Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 81
ÍsAm er eitt stærsta og öflugasta markaðs-og framleiðslufyrirtæki landsins á neytendavörumarkaði.
ÍsAm á og rekur vörumerkin Mylluna, Ora, Kexsmiðjuna og Frón auk þess sem fyrirtækið hefur
umboð fyrir heimsþekkt vörumerki eins og Gillette, Duracell, Pampers, Always, Ariel, BKI, Finn
Crisp, Oscar, Marlboro, Ping ofl. Hjá fyrirtækinu starfa 330 manns. Stefna ÍsAm er að ráða fólk
með rétta blöndu af hæfni, menntun, persónuleika og metnaði til að ná árangri.
Vörumerkjastjóri
- tímabundin ráðning
Íslensk Ameríska leitar að öflugum vörumerkjastjóra í Procter & Gamble
deild fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi tímabundið starf
og er ráðningatími janúar til október 2010.
Helstu verkefni
• Markaðssetning vörumerkja deildarinnar
• Samskipti við enskumælandi birgja
• Skipulag og umsjón markaðsherferða og kynninga
• Ýmsir útreikningar s.s. verð- og framlegðarútreikningar
• Skýrslugerð og eftirfylgni áætlana
• Uppsetning og hönnun markaðsgagna
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar og hæfniskröfur
• Viðskiptamenntun og/eða góð þekking og reynsla af
sambærilegum störfum á heildsölumarkaði
• Talnagleggni, áreiðanleg og nákvæm vinnubrögð
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
• Góð tölvukunnátta, sérstaklega Excel, Photoshop, InDesign, PPT
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Gilt bílpróf og bíl til umráða
Nánari upplýsingar veitir Helga B.Helgadóttir starfsmannastjóri í síma
522 2700. Umsóknir skulu sendast á póstfangið helga@isam.is eða
bréfleiðis til ÍsAm, Tunguhálsi fyrir 28.desember.
Íslensk Ameríska • Tunguháls 11 • 110 Reykjavík • Sími 522 2700 • www.isam.is
Au pair í Sviss
Íslensk hjón í Genf í Sviss (frönskumælandi hlutinn)
óska eftir hlýrri og barngóðri stúlku, 19 ára eða eldri, til
að gæta tveggja drengja (f. 1998 og 2008) og sinna léttum
heimilisstörfum. Fyrirspurnir sendist á vetro71@gmail.com Mannauðsstjóri ÁTVR
Helstu verkþættir:
· Ráðgjöf til stjórnenda í mannauðstengdum málum
· Mat á mannaflaþörf, skipulag og umsjón með ráðningum
· Eftirfylgni með mannauðsstefnu
· Samskipti við stéttarfélög og þátttaka í gerð kjarasamninga
· Umsjón með og þróun á frammistöðumatskerfi
· Ábyrgð á launavinnslu
Hæfniskröfur og eiginleikar:
· Háskólamenntun er skilyrði
· Framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála er æskileg
· Starfsreynsla á sviði mannauðsmála er kostur
· Mjög góð tölvukunnátta, þekking á Oracle er kostur
· Samstarfshæfni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
· Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
og skipulagshæfileikar
Stefna ÁTVR er að vera framúrskarandi þjónustufyrirtæki og þekkt
fyrir samfélagslega ábyrgð. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé
lifandi og skemmtilegur þar sem þjónusta og samskipti einkennast af
lipurð, þekkingu og ábyrgð. vinbudin.is
ÁTVR leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að taka að sér
ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf mannauðsstjóra.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ - ÞEKKING - ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu munu taka
mið af þessum gildum.
Upplýsingar veita:
Kristín Guðmundsdóttir,
kristin@hagvangur.is og
Inga S. Arnardóttir,
inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík veitir yfir 440 nemendum menntun á sviði tölvunarfræða og skyldra
greina, í grunn-, meistara- og doktorsnámi, og er deildin sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Sjö rannsóknarhópar
og rannsóknarsetur eru starfrækt við deildina en helstu rannsóknarsviðin eru gervigreind, hugbúnaðarverkfræði,
gagnasöfn, máltækni, og fræðileg tölvunarfræði, auk fléttufræði.
Markmið tölvunarfræðideildar er að bjóða nemendum krefjandi nám í framsæknu og skapandi umhverfi. Lögð er
áhersla á alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir, framsækna kennsluhætti og sterk tengsl við atvinnulífið. Deildin
býður upp á alþjóðlegt rannsóknar- og starfsumhverfi, og nemendur deildarinnar geta nýtt sér möguleika til
skiptináms við yfir 40 erlenda samstarfsháskóla.
Leitað er að leiðtoga til að stýra öflugum hópi starfsmanna við upbyggingu og framþróun öflugrar og metnaðarfullrar
deildar. Deildarforseti ber ábyrgð á akadamísku starfi og rekstri deildarinnar, situr í framkvæmdastjórn Háskólans
í Reykjavík og heyrir beint undir rektor HR.
HÆFNISKRÖFUR:
Doktorspróf í tölvunarfræði eða skyldum greinum.
Umfangsmikil reynsla af kennslu og rannsóknum.
Forystu- og stjórnunarhæfileikar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Bjarnadóttir hjá Háskólanum í Reykjavík (s. 599 6200, asta@ru.is).
Umsóknum skal skilað til Háskólans í Reykjavík á netfangið appl@ru.is, í síðasta lagi 1. febrúar nk. Fylgigögn skal
senda til Háskólans í Reykjavík, b.t. Ástu Bjarnadóttur, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.
Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði.
Akademískar deildir skólans eru fimm: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og
verkfræðideild og viðskiptadeild.
Háskólinn í Reykjavík er samfélag yfir 3000 nemenda og yfir 500 starfsmanna og stundakennara. Um helmingur
kennara er virkur í íslensku atvinnulífi og einn af hverjum sex akademískum starfsmönnum kemur erlendis frá. Nám
í öllum deildum Háskólans í Reykjavík er framsækið, tekur mið af því sem best gerist á alþjóðavettvangi og er í
stöðugri þróun. Háskólinn býður nú upp á tæplega 800 námskeið á ári, um 600 í grunnnámi og 200 á meistara- og
doktorsstigi, og mætir þannig þörfum nemenda og atvinnulífs.
FORSETI
TÖLVUNARFRÆÐIDEILDAR
HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA
FORSETA TÖLVUNARFRÆÐIDEILDAR
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki