Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 106

Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 106
70 19. desember 2009 LAUGARDAGUR A ðstandendur Vaktanna hafa stundum hótað því að það kæmi ekkert meira. Dagvaktin átti til að mynda að vera allra síðasti hlutinn. Jón segir að nú komi ekkert meira. „Það er bara ekki hægt,“ segir hann dularfullur. Deyja allir? „Þú verður bara að sjá myndina, en jú kannski á ákveðinn hátt deyja einhverj- ir. Við sviptum hulunni af Georgi.“ Þú hefur stundum talað um að það hafi verið líkamlega og andlega erfitt að leika Georg Bjarnfreðarson. Skán- aði það ekkert þegar á leið? „Jú jú, það var ekkert svakalega erfitt í Fangavaktinni. Ég var orðinn vanari. Næturvaktin var ógeðslega erfitt verk- efni. Þetta var allt tekið á nóttunni, tólf tímar, sex dagar í einu. Það var kulda- tímabil svo það var alltaf tíu, fimmtán stiga frost þarna á nóttunni. Ég var með mikinn texta, mónólóga og ræður svo þetta var erfitt. Þegar við gerðum Dag- vaktina vorum við úti á landi og á sama tíma var litli strákurinn minn veik- ur. Var mikið inni á barnadeild og það var virkilega erfitt fyrir mig að vera meira og minna úti á landi. Í Fanga- vaktinni var allt í himnalagi, við bara í bænum, á daginn og strákurinn ekkert lasinn þannig að þetta varð allt miklu auðveldara.“ Var þá erfiðið frekar spurning um aðstæður, en að það tæki svona á að leika týpuna Georg? „Auðvitað er erfitt að leika Georg, en það er líka mjög gaman.“ Þú leist náttúrlega út eins og Georg meðan á tökum stóð. Varstu ekki að fá komment úti í búð og svona? „Ég var alltaf með húfu eða hatt um mitt sumar. Ég heyrði mikið í kringum mig: „Nei, er þetta ekki Georg Bjarn- freðarson? Hvar er starfsmaður á plani?“ Einhverjir svona karlar að gant- ast. Vinnustaðagrínarar voru mjög glað- ir að sjá mig. En ég fer ekkert í sund á meðan ég er Georg Bjarnfreðarson.“ Alltaf fundist stjórnmálafólk ógeðslega leiðinlegt Þú hefur verið mikið með svona geð- vonda karla í þínu gríni í gegnum tíð- ina, en Georg er aðeins öðruvísi. „Kannski af því hann er fyrsti vinstri- græni geðvondi karlinn,“ segir Jón. „Ég hef stundum verið með leiðindapúka í Tvíhöfða sem hafa hringt inn og gefið ráð eða nöldrað yfir einhverju. Marg- ir þessara leiðindakarla eru byggðir á pabba mínum. Ef það er einhver týpa sem hefur inspírað mig meira en aðrar við að búa til Georg þá er það persón- an Keith úr sjónvarpsmyndinni Nuts in May eftir Mike Leigh. Þetta er eldgöm- ul sjónvarpsmynd og þessi Keith er ein- staklega leiðinlegur náungi. Margt er svo byggt á mér sjálfum. Ég get verið alveg ógeðslega leiðinlegur, eða að minnsta kosti hugsað leiðinlega þótt ég geri enga alvöru úr því.“ Mér finnst samband Georgs og Ólafs Ragnars minna mikið á samband Mr. Fawlty og Manuels í þáttunum Fawlty Towers. „Það er örugglega margt til í því. Þar ertu líka með „underdog“ og einræðis- herra. Ekkert er einskapað og áhrifa- laust, það má alls staðar sjá einhver áhrif í öllu. Fawlty Towers er eitt af Ég fer ekkert í sund á meðan ég er Georg Bjarnfreðarson Næturvaktin, Dagvaktin, Fangavaktin og nú kvikmyndin Bjarnfreðarson. Langt er síðan þjóðin hefur tekið annað eins ástfóstur við grínefni. Allt snýst þetta í kringum leiðindagaurinn Georg Bjarnfreðarson. Dr. Gunni hitti Jón Gnarr og reyndi að komast nær kjarna snilldarinnar. JÓN GNARR YNGRI OG ELDRI „Hann var rosalega spenntur fyrir að leika Georg því hann hélt að það yrði rakaður skalli á hann. En hann fékk móhíkana-rönd í staðinn svo hann var alveg sáttur.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON mínu uppáhaldssjónvarpsefni svo það er ekkert skrítið að það séu áhrif þaðan.“ Hvað með vinstri-græna? Eru þeir ekkert fúlir yfir þessari neikvæðu sýn sem Georg birtir af þeim? „Nei og þau léku meira að segja í einum þættinum. Steingrímur Joð hafði reyndar aldrei séð þetta og vissi ekkert hvað þetta var, en Katrín Jakobsdóttir hafði séð þættina og var mjög ánægð með þá. Georg er heldur ekki týpískur vinstri-grænn. Hann væri úr öfga-arm- inum frekar, svona eins og Óli kommi, eða hvað þessir karlar heita. Svona karl- ar sem verða reiðir ef það er sagt eitt- hvað slæmt um Stalín.“ Kannski er hluti af því sem gerir Georg fyndinn að hann er alltaf svo reið- ur. Fátt er fyndnara en reitt fólk. „Já, ef maður er ekki nálægt því. Ef manni stafar ekki hætta af reiðu fólki er það mjög fyndið. Reiður maður er svo ólógískur og blindur á sjálfan sig. Reið- ur maður hefur alltaf rétt fyrir sér og Georg er alltaf reiður.“ Hvað með þig? Verður þú oft reiður? „Ég get orðið það, já. Sérstaklega ef mér finnst eitthvað ósanngjarnt. En það fer mjög í taugarnar á mér hvað reitt fólk tekur mikinn tíma og athygli með sínum leiðindum. Fólk sem hefur aldrei neitt áhugavert að segja – bara eitthvað leiðinlegt. Mér finnst, og hefur alltaf fundist, stjórnmálafólk ógeðslega leiðin- legt lið. Lið sem ég myndi ekki nenna að sitja með í tíu mínútur. Pældu í að vera fastur á eyðieyju með Steingrími Joð og Bjarna Ben. Maður myndi skjóta sig fljótlega. Svo þarftu ekki að segja annað en „mannanafnanefnd“ og þá verð ég ógeðslega reiður og ég verð líka ógeðs- lega reiður ef einhver er á móti mér. Það er nú dálítið eins og Georg Bjarn- freðarson. En það er nú búið að skrifa svo margt ljótt um mig að ég er kannski hættur að kippa mér upp við það.“ Góður slatti af drama Kannski sér íslenska þjóðin sjálfa sig í Vaktar-þáttunum. Kannski breyttist þjóðin úr Ólafi Ragnari góðærisins í Georg Bjarnfreðarson kreppunnar. Nú eru allir ógeðslega reiðir, eins og Georg. Hafa aðstandendurnir pælt í því af hverju þetta sé svona vinsælt? Er þetta kannski bara svona gott stöff? „Ég og Pétur erum einfaldlega bestu gamanleikarar þjóðarinnar. Það er bara þannig,“ segir Jón, ekki með votti af efa. „Svo er Ragnar Bragason af flestum talinn besti leikstjóri landsins svo það hlaut eitthvað gott að koma út úr þessu. Við erum allir mjög klárir í því sem við erum að gera. Þegar við vorum að byrja var ég viss um að þetta yrði snilld, en ég var ekki viss um að allir hefðu gaman af þessu. Ég er vanur því að margir hafi ekkert gaman af því sem ég hef gert og það finnst mér líka allt í lagi.“ Er ekki leiðinlegt fyrir gamla pönkara þegar bolnum er farið að líka við þig? „Það er það, en samt ekki. Mér finnst bara gott að færa fólki smá skemmt- un og hvíld frá þessum leiðindum sem eru alltaf í gangi. Íslendingar eru líka að þroskast sem sjónvarpsþjóð. Það var alltaf allt brjálað þegar Fóstbræður voru á dagskrá. Fólk var öskrandi í símanum. Einn daginn á kannski einhver eftir að Reiður maður hefur alltaf rétt fyrir sér og Georg er alltaf reiður. FRAMHALD Á SÍÐU 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.