Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 7
Við færum höfuðstól erlendra húsnæðislána
aft ur til loka september 2008
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Með skilmálabreytingu hjá Íslandsbanka býðst
viðskiptavinum að lækka höfuðstól erlendra
húsnæðislána og breyta þeim í óverðtryggð lán
í íslenskum krónum.
Hvernig lækkar höfuðstóllinn og hversu mikið?
Miðað er við lækkun á höfuðstól þannig að hann
sé svipaður og hann var 29. september 2008.
Lækkun erlendra húsnæðislána verður um 25%
að meðaltali miðað við stöðu gengis 26. okt. 2009.
Sjá dæmi á mynd A.
Hvað verður um lánið mitt?
Lánið breytist í óverðtryggt húsnæðislán með
25 eða 40 ára lánstíma.
Hverjir verða vextirnir?
Hægt verður að velja á milli breytilegra og fastra
vaxta. Breytilegir vextir í dag skv. vaxtatöfl u eru
9,5%. Boðið verður upp á stiglækkandi afslátt frá
þeim. Miðað við óbreytt vaxtastig þá yrðu vextir
fyrsta árið 7,5% sem er vaxtaafsláttur upp á
2 prósentustig. Einnig er boðið upp á fasta vexti
til þriggja ára sem í dag eru 9,0% að teknu tilliti
til afsláttar.
Get ég lækkað greiðslubyrðina á láninu mínu?
Já, hægt er að sækja um greiðslujöfnun á óverð-
tryggða láninu í þrjú ár, sem í fl estum tilfellum
lækkar greiðslubyrði lánsins umtalsvert. Að þremur
árum liðnum hefur viðskiptavinur val um hvort
haldið sé áfram í greiðslujöfnun eða ekki. Dæmi
um lækkun á greiðslubyrði má sjá á mynd B.
Hversu mikið lengist lánið í greiðslujöfnun?
Það er óvíst en greiðslujöfnun ofan á höfuðstóls-
lækkun hefur ekki þak á lengingu lánstíma.
Hvenær get ég sótt um höfuðstólslækkun?
Byrjað verður að taka á móti umsóknum 6. nóvember
2009 og verður hægt að sækja um til og með
18. desember 2009.
Hverjir geta sótt um?
Allir viðskiptavinir Íslandsbanka með erlend
húsnæðis lán sem voru tekin fyrir 15. október 2008.
Lánið þarf að vera í skilum.
Hentar þessi lausn öllum?
Nei, hver og einn þarf að vega og meta kosti og
galla þess að breyta láni sínu með þessum hætti.
Þessi lausn hentar sumum betur en öðrum en einna
helst þeim sem hyggjast selja eign sína eða greiða
upp húsnæðislán sitt á næstu misserum.
Mun þetta kosta viðskiptavini eitthvað?
Skilmálabreyting kostar kr. 5.500 auk þinglýsingar-
gjalds en lántöku- og stimpilkostnaður er enginn.
Íslandsbanki hvetur alla til að kynna sér þá kosti
sem í boði eru og taka ákvörðun að vandlega
athuguðu máli.
Reiknivél, dæmi og ítarlegri upplýsingar er
að fi nna á www.islandsbanki.is
Þú getur lækkað
höfuðstólinn
á erlendu
húsnæðisláni
Höfuðstóll – erlend lán*
Höfuðstóll nú
Höfuðstóll eftir lækkun
20.000.000
15.000.000
Næsta greiðsla*
Greiðslubyrði nú
Greiðslubyrði
eft ir lækkun
og með
greiðslujöfnun
Greiðslubyrði
eft ir lækkun
106.000
99.000
92.000
* m.v. 20.000.000 kr. lán til 40 ára í hefðbundinni myntkörfu