Fréttablaðið - 06.11.2009, Qupperneq 56
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
BYLGJAN ÞAKKAR
HLUSTENDUM
SAMFYLGDINA
Á HVERJUM DEGI
Bylgjan ber af og tryggir að skilaboð auglýsenda
komist áleiðis til mikilvægustu markhópanna.*
* Samkvæmt mælingum Capacent á hlustun í mínútum
í aldurshópnum 18 – 49 ára, vika 40, 2009.
Í viku 40 var hlustun á Bylgjuna, Létt Bylgjuna og Gull Bylgjuna 52%.
Auglýsing á Bylgjunni birtist samtímis á Létt Bylgjunni og Gull Bylgjunni.
BYLGJAN
Í FYRSTA
SÆTI
32 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Mein-
dýraeyðir
Heima hjá mér er herbergi með drasli. Það er pínulítið, innan við sex fer-
metrar, frekar hátt til lofts en þröngt til
veggja og hefur örugglega í upphafi átt að
vera búr enda við hliðina á eldhúsinu. Her-
bergið er lítið að utan en miklu stærra að
innan, eins og slíkra vistarvera er siður.
ÞEGAR við keyptum íbúðina okkar fyrir
fjórum árum var þessu herbergi ætlað
mikið hlutverk. Það átti að verða skrifstofa
sem síðan breyttist ef til vill í barna-
herbergi. Fyrsta hlutverk þess átti samt
að vera athvarf fyrir húsbóndann.
ÞAÐ vill gerast þegar fólk flytur
saman að annar aðilinn á meira dót.
Í blönduðu kynjasambandi er það
oftast konan. Hún byrjaði kannski
að safna sér í búið um fermingu og
hver hlutur var valinn af kostgæfni
í samhengi við annan. Dótið hans
er hins vegar oft sitt úr hverri átt-
inni, stóllinn hennar langömmu,
lampinn sem síðustu leigjendur
skildu eftir, stórar og veglegar
afrískar styttur sem passa
einhvern veginn ekki inn í
sænsku sveitalínuna sem
hún hefur verið að draga
árum saman.
ÞÁ er athvarf góð lausn.
Herbergi þar sem má hengja upp gömlu
Iron Maiden og Hómer Simpson plakötin,
hafa hnattlíkanið og spliffið, donkið og
gengjuna sem gárungarnir gáfu honum
einhvern tíma í jólagjöf. Að ógleymdum
metraháum afrískum stríðsmönnum. Þar
ætti líka að vera tölva til að spila Foot-
ball Manager, vínylplötuspilari með stór-
um heyrnartólum og bækurnar um seinni
heimsstyrjöldina.
SUMUM finnst eins herbergis athvarf
ekki nóg og koma sér upp heilsársathvörf-
um úti á landi. Þá bætast í safnið veiði-
stangir og vöðlur, golfsett, snjósleðar og
uppstoppuð bráð, billjardborð og gufubað.
Og ef bústaður inn verður of lítill þarf bara
að rífa hann og byggja stærri. Sem þú gerir
náttúrlega ekki við lítið herbergi.
EINS og áður sagði endaði athvarfið heima
hjá mér sem geymsla, full af drasli. Smám
saman tíndist meira og meira dót þar inn
sem enginn vissi almennilega hvar ætti
annars staðar að vera og áður en varði var
ekki lengur hægt að setjast þar niður, hvað
þá lesa bók eða hlusta á plötur. Sem betur
fer gátum við samt ekki rifið athvarfið
okkar og stækkað það.
ÞAÐ er nefnilega miklu erfiðara að taka til
eftir svoleiðis framkvæmdir. Sérstaklega
þegar þyrlunnar nýtur ekki lengur við.
Athvarf
Óboj!
Þú getur
aldrei giskað
hvað þetta er,
Húgó! HRI
ST
HRI
ST
Kóktappi?
FJANDINN!
Ég er líka með smá-
ræði fyrir þig Ívar!
Óboj!
Þú verður
að prófa. Hvað? Að segja
„Ég elska
þig“ við
pabba
minn?
Já, af
hverju
ekki?
Af því hann
mun þottþétt
brjálast!
Hann mun auðvit-
að halda að ég sé
að reyna að vera
fyndinn!
Svo mun hann
láta mig skila
þvagprufu!
Eða hann
mun
kunna
þessu
vel.
Já, verra!
Honum
gæti líkað
þetta!
En ef það er bara þvotta-
vélin sem er biluð, af
hverju þurfum við þá nýjan
þurrkara?
Af því það
gerir lífið bara
auðveldara.
Hvernig í ósköpunum eiga
sams konar þvottavél og þurrk-
ari að gera líf þitt auðveldara?
Ekki mitt líf... þitt.
Ó. Einmitt.