Fréttablaðið - 06.11.2009, Síða 10

Fréttablaðið - 06.11.2009, Síða 10
10 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR Skíðaferðir Fleiri dagsetningar og nánari upplýsingar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Spennandi Skíðaferðir hjá Expressferðum Nýir áfangastaðir í Austurrríki Skoðaðu úrvalið, sjáðu verðið! SAMFÉLAGSMÁL Þess eru dæmi að konur sitji fastar í ofbeldis sam- búðum, þar sem þær deila óseljan- legum eignum með makanum, bæði eru með mikla skuldabyrði og þær sjá ekki fram á að geta sett á stofn og rekið nýtt heimili. Þetta segir Sigþrúður Guðmunds- dóttir, framkvæmdastýra Kvenna- athvarfsins. Hún segir þetta vera eina birtingarmynd á áhrifum kreppunnar á heimilis ofbeldi. Aðsókn að dvöl í Kvenna athvarfinu var mjög mikil fyrst eftir að krepp- an skall á en hefur verið minni það sem af er þessu ári heldur en í fyrra, að sögn Sigþrúðar. „Hins vegar koma fleiri konur í viðtöl. Við heyrum í mörgum konum sem eru að leita sér leiðar út úr ofbeldissambandi og íhuga að koma í Kvennaathvarfið. Vissu- lega höfum við alltaf öðru hvoru fengið konur sem talin hefur verið trú um að þær gætu ekki staðið á eigin fótum fjárhagslega séð. En það er vissulega oft erfiðara í ákveðnum tilvikum að hrekja þær ranghugmyndir nú en oft áður.“ Sigþrúður segir að sumar þeirra kvenna sem hafi komið í viðtöl í Kvennaathvarfinu hafi tjáð sig um að ofbeldi í samböndum þeirra hafi aukist eftir að makinn missti vinnuna eða fjárhagserfiðleikar á heimilinu tóku að aukast. Sigþrúður segir enn fremur áberandi að erlendum konum sem leita til Kvennaathvarfsins hafi fækkað mjög mikið. Í fyrra hafi þær verið um helmingur dvalar- kvenna. Fyrstu mánuðina eftir hrun hafi þær ekki sést en það sé nú að breytast aftur til fyrra horfs. „Eina skýringin á þessu sem okkur dettur í hug er sú að þær bíti frekar á jaxlinn núna og fari síður að heiman til dæmis af ótta við atvinnuleysi, þar sem dvalar- leyfi getur verið tengt atvinnuleyfi eða ótta við að geta ekki framfleytt sér. Það er því miður engin ástæða til að ætla að ofbeldi gagnvart konum hafi minnkað. Við óttumst að heimilisofbeldi aukist í tengsl- um við bágt efnahagsástand. Þrátt fyrir allt er enn sem fyrr mikil- vægt að hafa í huga að kynbundið ofbeldi á sér stað í öllum stéttum og er síður en svo bundið við efna- minni heimili, atvinnulausa eða félagslega einangrað fólk. Þeir þættir eru engu að síður áhættu- þættir sem geta leitt til ofbeldis í samböndum þar sem aðrir áhættu- þættir eru til staðar svo sem skort- ur á jafnrétti, virðingu og hæfni til að leysa úr ágreiningi á friðsam- legan hátt.“ jss@frettabladid.is Konur sitja fastar í ofbeldissambúðum Dæmi eru um konur sem sitja fastar í ofbeldissambúðum vegna kreppunnar. Þær sitja með maka í óseljanlegum eignum, bæði með skuldabyrði og sjá ekki fram á að geta stofnað nýtt heimili. Erlendar konur hurfu úr Kvennaathvarfinu. HEIMILISOFBELDI Ofbeldi er ekki tengt efnahag eða atvinnuleysi nema í samböndum þar sem aðrir áhættu- þættir eru til staðar, segir framkvæmdastýra Kvenna- athvarfsins. Þar geta slíkar aðstæður haft áhrif. LÍTT HÆRÐ Gleraugnabjörninn Dolores sést hér spássera um búr sitt í dýra- garðinum í Leipzig í Þýskalandi. Eins og sjá má er Dolores hrjáð af hárlosi. NORDICPHOTOS/AFP ALÞINGI Fram er komið í þinginu, í þriðja sinn, frum- varp til laga um heilbrigðisstarfs- menn. Nær það til allra faggreina í heil- brigðisþjónustu en nú eru í gildi sérlög um fjölda greina og aðrar starfa eftir reglugerðum. Í frumvarpinu er meðal annars kveðið á um að heilbrigðisstarfs- manni beri að virða faglegar takmarkanir sínar og vísa sjúk- lingi til annars heilbrigðisstarfs- manns þegar við á. Undirstrikað er að óheimilt sé að starfa undir áhrifum áfengis eða vímuefna og heilbrigðis stofnunum heimilað að setja reglur um bann við notk- un áfengis og vímuefna í tiltekinn tíma áður en vinna hefst. Heilbrigðisstarfsmenn eiga að gæta þess að stofna ekki til óþarfa útgjalda, hámarksaldur til að reka eigin starfsstofu verður sjö ár og heilbrigðisráðherra getur bann- að tiltekna meðferð, sýnist honum svo. - bþs Stofnanir geta sett reglur um bann við notkun áfengis í tiltekinn tíma fyrir vinnu: Ein lög fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR Áfengis- og vímuvarnaráðgjafar, félagsráðgjafar, fótaaðgerðafræðingar, geislafræðingar, hjúkrunarfræðingar, hnykkjar (kírópraktorar), iðjuþjálfar, líf- eindafræðingar, ljósmæður, lyfjafræð- ingar, lyfjatæknar, læknar, læknaritarar, matartæknar, matvælafræðingar, náttúrufræðingar í heilbrigðisþjónustu, næringarfræðingar, næringarráðgjafar, næringarrekstrarfræðingar, osteó patar, sálfræðingar, sjóntækjafræðingar, sjúkraflutningamenn, sjúkraliðar, sjúkranuddarar, sjúkraþjálfarar, stoð- tækjafræðingar, talmeinafræðingar, tannfræðingar, tannlæknar, tann- smiðir, tanntæknar, þroskaþjálfar. 33 LÖGGILTAR HEILBRIGÐISSTÉTTIR ALÞINGI Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sakaði Höskuld Þórhallsson, þing- mann Framsóknarflokksins, um að ljúga upp á sig sökum í skjóli þinghelgi í umræðum á Alþingi í gær. Höskuldur hafði sagt að Þórunn hefði kveðið upp ólögleg- an úrskurð þegar hún mælti fyrir um sameiginlegt umhverfismat á framkvæmdum vegna undirbún- ings álvers á Bakka við Húsavík. „Mér er sagt að þingmaðurinn sé löglærður,“ sagði Þórunn þegar hún kvaddi sér hljóðs í lok utan- dagskrárumræðna um álversupp- byggingu á Bakka og sagðist draga lagaþekkingu Höskuldar í efa. Hann hefði að minnsta kosti ekki kynnt sér umhverfislöggjöf. Væri úrskurður hennar ólöglegur væri væntanlega búið að fella slíkan dóm eftir meðferð hjá dómstólum. Hún hvatti þingforseta til þess að gæta þess að þingmenn „komi ekki hér upp í krafti þinghelgi sinnar og ljúgi upp á aðra þingmenn“. Höskuldur kvaðst standa við sín orð enda hefði hann verið að vísa til álits umboðsmanns Alþingis í málinu. Ástæðan fyrir því að málið fór ekki fyrir dóm væri aðeins sú að heimamenn hefðu talið að slíkt mundi skaða baráttuna fyrir álveri við Bakka þótt þeir hefðu þóst viss- ir um að vinna slíkt dómsmál. - pg Heitt í kolunum í umræðum á Alþingi um álver á Bakka: Þórunn sagði Höskuld ljúga ÞÓRUNN SVEIN- BJARNARDÓTTIR HÖSKULDUR ÞÓR ÞÓRHALLSSON Auglýsingasími – Mest lesið BÚLGARÍA Lyfjafyrirtækið Actavis gefur lyf að andvirði 60 þúsunda búlgarskra leva, eða sem nemur 5,7 milljónum króna, í mannúðar- aðstoð í Úkraínu. Þetta hefur upplýsingavefur Focus eftir til- kynningu félagsins í Búlgaríu. Meðal lyfjanna sem send verða eru sýklalyf, fjölvítamín og hósta- saft. Gjöfin verður afhent úkra- ínska sendiráðinu í Búlgaríu, en markmiðið er sagt vera aðstoð við að stemma stigu við frekari útbreiðslu flensu í landinu. Stjórnvöld í Úkraínu hafa sett á sóttkví í níu héruðum í vestur- og suðvestur hluta landsins. - óká Actavis aðstoðar í Úkraínu: Gefur lyf fyrir 5,7 milljónir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.