Fréttablaðið - 06.11.2009, Side 70
46 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Sú ákvörðun Marcus
Jordan, sem er sonur Michaels
Jordan, að spila í Air Jordan-
skóm frá Nike hefur skapað mik-
inn usla í háskólanum hans, Uni-
versity of Central Florida.
Þannig vill til að Adidas er með
samning við skólann og þurfa
allir leikmenn og starfsmenn
liðsins að spila í Adidas.
Það tekur Marcus ekki í mál.
Hann segist aðeins vilja spila í
Air Jordan því skórnir hafa sér-
staka þýðingu fyrir fjölskyldu
hans.
Marcus spilaði í skónum í
æfingaleik á miðvikudag og í
kjölfarið ákvað Adidas að rifta
samningi sínum við skólann.
Talsmaður háskólans sagði
ákvörðun Adidas valda sér von-
brigðum en skólinn hafði verið í
samstarfi við íþróttavörufram-
leiðandann í fjögur ár. Eitt ár var
eftir af núverandi samningi.
Marcus er á fyrsta ári í háskóla
og eiga blaðamenn klárlega eftir
að fylgjast grannt með gengi
hans á vellinum. - hbg
Adidas hættir hjá háskóla:
Sonur Jordans
neitar að spila í
Adidas
PABBINN Marcus vill bara spila í skóm
með nafni föður síns.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Þátttaka Liverpool í
Meistaradeild Evrópu hangir á blá-
þræði og liðið hefur átt í miklum
vandræðum í ensku úrvalsdeild-
inni síðustu vikur. Liðið er þar að
auki þegar fallið úr leik í ensku
deildabikarkeppninni og hefur
unnið aðeins einn af síðustu átta
leikjum sínum.
Liverpool gerði í fyrrakvöld 1-1
jafntefli við Lyon á útivelli í Meist-
aradeild Evrópu. Liðið þarf nú að
stóla á hagstæð úrslit í öðrum
leikjum og vinna báða þá leiki
sem eftir eru í riðlinum til að eiga
möguleika á að komast áfram í 16-
liða úrslit. Ef það tekst ekki yrði
um fjárhagslegt stórslys að ræða
en Liverpool er nú þegar skuldsett
upp í topp.
Graeme Souness, fyrrverandi
leikmaður og knattspyrnustjóri
Liverpool, bendir á að flest önnur
félög væru nú þegar búin að reka
Benitez miðað við árangur liðsins.
Eytt gríðarmiklu í leikmannakaup
„Hann hefur verið hjá liðinu í
fimm ár og á þeim tíma hefur
hann eytt meiri peningum í leik-
mannakaup en nokkurt annað lið
á Englandi að Chelsea frátöldu. Ef
hann væri stjóri einhvers annars
liðs, sérstaklega einhvers stórlið-
anna eins og Manchester United,
Arsenal eða Chelsea, væri búið að
reka hann,“ sagði Souness í viðtali
á Sky-sjónvarpsstöðinni.
Hann segir að meiðsli lykil-
manna eins og Steven Gerrard og
Fernando Alonso hafi sýnt hversu
misheppnuð leikmannakaup Benit-
ez hafa verið í gegnum tíðina.
„Þeir leikmenn sem standa fyrir
utan byrjunarliðið eru ekki nógu
góðir til að vinna leiki eins og
gegn Lyon. Lyon er ekki frábært
lið. Það vann Liverpool á Anfield
og tapaði svo næsta leik í frönsku
úrvalsdeildinni, 4-1 fyrir Nice,“
sagði Souness.
Benitez ekki allt í einu óhæfur
Ekki eru þó allir sömu skoðun-
ar og Souness. John Aldridge,
fyrrverandi leikmaður Liverpool,
segir að það myndi gera illt verra
ef Benitez yrði rekinn.
„Rafa Benitez er ekki orðinn að
slæmum knattspyrnustjóra í einni
svipan. Ég er nokkuð viss um að
þegar Steven Gerrard og fleiri
verða orðnir heilir af meiðslum
sínum verði leikmannahópurinn
nægilega sterkur til að koma liðinu
í hóp fjögurra efstu liða deildar-
innar og vinna báða leikina sem
liðið á eftir í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar. Það dugar vonandi
til að liðið komist áfram.“
Aldridge segir að frammistaða
Liverpool gegn Lyon sé merki um
að Benitez eigi enn erindi sem
knattspyrnustjóri liðsins.
„Þetta gekk allt fullkomlega
eftir áætlun þar til á 90. mín-
útu leiksins,“ sagði Aldridge en
þá jafnaði Lyon metin í leiknum.
„Liðið spilaði vel og varðist vel og
Lyon skapaði sér ekki neina hættu
nema þegar það skoraði markið.
Það voru gríðarleg vonbrigði að fá
þetta mark á sig.“
Þolinmóðir stuðningsmenn
Ástæðan fyrir því að Benitez hang-
ir í starfi, samkvæmt Souness, er
að stuðningsmenn Liverpool eru
ekki eins og stuðningsmenn ann-
arra liða. „Ég held að þeir séu
þolin móðari og reiðubúnir að gefa
stjóranum aðeins meiri tíma.“
Aldridge tók í sama streng.
„Óvissan í kringum félagið er
nægilega mikil fyrir. Það síðasta
sem þeir vilja er að hefja leit að
nýjum knattspyrnustjóra.“
eirikur@frettabladid.is
Á HLIÐARLÍNUNNI Skiptar skoðanir eru um hvort Rafael Benitez eigi áfram að stýra liði Liverpool. NORDIC PHOTOS/AFP
Flest lið væru búin að reka Benitez
Graeme Souness, fyrrverandi leikmaður og knattspyrnustjóri Liverpool, segir að flest önnur félög, sérstak-
lega stórliðin í enska boltanum, væru búin að reka Rafael Benitez miðað við árangur hans að undanförnu.
BOX Margir bíða spenntir eftir
þungavigtarbardaga Bretans
Davids Haye og Rússans Nikolay
Valuev en þeir mætast í Þýska-
landi á laugardagskvöldið. Tala
menn um bardaga Davíðs gegn
Golíat, því Rússinn er 2,13 senti-
metrar á hæð en Haye er „aðeins“
1,90 sentimetrar á hæð.
Haye hefur verið í fullri vinnu
við það síðustu vikur að pirra
Rússann en leitun er að eins
kjaftforum íþróttamanni og Bret-
anum. Haye hefur gert grín að
útliti og hreinlæti Rússans svo
fátt eitt sé nefnt.
Haye hefur lýst því yfir að
hann ætli að verða fyrsti maður-
inn í sögunni til þess að rota
Rússann stóra, sem hefur aðeins
tapað einu sinni í 51 bardaga.
„Það er ekkert nýtt að einhver
segist ætla að rota mig. Það er
auðvelt að rífa kjaft fyrir bardag-
ann en annað að sýna eitthvað í
hringnum,“ sagði Valuev. Hann
mun ekki fá stundarfrið síðustu
tímana fyrir bardagann enda
hefur Haye flutt á hótel gegnt
hótelinu sem Valuev verður á og
mun líklega láta í sér heyra yfir
götuna. - hbg
David Haye og Nikolai Valuev mætast á laugardag:
Styttist í bardaga
Davíðs gegn Golíat
LITLI OG STÓRI Þó svo að David Haye sé 1,90 sentimetrar á hæð er hann eins og
smábarn við hliðina á Rússanum stóra. NORDIC PHOTOS/AFP
> Stórleikur í Subway-bikar karla í kvöld
Fjórir leikir fara fram í 32-liða úrslitum Subway-bikars
karla í körfubolta í kvöld og þar ber vitanlega hæst stór-
leik Njarðvíkur og KR í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Þetta
verður í annað skiptið á tæpri viku sem liðin eigast við
en Njarðvíkingar lögðu Íslandsmeistarana að
velli í Iceland Express-deildinni
á heimavelli sínum á sunnu-
dag. Það var jafnframt
fyrsta tap KR í deildinni
en Njarðvíkingar eru
enn taplausir þar.
FÓTBOLTI Rafa Benitez, stjóri
Liverpool, segir að ekki verði
tekin ákvörðun strax um hvort
senda eigi stjörnur liðsins, Fern-
ando Torres og Steve Gerrard, í
aðgerð.
Báðir hafa verið meiddir í
nokkurn tíma. Gerrard hefur
ekki getað spilað síðustu leiki
á meðan Torres spilar sárþjáð-
ur en hann var afar illa haldinn
í leiknum gegn Lyon í Meistara-
deildinni.
Báðir munu vinna áfram með
sjúkraþjálfurum og verða ekki
sendir í aðgerð nema nauðsyn
krefji.
„Þeir vilja bíða og sjá hvað
gerist. Það verður engin ákvörð-
un tekin um aðgerð strax. Við
sjáum hvaða framförum þeir
taka áður en við tökum ákvörðun
með næstu skref,“ sagði Benitez.
- hbg
Gerrard og Torres:
Beðið með
aðgerðir
Markvarðahrellirinn Hjörtur Júlíus Hjartarson hefur ákveðið
að spila með 1. deildarliði ÍA næsta sumar en hann var áður
búinn að gefa það út að hann myndi hætta eftir síðasta tímabil.
Hjörtur lék með Þrótti í Pepsi-deildinni framan af síðasta sumri.
Hann ákvað svo að fara á láni til Selfoss og átti sinn þátt í að
hjálpa liðinu að vinna sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti í sögu
félagsins með því að skora sjö mörk í tíu leikjum. Hjörtur skrif-
ar í dag undir eins árs samning við ÍA en hann er uppalinn
Skagamaður og lék síðast með liðinu árið 2006.
„Þórður [Þórðarson, þjálfari ÍA] hringdi í mig skömmu
eftir að móti lauk síðasta sumar og spurði hvort ég
hefði áhuga á að halda áfram að spila en ég var ekki
alveg á þeim buxunum þá. Við töluðum hins vegar aftur
saman nýlega og funduðum saman og mér leist bara
það vel á það sem hann stefnir á að gera með liðið að það
var í raun og veru bara spurning um að ganga frá lausum
endum. Ég hefði aldrei farið í annað lið en ÍA og vildi
náttúrlega ekkert fara frá liðinu á sínum tíma. Guðjón Þórðar-
son tók bara við liðinu og hann vildi ekkert sjá mig en ég
erfi það samt ekkert við hann. Hann hafði bara sínar áherslur
og ég mínar og það leystist bara eins og það leystist. Ég fór í
Þrótt og naut þess að spila þar líkt og ég gerði með Selfossi
síðasta sumar. Ég sé ekki eftir neinu,“ segir Hjörtur.
Hinn 35 ára gamli framherji vonast til þess að geta hjálp-
að ungu liði ÍA að komast aftur á fyrri stall og viðurkennir
að það hafi verið sárt að sjá liðið í fallbaráttu 1. deildar
síðasta sumar.
„Ég fór á nokkra leiki með liðinu síðasta sumar og
það var einfaldlega lélegt. Það er ástæðulaust að vera
að sykurhúða það eitthvað. Maður nánast grét sig í
svefn eftir að hafa fylgst með þessu. Það var samt allt
annað að sjá til liðsins í lok tímabilsins. Vonandi nær
maður að hjálpa til næsta sumar. Mitt hlutverk verður
væntanlega að miðla reynslu til yngri leikmanna liðsins
en ég held að þjálfarinn vilji nú sjá mig skora eitthvað af
mörkum líka. Ég verð ekki bara gamli maðurinn í búnings-
klefanum að segja einhverjar frægðarsögur frá því að ég
var ungur,“ segir Hjörtur á léttum nótum.
HJÖRTUR JÚLÍUS HJARTARSON: ER HÆTTUR VIÐ AÐ HÆTTA OG SNÝR AFTUR Á FORNAR SLÓÐIR UPPI Á SKIPASKAGA
Vildi aldrei fara frá Skaganum á sínum tíma