Fréttablaðið - 06.11.2009, Síða 34

Fréttablaðið - 06.11.2009, Síða 34
4 föstudagur 6. nóvember núna ✽ fataskápurinn Hvernig myndir þú lýsa fata- stílnum þínum? Hann er sí- breytilegur. Hann er samt að verða óhugnanlega afslappað- ur. Ég hef til dæmis ekki nennt í hæla síðan á stúdentsútskrift í maí þegar ég keypti mér voða fína skó í Topshop og var farlama daginn eftir. Kannski þarf hælapásan að fara í frí bráðum. Hver veitir þér innblástur? Alls konar fólk í kringum mig. Það er alltaf gaman að mismun- andi týpum. Hvað er efst á óskalistanum hjá þér fyrir veturinn? Ekki neitt! Þetta er viðhorf sem allir ættu að tileinka sér, bæði ódýrt og einfalt! Mig vantar reyndar sjampó. Hverjar eru uppáhaldsversl- anirnar þínar? Mér finnst Am- erican Apparel alltaf góð en svo- lítið dýr miðað við vörurnar. Mér finnst flóamarkaðir yndislegir og Kolaportið stendur alltaf fyrir sínu. Annars held ég ekki tryggð við neina sérstaka búð. Nema Kjólabúðina Fix. Hverjir eru uppáhaldsfata- hönnuðirnir þínir? Kannski bara enginn. Hvað, að þínu mati, er al- gjörlega bannað ef maður ætlar að halda í stílinn? Magabolir. Eru einhver tískuslys í fata- skápnum þínum? Já, einu sinni ég var rosalega kát með einhverjar ljósbláar, þröngar glansandi buxur sem ég keypti í Kaupmannahöfn. Kannski gef ég einhverjum þær í gríngjöf. Hvert er uppáhaldstímabilið þitt í tískunni? Misjafnt eftir dögum. Í dag er það morgun- dagurinn og ég er í öllum föt- unum sem ég verð í á morgun. - amb Sunna Kristín Hannesdóttir, listnemi EKKERT Á ÓSKALISTANUM! 1 2 3 1. Gallajakkinn er úr H&M og var keyptur með blóðugum dönskum krónum. 2. Kragi, saumatilraunaár. Ég er sjúk í hringi og kúlur af einhverjum ástæðum. 3. Útskriftarkjóllinn minn hefur tilfinningalegt gildi. Við mamma, sem er í klæðskeranámi, gerðum hann í sameiningu. 4. Röndótti jakkinn er úr Kolaportinu og var keyptur með 100 íslenskum krónum. 5. Appelsínugulur kjóll úr Kjólabúðinni Fix. 6. Lopapeysa sem var stödd hér heima og ég tók hana að mér. 7. Leðurbuxur úr Einveru, vestið hans pabba, hattur keyptur í Berlín og hálsmen frá H&M. 8. Kjóll úr Kjólabúðinni Fix sem amma mín, Kristín Eyfells, rak við Laugaveg 21 á árunum 1940-70. 4 5 6 7 8 STJÖRNUAUGU Þessi blauti augnskuggi frá Bobbi Brown er skínandi fallegur og fæst í sex glimmerlitum. Fullkominn fyrir jólaboðin. Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.