakobsdóttir hafi viðurkennt í samtali við hann að niður- skurður á framlögum til kvikmyndamiðstöðvar hafi verið mistök. „Menningarmálaráðherrann sagði að hún gerði sér grein fyrir því að fyrirhugaður niðurskurður væri líklega mistök,“ svo þetta sé haft orðrétt eftir Ara. Tvær af skærustu stjörnum leikara- stéttarinnar um þessar mundir eru þau Björn Thors og Ilmur Kristjánsdóttir sem slegið hafa í gegn í sjónvarpsþáttum á Stöð 2, Ilmur í hlutverki Ástríðar og Björn sem Kenneth Máni í Fangavaktinni. Á miðvikudags- kvöldið sátu þau saman á Boston á Laugavegi og dreyptu á rauðvíni. Væntanlega er eitthvað spennandi í pípunum. Grein verðlaunahöfundarins Bjarna Bjarnasonar um Einveldi á bókamarkaði í Morgunblaðinu olli að vonum miklum titringi í höfuð- stöðvum Forlagsins í gær. Bjarni hvetur smærri forleggjara til að fara í mál við Forlagið með tugmilljóna skaðabótakröfu í huga. Hann vill meina að Samkeppniseftirlit hafi brugðist með öllu þegar Edda og JPV sameinuðust á sínum tíma og myndaðist þá markaðsráðandi staða, að mati Bjarna. Í bókakaffi Forlagsins í gær var fátt meira rætt en þessi grein og voru höfundar þar á einu máli um að Bjarni væri að vaða í villu og svíma með þessa áskorun sem væri engum til góðs. - fgg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.