Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 6
6 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Bílaapótek Hæðarsmára
Mjódd • Álftamýri
HEILBRIGÐISMÁL Noro-veiran sem
herjað hefur á starfsfólk Kaup-
þings banka að undanförnu breidd-
ist út með kartöflusalsa, auk þess að
smitast á milli manna, að sögn Ósk-
ars Ísfeld Sigurðssonar, forstöðu-
manns Heilbrigðiseftirlits Reykja-
víkur. Ekki er vitað hvort veiran
barst inn í bankann með matvælum
eða fólki.
Óskar segir að rannsókninni sé
ekki fulllokið en sennilega fáist
aldrei úr því skorið hvernig veiran
hafi komist í bankann. Noro-veiran
stingi sér alltaf öðru hvoru niður í
samfélaginu.
Um 250 starfsmenn Kaupþings
hafa veikst, en sýkingin er nú í
rénun, samkvæmt upplýsingum frá
bankanum. Þá hafa borist spurnir af
því að einhverjir fjölskyldumeðlim-
ir starfsmanna hafi einnig veikst.
Noro-veira veldur iðrakveisu
með uppköstum og niðurgangi.
Hún er bráðsmitandi og berst á
milli manna ýmist beint með snert-
ingu eða óbeint með mat og drykk.
Fundahöld í höfuðstöðvum Kaup-
þings gerðu það til dæmis að verk-
um að starfsmenn útibúa á Hellu og
í Borgarnesi veiktust einnig.
Óskar segir starfsfólk bankans
hafa staðið sig afar vel varðandi
varúðarreglur til að rjúfa smitleiðir
og koma í veg fyrir áframhaldandi
útbreiðslu. - jss
Noroveiran smitaði um 250 starfsmenn í Kaupþingi:
Dreifðist með kartöflusalsa
KAUPÞING Um 250 manns sýktust af
noro-veirunni.
ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra vill láta skoða
kosti og galla þess að ríkisstjórn
Ísland verði fjölskipað stjórn-
vald, eins og til dæmis í Svíþjóð.
Þá bæri ríkisstjórnin sameigin-
lega ábyrgð á málum, sem lögð
eru fyrir Alþingi, og hefði sam-
eiginleg yfirráð yfir stjórnsýsl-
unni í stað þess að einn ráðherra
beri ábyrgð á hverju máli eins og
nú er.
Í fyrirspurnartíma á Alþingi í
gær tók Jóhanna undir með Þór-
unni Sveinbjarnardóttur, þing-
manni Samfylkingarinnar, sem
sagði að hrunið síðastliðið haust
hefði afhjúpað veikleika í stjórn-
sýslunni hér á landi. Þar hafi
risið upp ókleifir múrar sem
geri samvinnu milli ráðuneyta
oft seinlega og erfiða.
„Það þarf ekki annað en einn
embættismann, sem dregur lapp-
irnar, til að koma í veg fyrir skil-
virkt samstarf,“ sagði Þórunn.
Jóhanna sagðist ekki geta varist
þeirri hugsun að mál hefðu getað
þróast með öðrum hætti síðastliðið
haust ef ýmsar ákvarðanir sem
snertu hrunið hefðu verið lagð-
ar fyrir ríkisstjórn til sameigin-
legrar umræðu og ákvörðunar.
Hún sagðist hafa skipað nefnd til
að endurskoða starfshætti ríkis-
stjórnar og fyrirkomulag ríkis-
stjórnarfunda. Þeirri nefnd verði
falið að skoða kosti þess og galla
að ríkisstjórn Íslands verði fjöl-
skipað stjórnvald. - pg
Vill láta skoða kosti þess og galla að ríkisstjórnin verði fjölskipað stjórnvald:
Embættismenn sem draga
lappirnar hindra samstarf
STJÓRNARRÁÐIÐ Forsætisráðherra
segist ekki fá varist þeirri hugsun að mál
hefðu getað þróast með öðrum hætti
síðastliðið haust ef ýmsar ákvarðanir
sem tengjast hruninu hefðu verið lagðar
fyrir á ríkisstjórnarfundi.
STJÓRNMÁL Formaður Þingvalla-
nefndar, Álfheiður Ingadóttir
heilbrigðisráðherra, leggur í dag
fram á Alþingi frumvarp til laga
um að þjóðgarðurinn á Þingvöll-
um falli ekki undir gildissvið laga
frá í fyrra um frístundabyggð og
leigu lóða undir frístundahús.
„Þetta er náttúrlega fyrst
og fremst þjóðgarður en ekki
sumar bústaðahverfi,“ útskýrir
Álfheiður, sem kveður Þingvalla-
nefnd meðal annars sjálfa vilja
ákveða leigutímann á sumarhúsa-
lóðum. „Þá þyrftum við ekki að
leigja lóðir þarna til tuttugu ára.
Þær hafa verið til tíu ára hingað
til.“
Sama frumvarp hefur áður
verið lagt fram en hlaut ekki
afgreiðslu fyrir síðustu alþingis-
kosningar. - gar
Frumvarp Þingvallanefndar:
Vill treysta tök
á sumarhúsum
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur, umhverfis-
og samgöngusvið Reykjavíkur,
heilbrigðis eftirlit Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæðis og Skipulags-
stofnun telja allar að vatnsvernd
verði ógnað með lagningu Suð-
vesturlínu.
Í umsögn Umhverfis- og sam-
göngusviðs borgarinnar frá því
í júní segir að fyrirhuguð fram-
kvæmd geti haft áhrif á vatns-
ból þrátt fyrir öryggiskröfur og
mótvægisaðgerðir. Framkvæmd
vatnsverndar geti farið í upp-
nám, einkum inni á grann- og
brunnsvæði í námunda við og með
aðrennsli að vatnsbólum. Fram-
kvæmdir og rask skapi „óhjá-
kvæmilega hættu fyrir öryggi
vatnsöflunar“.
Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæðis er mjög
afdráttarlaus í sinni bókun. Þar
segir: „Framkvæmdir og rask sem
fylgja uppbyggingu og síðar þjón-
usta við þessar háspennulínur svo
nærri vatnsbólunum skapar óhjá-
kvæmilega hættur fyrir öryggi
vatnsöflunar.“
Nefndin telur línuna hins vegar
svo mikilvæga að þessir hags-
munir víki. Betra hefði verið
að fara aðra leið en að teknu til-
liti til „mikilvægi boðaðra fram-
kvæmda“ og að viss öryggissjón-
armið verði tryggð, leggst nefndin
ekki gegn framkvæmdinni.
Skipulagsstofnun tók undir
áhyggjurnar í umhverfismati
sínu. Tekið var tillit til ýmissa
athugasemda.
Ekki verður framkvæmt frá
byrjun nóvember og til loka mars
og hafa þarf samband við heil-
brigðiseftirlit um alla þætti fram-
kvæmdarinnar. Umhverfismatið
var því jákvætt.
Landsnet stendur fyrir fram-
kvæmdinni og fyrirtækinu verð-
ur gert að bera ábyrgð á öllum
þáttum hennar inni á vatnsvernd-
arsvæðum. Það verður því ekki
hægt að vísa í ábyrgð undirverk-
taka fari eitthvað úrskeiðis.
Þórður Guðmundsson, for-
stjóri Landsnets, segir að fyllsta
öryggis verði gætt og unnið verði
eftir fremstu gæðastuðlum. Sér-
staklega verði tryggt að möstrin
mengi ekki.
Guðlaugur G. Sverrisson, for-
stjóri Orkuveitunnar, segir fyrir-
tækið vera með viðbragðsáætlan-
ir mengist vatnsból. Komi versta
mögulega staða upp á fram-
kvæmdasvæðinu í Heiðmörk verði
vatn sótt í Hengil og að Nesjavöll-
um. kolbeinn@frettabladid.is
Framkvæmt á
vatnsverndarsvæði
Fagnefndir Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Kópavogs telja vatnsvernd ógnað
með lagningu Suðvesturlínu. Mikilvægi línunnar vegur þó meira. Óvíst hver
ber kostnað mengist vatnsbólin. Ströng skilyrði sett við framkvæmdinni.
ÚTSÝNIÐ ÚR HEIÐMÖRK Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur telur að fyrirhugaðar framkvæmdir við Suðvesturlínu geti haft
áhrif á vatnsból þrátt fyrir öryggiskröfur og mótvægisaðgerðir.
Árásir á Jemen
Sádi-arabíski herinn gerði í gær árásir
á hópa uppreisnarmanna handan
landamæranna í Jemen. Beitt var
bæði árásarþotum og stórskotavíg-
búnaði.
SÁDI-ARABÍA
Vopnaskip stöðvað
Ísraelar segja að Hezbollah-samtök-
in hefðu getað varpað sprengjum
á Ísrael í heilan mánuð ef stór
vopnasending með skipi frá Íran, sem
ísraelski herinn stöðvaði í gær, hefði
borist þeim.
ÍSRAEL
Lavrov undrandi
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, segist afar undrandi á Radek
Sikorski, hinum pólska starfsbróður
sínum, fyrir að hafa beðið Bandaríkja-
menn um að senda fleiri hermenn til
Póllands.
RÚSSLAND
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur ætlar í fyrramálið að senda
gögn vegna nauðgunarmáls
til Ríkissaksóknara. Skortur á
þeim varð til þess að dæmdum
nauðgara var sleppt úr varðhaldi
í gær. Konan sem varð fyrir árás
mannsins lifir í ótta um að rekast
á hann á götu.
Eugenio Daudo Silva Chipa er
þrítugur Portúgali sem hefur
verið búsettur hér á landi. Hann
var dæmdur í Héraðsdómi Reykja-
víkur í fjögurra og hálfs árs fang-
elsi fyrir hrottafengna nauðgun
sem átti sér stað í Hafnarfirði í
maí á þessu ári. Honum var einnig
gert að sæta gæsluvarðhaldi. - bl
Nauðgara sem var sleppt:
Gögn send til
Ríkissaksóknara
Líst þér vel á hugmyndir um
framkvæmdir við Landspítala?
Já 42,9%
Nei 57,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að flytja löggæsluna frá Ríkis-
lögreglustjóra?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
KJÖRKASSINN