Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 52
52 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
A
llt í þessari bók er
eins og talað út úr
mínu hjarta,“ segir
Ásdís Olsen, aðjúnkt
við Háskóla Íslands,
sem ásamt eigin-
manni sínum, Karli Ágústi Úlfssyni,
hefur veg og vanda af útgáfu bókar-
innar Meiri haminga. Viðtökurnar
sem bókin hefur fengið hafa farið
fram úr öllum vonum og væntingum
en hún velti Arnaldi Indriðasyni úr
sessi á metsölulista Eymundsson í
vikunni. Ásdís segir þau hjónin ekki
hafa átt von á þessum viðtökum.
Þær sýni hins vegar glöggt að fólk
er til í breytingar og mannlegi þátt-
urinn á upp á pallborðið. „Það er allt
galopið fyrir persónulegu víddina
núna. Það skiptir orðið máli hvernig
okkur líður í daglega lífinu, hvaða
gildi við höfum og hvernig okkur
tekst upp í samskiptum.“ Þetta eru
sömu stef og spiluð eru í lífsleikn-
inni, sem Ásdís er sérfróð um. Þessi
jákvæða sálfræði, sem bókin snýst
um og Ásdís kallar „nýja bylgju“,
byggist á vísindalegum rannsókn-
um og fjallar um heilbrigði og ham-
ingju venjulegs fólks í daglegu lífi.
Sjálfsskoðun
Ásdís hefur verið að vinna á for-
sendum jákvæðu sálfræðinnar
um nokkurt skeið. Hún hefur sér-
staka trú á ástundun gjörhygli, sem
er ein þeirra aðferða sem notaðar
eru í því skyni að öðlast hugarró,
kynnast sjálfum sér og efla meðvit-
und á líðandi stundu. Einnig segir
hún mikilvægt að skoða huga sinn,
hugsanaskekkjur og áhrif hugsana
á líðan og hegðun. Þessi atriði hefur
Ásdís innleitt í kennslu í lífsleikni
sem hún kennir á menntavísinda-
sviði Háskólans. „Þar fá nemendur
tækifæri til að fara í sjálfsskoðun
sem byggir á þessari jákvæðu sál-
fræði. Í lífsleikninni erum við að
vinna með félags- og tilfinninga-
þroska, sem er nokkuð sem ekki
allir treysta sér í án sérstaks und-
irbúnings. En þessi sjálfsskoðun
gefur ótrúlega góða raun og þeir
sem takast á við hana með mark-
vissum hætti fá nýja sýn á sjálfa
sig og lífið.“
Naflaskoðun í háskóla
Ásdís hafði fylgst með þróun
jákvæðu sálfræðinnar um hríð,
en féll alveg fyrir framsetningu
höfundar bókarinnar Meiri ham-
ingju, Tal Ben-Shahar. Hann kenn-
ir vinsælasta námskeið allra tíma
í Harvard-háskóla og skrifar met-
sölubækur þess á milli. Ásdís og
nokkrir aðrir fagaðilar fengu tæki-
færi til að sitja þetta námskeið hjá
doktornum síðasta sumar. „Við
tókum tólf vikur í þetta og áttum
stórkostlegar stundir saman. Við
hugðumst fyrst bara styrkja okkur
faglega en lögðumst öll í bullandi
naflaskoðun, eins og bókin býður
upp á. Tal miðlar þessum fræðum
einstaklega skemmtilega og það er
engin leið að vera ósnortinn. Snilli-
gáfa hans felst í því að hann tekur
vísindin úr fílabeinsturninum og
gerir þau aðgengileg almenningi og
svo hefur hann mikla hæfileika til
að miðla. Hann segir sögur, býr til
slagorð, og er einstaklega snjall við
að hrífa mann og drífa til að bæta
sjálfan sig og heiminn.“
Horft á þá hamingjusömu
Út á hvað gengur annars þessi
jákvæða sálfræði? „Hún byggir í
stuttu máli á því að rannsaka það
sem gengur vel – skoða mannlega
möguleika og hvernig þeir fara að
sem eru sáttir og hamingjusamir
og læra af þeim, en láta öðrum eftir
að skoða vandamál og sjúkdóma.
Fókusinn er settur á styrkleikana
og það sem virkar og gengur upp.
Þetta er kallað heilsumódelið sem
er þá andstaðan við sjúkdómsmód-
elið sem við höfum verið svo upp-
tekin af – að greina og skoða vanda-
mál og einblína á það sem aflaga
fer, “ segir Ásdís. „Það var Martin
Seligman, fyrrum forseti Banda-
ríska sálfræðingafélagsins, sem
setti þessa jákvæðu bylgju af stað
fyrir um tíu árum, og þetta hefur
verið að vinda upp á sig síðan. Rétt
eins og hægt er að pumpa vöðvana
og styrkja þá er hægt að styrkja
hamingjusvæðin í heilanum. Ef
maður er meðvitaður um allt það
í lífinu sem er ánægjulegt og gott
og nær að njóta og upplifa og gefa
því gaum sem er gott og skemmti-
legt, hlæja og vera í flæði, er maður
að styrkja þessi hamingjusvæði
heilans.“
Siðferðið og samfélagið
Annað stefið í þessum fræðum
kemur inn á siðferðiskenndina og
framlag fólks til samfélagsins. Það
geri því gott að hafa tilgang og láta
gott af sér leiða. Þá sé mikilvægt
að vera meðvitaður um siðferðis-
kennd sína og hegða sér í samræmi
við hana. „Heilindi eru til dæmis
eitt af þeim gildum sem vert er að
viðhafa í lífinu til að auka hamingju
sína. Þar með öðlumst við aukna
sjálfsvirðingu sem er ekki svo
lítils virði. Það nægir okkur víst
ekki að aðrir beri virðingu fyrir
okkur ef við vitum betur og gerum
það ekki sjálf,“ segir Ásdís. „Þetta
var viss uppgötvun fyrir mig, þar
sem ég hafði ekkert lagt sérstak-
lega upp úr því að ganga frá inn-
kaupakörfunni í Bónus eftir notkun
og átti til að troða mér fram fyrir
í lyfturöðinni í Bláfjöllum ef ég
komst upp með það. En þar sem ég
þarf á allri minni sjálfsvirðingu að
halda hef ég tekið upp nýja og betri
siði í samræmi við gildin mín.“
Hamingjan útskýrð
Í bókinni fjallar Tal Ben-Shahar um
hamingjuna sem hinn eina sanna
gjaldmiðil og fjallar um hvað það
sé sem veiti venjulegu fólki varan-
lega lífsfyllingu og gleði í daglegu
lífi. Hins vegar er þetta ekki dæmi-
gerð sjálfshjálparbók sem lofar
kraftaverkum á nokkrum dögum,
heldur krefst hún vinnu af þeim
sem ætlar í raun og veru að auka
hamingjuna í lífi sínu. „Rannsókn-
ir sýna að hamingjan fæst ekki í
hendingskasti, með stórum sigrum,
lottóvinningum eða stöðuhækkun.
Við getum hins vegar aukið ham-
ingju okkar með ákveðnum aðferð-
um sem krefjast yfirlegu og fram-
kvæmdar. Hver hefði trúað að
meiri hamingja fengist með hug-
arfari, rútínu, nánum samböndum
og flæði? Og mér sem var kennt að
hamingjan kæmi með prinsinum og
konungsríkinu!“
Þau Ásdís og Karl eiga von á Tal
Ben-Shahar til landsins á nýju ári
með fyrirlestra og vinnustofu á
vegum Félags um hugræna atferl-
ismeðferð og Félags um jákvæða
sálfræði. „Hann er mikið bókaður
en er með smugu í maí, skilst mér.
Ég væri alveg til í að skokka með
honum í Heiðmörkinni og rabba
við hann um fullkomnunaráráttuna
sem hann hefur rannsakað meira
en flestir aðrir.“
Heilindi ýta undir hamingjuna
„EINS OG TALAÐ ÚR MÍNU HJARTA“ Ásdís féll kylliflöt fyrir bókinni Meiri hamingja eftir Tal Ben-Shahar. Hún segir snilligáfu hans helst felast í því að hann tekur vísindin úr fílabeinsturninum og gerir þau aðgengileg
almenningi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í bókinni Meiri hamingja er fólki öðru fremur ráðlagt að gangast við tilfinn-
ingum sínum og að þora að gera mistök. „Lífið væri svo ljúft ef við værum að
einhverju leyti laus við óttann og skömmina. Það væri draumur. Sérstaklega
fyrir okkur sem vorum alin upp við setningar eins og „Hvað heldurðu að fólk
segi?“ En það gerir gagn að átta sig á hve mikið slíkar tilfinningar stjórna líðan
okkar og gjörðum og stíga síðan smátt og smátt út fyrir þægindasvæðið og
afsanna þannig gildi þeirra. Henda bakpokanum yfir girðinguna og klifra svo
á eftir honum, eins og Tal Ben-Shahar orðar það í bókinni. Lífið verður mikið
auðveldara og skemmtilegra þegar maður þorir að vera og gera og hættir að
óttast annað fólk,“ segir.
LÆRÐU AÐ MISTAKAST ANNARS
MISTEKST ÞÉR AÐ LÆRA
Í vikunni ýtti sjálfshjálparbókin Meiri hamingja Svörtuloftum Arnalds Indriðasonar úr fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson.
Ásdís Olsen, aðjúnkt við Háskóla Íslands, stendur fyrir útgáfu bókarinnar hér á landi, ásamt eiginmanni sínum, Karli Ágústi
Úlfssyni leikara. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir fékk nokkur ráð frá Ásdísi um hvernig má komast yfir hamingjuna.