Fréttablaðið - 06.11.2009, Page 80
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000
Mest lesið
VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
1 Íslensk kona eftirlýst í
Bandaríkjunum
2 Linda skildi marga eftir fjárhags-
og tilfinningalega gjaldþrota
3 Var Lenín framsóknarmaður?
4 Magnús Þór: Hefur áhyggjur
af dóttur sinni
5 Búið að handtaka íslensku
konuna í Bandaríkjunum
Segðu það bara aftur!
Sprækar umræður urðu í lok blaða-
mannafundar í Seðlabankanum í
gær þar sem seðlabankastjórarnir
Arnór Sighvatsson og Már Guð-
mundsson, auk Þórarins G. Pét-
urssonar aðalhagfræðings, sátu
fyrir svörum. „Hefur þú einhverju
við þetta að bæta?“ spurði Már
Þórarin. „Nei, þetta var nú eigin-
lega það sem ég ætlaði að segja,“
svaraði hann. „Nú segðu það
þá bara aftur,“ datt þá út úr
Má, sem uppskar hlátur fyrir.
Seðlabanka-
stjórarnir hafa
báðir gegnt
stöðu aðalhag-
fræðings áður.
Loksins svarað af viti
Sérfræðingar sem sækja fundi í
Seðlabankanum gráta ekki breytta
yfirstjórn. Þannig varð einum að orði
eftir fundinn í gær að munur væri
að fá svör sem innihéldu meira en
endurtekningu á frösum. Þá hefur
breyting í brúnni haft enn frekari
endurnýjun í för með sér. Núna
hefur rauða veggteppið sem prýtt
hefur ljósmyndir úr fundarsal bank-
ans um árabil (og sést hér að neðan
að baki Sveins Haralds Øygard,
Íslandsvinar og fyrrverandi
seðlabankastjóra)
verið látið fjúka
en í staðinn
sett upp
merki
bankans.
Stjörnusættir!
Sættir náðust í máli söngkonunnar
Ruthar Reginalds (44) gegn útgáfu-
félaginu Birtíngi í Héraðsdómi í
gær. Málið hefur staðið frá því Séð
og heyrt sagði Ruth eiga í deilum
við nágranna sína: „Stjörnustríð á
Kleppsvegi!“ Ruth stefndi útgáfu-
félaginu í kjölfarið fyrir meiðyrði.
Ekki var krafist refsingar í málinu en
dómari dæmdi þá Eirík Jónsson, rit-
stjóra Séð og heyrt, og blaðamann-
inn Atla Má Gylfason til að greiða
Ruth þrjú hundruð þúsund krónur
í miskabætur. Þá voru ummæli
sem höfð voru eftir viðmælendum
í greininni dæmd ómerk og blaðið
skikkað til að birta afsökunarbeiðni
í blaðinu. - óká, jab
Svansmerkt
prentverk