Fréttablaðið - 06.11.2009, Qupperneq 46
8 föstudagur 6. nóvember
tíðin
✽ tónlist og myndlist
„Við ætlum að sýna þrjú dans-
verk sem við höfum samið á
síðastliðnum þremur árum og
höfum ferðast með og sýnt um
alla Evrópu,“ segir Steinunn
Ketilsdóttir, um þríleik hennar
og bandaríska dansarans Brian
Gerke, Crazy Love Butter, sem
þau sýna í Hafnarfjarðarleik-
húsinu um helgina.
Á milli verka verður gleði og
glaumur sem nær hámarki með
partíi eftir sýninguna. „Við feng-
um í lið með okkur DJ og gógó-
dansara til að skemmta fólkinu á
milli atriða. Barinn verður opinn
og matur í boð. Okkur langaði að
gera skemmtilegan viðburð og
svolítið stuð úr þessu.“
Ástin er gegnumgangandi
þema verkanna þriggja. Í takti
við það verður ljósmyndari sem
tekur mynd af öllum pörum og
plötusnúðurinn spilar bara ástar-
lög, allt frá Edith Piaf til Bey-
oncé.
Brian og Steinunn eru ekki par,
þótt ástin sé þeim báðum hug-
leikin og þau hafi eytt undan-
förnum árum saman. „Við erum
danspar og bestu vinir. Við kynnt-
umst í skóla í New York árið 2004.
Brian flutti hingað í kjölfar okkar
samstarfs, því það hefur verið
nóg að gera hjá okkur við að sýna
um alla Evrópu. Nú er hann fag-
stjóri í Listaháskólanum og kom-
inn með sitt líf hér.“
Sýningarnar verða í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu á laugardags-
kvöldið klukkan 20 og kostar
1.500 krónur inn. - hhs
Steinunn og Brian sýna þríleik í Hafnarfjarðarleikhúsinu:
DJ og gógódans
á milli verka
Brian og Steinunn
Í verkinu Love Always,
Debbie and Susan.
B ók um listamanninn Davíð Örn Hall-dórsson kemur út á vegum bókaútgáf-
unnar Ókeibæ í dag. Sú heitir Ofhlæði og í
henni er að finna helstu verk Davíðs, hug-
leiðingar hans sjálfs og ljóð eftir Sjón.
„Ég á sjálfur ágætis safn af listaverkabók-
um og það skemmtilegasta sem ég geri er
að fletta þeim. Þannig að maður er þokka-
lega ánægður með sjálfan sig,“ segir Davíð,
þar sem hann var staddur á vinnustof-
unni sinni. Þar hefur hann alið manninn
flesta undanfarna daga, við undirbúning á
sýningu sem verður opnuð í Hafnarborg á
laugar daginn.
Davíð er þekktur fyrir litrík og glaðleg verk
sín en með sýningunni í Hafnarborg sýnir
hann á sér nýjar hliðar. „Ég lét meðal ann-
ars búa til veggfóður fyrir tíu metra langan
vegg upp úr mynstri sem ég hannaði fyrir
borðstofuborð með og fyrir vinafólk mitt.
Svo er ég með málverk og myndir sem ég
mála á ljósmyndir eftir frændur mína ofan
af Akranesi, feðgana Árna Böðvarsson og
Ólaf Árnason. Á þessari sýningu er ég að
vinna hugmyndirnar lengra en venjulega
og í meira samstarfi við aðra, sem er mjög
spennandi.“
holmfridur@frettabladid.is
MYNDLISTARMAÐURINN DAVÍÐ ÖRN HALLDÓRSSON UNDIRBÝR SÝNINGU OG BÓKAÚTGÁFU:
BÓK UM DAVÍÐ ÖRN KEMUR
Á vinnustofunni Davíð Örn Halldórsson myndlistarmaður leggur lokahönd á verk fyrir sýningu sem verður opnuð í Hafnarborg á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HÚÐ SEM GLÓIR Creme scintillante frá Occitane er dásamlegt
mýkjandi rakakrem með litlum gullögnum. Fagurt á nakta handleggi.
Úrval af vítamínum og bætiefnum.
BYGGÐU ÞIG UPP!
Hólmfríður Magnúsdótti
r
atvinnumaður og landsl
iðskona
í knattspyrnu mælir með
NOW