Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 08.06.1961, Qupperneq 31

Vikan - 08.06.1961, Qupperneq 31
Sveinn Bjðrnsson hafði & þessum sömu vikum samið bréf sin til ríkis- stjórnarinnar og varað við njósnum Þjóðverja. Bréf sendiherrans voru dagsett 2., 10. og 28. marz, en sendi- nefndin kom til Reykjavíkur 20. Dr. Matthías: Er viljinn frjáls. Framhald af bl. 13. Fregnin um þau málalok, að Þjóðverjum hefði verið synjað um flugvallaleyfi, flaug á svipstundu út um öll lönd. Víða um Norðurálfu tóku blöðin þetta sem einhverja merk- ustu fregn þeirra daga. Fluttu þau tíðindin á forsiðum og létu sum þess getið, að þetta væri fyrsta landið, sem segði algert nei við kröfum Hitlers til landa og til samninga um fríðindi. Og eftir að styrjöldin var skollin á, létu enskir hernaðarsér- fræðingar í ljós, að þessi afstaða Is- lands hefði haft óútreiknanlega mikla hernaðarlega þýðingu. 1 annarri grein, sem fjallar um þessi mál, verður greint að nokkru frá leynistöðvum dr. Gerlachs og leyniskeytum, er hann sendi, hand- töku hans að Túngötu 18, og um Þjóðverjann Lehrmann, sem fór huldu höfði um Vestfirði, en var loks handtekinn í tjaldi sinu vestur I Patreksfirði. Lubitil Sputnik vélin Heildsölubirgðir Ejríkir’Ketibson Garðarstræti 2. TRULOFUNARHRINGAR afgrtiddir samdægurs H4LLD€B^ Skólavörðustíg 2. VALDÞVINGUN OG SIÐGÆÐI. Samt sleppir mannkynið aldrei trúnni á frelsi viljans. Hún er afl- gjafinn í allri siðgæðisviðleitni okk- ar. Það verður heldur aldrei sann- að, að viljinn sé ekki frjáls. Til þess liggja ákveðnar rökfræðilegar ástæð- ur, sem of flókið yrði að rekja hér. Hins vegar kann einnig að reynast örðugt að sanna, að viljinn sé frjáls. Til frjálsræðisins henda þó afar- sterkar líkur. En viljinn er e-kki ávailt og að öllu leyti frjáls. Hann er bundinn margs konar likamlegum, sálrænum og samfélagslegum forsendum. En hann getur verið frjáls, og við og við hefst vilji hvers manns úr höft- um og tekur ákvörðun sina frjáls. Þetta kostar þó áreynslu og sjálfs- afneitun. Frelsi viljans er ekki eig- inleiki, sem við værum gædd í eitt skipti fyrir öll, heldur réttindi og aðall, sem við þurfum alltaf að á- vinna okkur að nýju. Ævi sumra manna líður fram eins og lækur á sléttri grund. Þeir finna þá engan mun, hvort þeir eru frjáls- ir eða þokast áfram í mjúku hafti vanans. Lífi annarra mætti fremur likja við jarðskjálfta. Þeim kemur frelsið til vitundar í einum svip. Af sviðanum undan ánauðarhlekkj- unum verður mörgum manni fyrst ljóst, að eðli hans er frelsi. 'En frels- isvitundin er það, sem fyrst og fremst gerir mannlífið þess virði, að því sé lifað. Og hún stælir við- nám okkar gegn kúgunaröflunum. Óbifanleg sannfæring einstaklings- ins, að hann sé í eðli sínu frjáls, knýr hann til baráttu gegn undirok- un, til baráttu fyrir frelsi allra manna. Því ljósari vitund sem við höfum um frelsi viljans, þvi virkari verður andstaða okkar gegn þeim öflum, sem vilja ræna okkur því. Og þetta hugarfar er mikilvægt fyr- ir frelsi og siðgæði mannkynsins í heild. Verstu glæpir mannkynssög- unnar, fjöldamorð i útrýmingar- skyni, væru alls ekki framkvæman- legir nema af því, að mikill fjöldi allt of auðsveipra þegna lætur sefj- ast og kúgast til þeirrar iægstu þrælkunar að vera morðingi og böðull gegn vilja sínum. Drengjabúðir í Reykholti. Framhald af bls. 25. fyrir þessa starfsemi í samráði við Þóri Steinþórsson skólastjóra. Ætlunin er, að haldin ve.rði þrjú tíu daga námskeið, tvö vikunám- skeið og tvö helgarnámskeið fyrir menn, sem stunda vinnu. Það er nýbre-ytni, og vilja umsjónarmenn leggja sérstaka áherzlu á þann þátt starfseminnar. Þátttakendur á helg- arnámskeiðunum verða að miklu leyti frjálsir, en nokktir atriði verða skipulögð. Á liinum námskeiðunum verða helmingi fleiri en í fyrra, og eru allar upplýsingar veittar á skrifstofu ÍSÍ að Grundarstíg 2. Svipað fyrirkomulag verður á þess- um námskeiðum og í fyrra, en að auki mun einhver góður knatt- spyrnumaður verða á staðnum og leiðbeina í knattspyrnu. Ef til vill verða þar einnig tveir Bretar, og munu þeir kenna og æfa útileiki. SuiDArffltAtíxfcfln 1961 1 |!|||||||: III

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.