Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 75

Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 75
FÖSTUDAGUR 6. nóvember 2009 51 FÓTBOLTI Sænska knattspyrnu- sambandið hefur gengið frá ráðn- ingu Eriks Hamrén sem lands- liðsþjálfara. Hamrén er einnig þjálfari Rosenborg og mun áfram gegna því starfi þar til í ágúst á næsta ári. Þá mun hann einbeita sér fyllilega að sænska landslið- inu. Hamrén tekur við starfinu af Lars Lagerbäck sem kom Svíum á fimm stórmót í röð frá 2000 til 2008. Svíum mistókst hins vegar að komast á HM í Suður-Afríku á næsta ári. Erik Hamrén gerði Rosenborg að norskum meisturum með stæl en liðið tapaði aðeins einum leik allt tímabilið og var í lokin með þrettán stiga forystu á næsta lið. Þá gerði hann Álaborg að dönsk- um meisturum árið 2008. - esá Svíar ráða landsliðsþjálfara: Hamrén tekur við Svíum HAMRÉN Fagnar hér norska meistaratitl- inum í síðasta mánuði. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Svo gæti farið að Jose Bosingwa, leikmaður Chelsea og portúgalska landsliðsins, þurfi að gangast undir aðgerð vegna hnémeiðsla sinna. Bosingwa hefur verið frá keppni í þrjár vikur og aðgerð myndi gera það að verkum að hann yrði frá í fjór- ar vikur til viðbótar. Verði það niðurstaðan mun Bosingwa missa af nokkrum stórleikjum með Chelsea, gegn Manchester United, Arsenal og Manchester City, og einnig af leikjum Portúgals gegn Bosníu í umspili um sæti á HM. Bosingwa sagði sjálfur við enska fjölmiðla að þetta væri enn óráðið. „Þetta er undir lækn- unum komið en ég mun sætta mig við þá niðurstöðu sem þykir besta lausnin á vandanum.“ - esá Jose Bosingwa hjá Chelsea: Gæti þurft að fara í aðgerð JOSE BOSINGWA Hér í leik með Chelsea í haust. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Bandaríkjamaðurinn Stan Kroenke á nú 29,9 prósenta hlut í Arsenal eftir að hann keypti í vik- unni 200 hlutabréf í félaginu. Sam- kvæmt breskum lögum myndast yfirtökuskylda þegar einn aðili eignast þrjátíu prósenta hlut í fyrir tæki og yrði þá Kroenke skylt að gera öðrum hluthöfum Arsenal tilboð í þeirra hluti. Kroenke er stærsti einstaki hluthafinn í Arsenal en Úsbekinn Alisher Usmanov kemur þar á eftir með 25 prósenta hlut. Aðrir stórir hluthafar eru Danny Fiszman og lafði Bracewell-Smith. Minni hlut- hafar eiga um þrettán prósenta hlut í félaginu. Fáum er ljóst hvað Kroenke ætlar sér með sinn hlut í Arsenal enda gengur hann í viðskiptaheim- inum undir nafninu „þögli Stan“. Sjálfur hefur hann ekki viljað tjá sig um sínar fyrirætlanir en hann hefur á undanförnum árum aukið hlut sinn í Arsenal jafnt og þétt. Kostirnir eru tveir. Annars vegar lítur hann á hlut sinn sem góða fjárfestingu sem hann getur selt síðar með gróða. Fordæmi eru fyrir því. JP McManus og John Magnier áttu tæplega þrjátíu pró- senta hlut í Manchester United og högnuðust svo mjög þegar Glazer- fjölskyldan keypti félagið. Hins vegar gæti Kroenke ákveðið að reyna að eignast félagið allt. Yfirtaka myndi sennilega kosta hann um 370 milljónir punda, um 76 milljarða króna. Samkvæmt úttekt Forbes um 400 ríkustu Bandaríkjamennina ætti Kroenke að hafa efni á því en eignir hans sagðar um 338 milljarða króna virði. Að auki er hann kvæntur inn í hina vellauðugu Walton-fjöl- skyldu sem á Wal-Mart-verslana- keðjuna í Bandaríkjunum. Kroenke hagnaðist á fasteigna- viðskiptum og á fjölmörg íþrótta- lið í Bandaríkjunum. Hann á NBA- liðið Denver Nuggets, hokkíliðið Colorado Avalanche, knattspyrnu- liðið Colorado Rapids, lakross liðið Colorado Mammoth og á 40 pró- senta hlut í St. Louis Rams sem leikur í NFL-deildinni. - esá Bandaríkjamaðurinn Stan Kroenke á nú 29,9 prósenta hlut í Arsenal: Kroenke nálgast yfirtökuskyldu STAN KROENKE Á körfuboltalið, knatt- spyrnulið, hokkílið og stóran hluta í bandarísku ruðningsliði. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Benni McCarthy, leik- maður Blackburn í ensku úrvals- deildinni, hefur verið valinn í landslið Suður-Afríku á nýjan leik eftir að hafa verið í kuldan- um í níu mánuði. Fyrrverandi landsliðsþjálfari, Joel Santana, valdi ekki McCarthy vegna agabrots en nú er Carlos Alberto Parreira aftur tekinn við Suður-Afríkumönnum. Santana tók við af honum þegar Parreira hætti á sínum tíma. Það er þó kaldhæðnislegt að McCarthy er nú í kuldanum hjá Blackburn og hefur ekki verið í byrjunarliðinu það sem af er tímabilinu í Englandi. - esá Benni McCarthy: Aftur í landslið Suður-Afríku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.