Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 56
BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur BYLGJAN ÞAKKAR HLUSTENDUM SAMFYLGDINA Á HVERJUM DEGI Bylgjan ber af og tryggir að skilaboð auglýsenda komist áleiðis til mikilvægustu markhópanna.* * Samkvæmt mælingum Capacent á hlustun í mínútum í aldurshópnum 18 – 49 ára, vika 40, 2009. Í viku 40 var hlustun á Bylgjuna, Létt Bylgjuna og Gull Bylgjuna 52%. Auglýsing á Bylgjunni birtist samtímis á Létt Bylgjunni og Gull Bylgjunni. BYLGJAN Í FYRSTA SÆTI 32 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Mein- dýraeyðir Heima hjá mér er herbergi með drasli. Það er pínulítið, innan við sex fer- metrar, frekar hátt til lofts en þröngt til veggja og hefur örugglega í upphafi átt að vera búr enda við hliðina á eldhúsinu. Her- bergið er lítið að utan en miklu stærra að innan, eins og slíkra vistarvera er siður. ÞEGAR við keyptum íbúðina okkar fyrir fjórum árum var þessu herbergi ætlað mikið hlutverk. Það átti að verða skrifstofa sem síðan breyttist ef til vill í barna- herbergi. Fyrsta hlutverk þess átti samt að vera athvarf fyrir húsbóndann. ÞAÐ vill gerast þegar fólk flytur saman að annar aðilinn á meira dót. Í blönduðu kynjasambandi er það oftast konan. Hún byrjaði kannski að safna sér í búið um fermingu og hver hlutur var valinn af kostgæfni í samhengi við annan. Dótið hans er hins vegar oft sitt úr hverri átt- inni, stóllinn hennar langömmu, lampinn sem síðustu leigjendur skildu eftir, stórar og veglegar afrískar styttur sem passa einhvern veginn ekki inn í sænsku sveitalínuna sem hún hefur verið að draga árum saman. ÞÁ er athvarf góð lausn. Herbergi þar sem má hengja upp gömlu Iron Maiden og Hómer Simpson plakötin, hafa hnattlíkanið og spliffið, donkið og gengjuna sem gárungarnir gáfu honum einhvern tíma í jólagjöf. Að ógleymdum metraháum afrískum stríðsmönnum. Þar ætti líka að vera tölva til að spila Foot- ball Manager, vínylplötuspilari með stór- um heyrnartólum og bækurnar um seinni heimsstyrjöldina. SUMUM finnst eins herbergis athvarf ekki nóg og koma sér upp heilsársathvörf- um úti á landi. Þá bætast í safnið veiði- stangir og vöðlur, golfsett, snjósleðar og uppstoppuð bráð, billjardborð og gufubað. Og ef bústaður inn verður of lítill þarf bara að rífa hann og byggja stærri. Sem þú gerir náttúrlega ekki við lítið herbergi. EINS og áður sagði endaði athvarfið heima hjá mér sem geymsla, full af drasli. Smám saman tíndist meira og meira dót þar inn sem enginn vissi almennilega hvar ætti annars staðar að vera og áður en varði var ekki lengur hægt að setjast þar niður, hvað þá lesa bók eða hlusta á plötur. Sem betur fer gátum við samt ekki rifið athvarfið okkar og stækkað það. ÞAÐ er nefnilega miklu erfiðara að taka til eftir svoleiðis framkvæmdir. Sérstaklega þegar þyrlunnar nýtur ekki lengur við. Athvarf Óboj! Þú getur aldrei giskað hvað þetta er, Húgó! HRI ST HRI ST Kóktappi? FJANDINN! Ég er líka með smá- ræði fyrir þig Ívar! Óboj! Þú verður að prófa. Hvað? Að segja „Ég elska þig“ við pabba minn? Já, af hverju ekki? Af því hann mun þottþétt brjálast! Hann mun auðvit- að halda að ég sé að reyna að vera fyndinn! Svo mun hann láta mig skila þvagprufu! Eða hann mun kunna þessu vel. Já, verra! Honum gæti líkað þetta! En ef það er bara þvotta- vélin sem er biluð, af hverju þurfum við þá nýjan þurrkara? Af því það gerir lífið bara auðveldara. Hvernig í ósköpunum eiga sams konar þvottavél og þurrk- ari að gera líf þitt auðveldara? Ekki mitt líf... þitt. Ó. Einmitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.