Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 10
10 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
ILL MEÐFERÐ Á MOSKU Morgun einn
í vikunni beið múslima, sem sækja
mosku í bænum Castres í Frakklandi,
þessi ófagra sjón: í skjóli nætur höfðu
skemmdarvargar málað á hurðina
hakakross og hengt á hana bæði
svínseyru og svínsfætur. NORDICPHOTOS/AFP
· Stór snertiskjár
· 5MP myndavél
· Tónlistaspilari
· Spilar Divx kvikmyndir
· Styður 3G háhraðanet
Þinn fyrsti LG
Glæsilegur farsími
með snertiskjá
Það er minna mál að skipta
um banka en þú heldur.
Hafðu samband
í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · www.mp.is
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Netgreiðsluþjónusta
Gjaldeyrisreikningar
Sparnaðarreikningar
Yfirdráttur
Debetkort
Launareikningur
Kreditkort
Netbanki
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Við bjóðum nákvæmlega
jafn margar tegundir af
debetkortum og fólk þarf.
Eina.
Sigríður Einarsdóttir, þjónustustjóri
PÓLLAND, AP Yfirskriftin alræmda
„Arbeit macht frei“, eða „Vinnan
gerir yður frjáls“, hvarf af hliði
útrýmingarbúðanna í Auschwitz
í Póllandi í fyrrinótt. Í gegnum
þetta hlið smöluðu þýskir nasist-
ar fórnarlömbum sínum, sem flest
létu lífið í búðunum eftir að hafa
mátt þola þrælkun og harðræði af
verstu gerð.
Skiltið er fimm metra langt, gert
úr járni og vegur fjörutíu kíló. Svo
virðist sem því hafi verið stolið á
milli klukkan 3.30 og 5 í fyrrinótt.
Af fótsporum í snjónum má ráða að
þrír menn hafi verið að verki. Þeir
hafi borið skiltið þrjú hundruð metra
leið út að girðingu, farið í gegnum
gat á henni og ekið þaðan á brott
með bifreið sem beið eftir þeim.
„Ef þeir eru prakkarar eru
þetta sjúkir prakkarar, eða ein-
hver með pólitísk markmið. En
hver sem hefur gert þetta hefur
vanvirt heimsminjar,“ segir
Michael Schudrich, æðsti rabbíni
Póllands.
Hann segir hugsanlegt að nýnas-
istar hafi stolið skiltinu, eða jafn-
vel einhver sem ætli að selja það
á svörtum markaði. „Það er til
markaður fyrir allt.“
Áður hafa verið unnin skemmdar-
verk í Auschwitz, en aldrei neitt í
líkingu við þetta.
Þýskir nasistar settu upp útrým-
ingarbúðir í Auschwitz árið 1940
eftir að hafa hertekið Pólland.
Meira en milljón manns voru myrt
þar á stríðsárunum. - gb
Spellvirki unnið á útrýmingarbúðunum í Auschwitz:
Alræmdri yfirskrift
stolið í skjóli nætur
VINNAN GERIR YÐUR FRJÁLS Starfsmenn minjasafnsins í Auschwitz voru fljótir að
setja upp nákvæma eftirlíkingu af skiltinu, sem gerð var þegar viðgerð fór fram fyrir
nokkrum árum. NORDICPHOTOS/AFP
Auglýsingasími
– Mest lesið
NEYTENDUR Samkeppniseftirlitið
sektaði Símann í gær um 150 millj-
ónir króna vegna brota á skilyrð-
um um bann við sölu á samþættri
fjarskipta- og sjónvarpsþjón-
ustu, auk þess sem fyrirtækið
hafi raskað samkeppni frá minni
keppinautum.
„Ég hélt að þetta mál ætlaði
engan endi að taka. Nú þarf ég
að skoða niðurstöðuna og kanna
hvort ég krefjist einhverra bóta,“
segir Magnús Soffaníasson, eig-
andi fjarskiptafyrirtækisins TSC
á Grundarfirði. Hann kærði Sím-
ann vegna markaðsmisnotkunar í
maí árið 2007.
Magnús byggði upp háhraðanet
á vestanverðu Snæfellsnesi óháð
Símanum árið 2005 með það fyrir
augum að gera íbúum þar kleift að
sjá leiki í ensku knattspyrnunni
sem Skjár einn sendi út. Aðeins
var hægt að sjá útsendingu Skjás
eins þá í gegnum ADSL-tengingu.
Á sama tíma og Magnús var að
byggja kerfið upp ákvað Síminn að
byggja upp dreifikerfi sitt á sama
svæði og bjóða upp á útsendingar
Skjás eins.
„Grunnur fyrirtækis okkar
hvarf við þetta og öll mín fjárfest-
ing komst í uppnám. Reksturinn
hefur ekki staðið undir sér síðan
þetta gerðist og hef ég keyrt fyrir-
tækið áfram á lánsfé,“ segir Magn-
ús og bendir á að hann hefði vel
getað farið fram á gjaldþrot sökum
slæmrar stöðu. Það hafi hann ekki
viljað. - jab
HÖFUÐSTÖÐVAR SÍMANS Rekstrargrund-
völlur TSC á Grundarfirði hvarf þegar
Síminn ákvað að byggja upp háhraðanet
sitt þar fyrir þremur árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Síminn kippti fótunum undan fjarskiptafyrirtæki á Snæfellsnesi árið 2007:
Sektaður um 150 milljónir
FÉLAGSMÁL Bið kjörforeldra eftir
því að ættleiða öðru sinni styttist
um sex mánuði með nýrri reglu-
gerð dómsmálaráðherra.
Kjörforeldrar geta nú lagt
fram beiðni um forsamþykki frá
íslenskum stjórnvöldum sex mán-
uðum eftir heimkomu ættleidds
barns, en þurftu áður að bíða í
tólf mánuði.
Þá er ekki lengur gerð krafa
um að hafa lokið undirbúnings-
námskeiði fyrir kjörforeldra áður
en forsamþykki er veitt, hafi slíkt
námskeið ekki verið haldið frá
því sótt var um. Þá dugir að fara
á fyrsta námskeið sem haldið er
eftir að forsamþykki er veitt. - bj
Reglugerð um ættleiðingar:
Styttir bið eftir
öðru barni