Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 136
96 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Skemmtistaðurinn Sirkus opnaði með
pompi og prakt í Færeyjum um síðustu
helgi. Fjöldi heimamanna og Íslendinga
sóttu opnunarkvöldið og að sögn Jóels
Briem, eins eiganda staðarins, var fullt út
að dyrum.
Skemmtistaðurinn Sirkus hefur verið endur-
vakinn í Þórshöfn undir nafninu Sirkus Föroyar.
Staðurinn opnaði formlega 11. desember síðast-
liðinn. Á neðri hæð hússins er að auki starfrækt
tískuverslunin Zoo sem selur íslenska og færeyska
hönnun.
„Húsið var troðfullt á opnunarkvöldinu og ég
frétti að þetta væri í fyrsta sinn í skemmtanasögu
Færeyja sem fólk þurfti að bíða í röð til að komast
inn. Vikan er búin að vera góð og það er stöðugur
straumur af fólki hingað inn. Það er líka búið að
vera mikið að gera í tískuversluninni á neðri hæð-
inni enda hún þykir svolítið öðruvísi en aðrar búðir
hérna,“ segir Jóel Briem, sem á skemmtistaðinn
ásamt Sigríði Guðlaugsdóttur og Sunnevu Eystur-
stein. „Þetta gekk bara vonum framar og ég held að
allir hafi fundið greinilega Sirkusstemningunni.“ - sm
SIRKUSANDINN LÉT Á
SÉR KRÆLA Í FÆREYJUM ZOOW Verslunin Zoo selur bæði íslenska og færeyska hönnun.
VERSLUNARSTJÓRAR Þessi tvö sjá um daglegan rekstur verslunarinnar Zoo sem er á
jarðhæð hússins.
Á KANTINUM Færeyingar eru hrifnir
af viðbótinni við skemmtanalífið í
Þórshöfn.
EFRI HÆÐIN Staðurinn er á tveimur
hæðum, alveg eins og gamli Sirkus.
EIGENDURNIR Sunneva, Sigga Boston og Jóel reka saman Sirkus í Færeyjum. MYNDIR/HÖGNI EGHOLM
> HANNAR OG GEFUR SKÓ
Charlize Theron hefur hannað skó og
mun ágóði sölunnar renna til góð-
gerðarmála. Leikkonan hefur í sam-
starfi til TOMS-skókeðjuna hann-
að strigaskó sem henta báðum
kynjum. Ágóði skósölunnar
mun renna til African Out-
reach verkefnis leikkonunn-
ar auk þess sem 10.000 pör
verða gefin til barna sem lifa í
afskekktum hverfum í Suður-
Afríku, heimalandi Theron.
Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri
hjá 66° Norður, var tekin í stutt viðtal
við bandaríska tískutímaritið Marie
Claire. Viðtalið birtist í sérstökum
heilsuhluta í nýju desemberhefti
tímaritsins þar sem Helga er meðal
annars spurð út í mataræði sitt og
líkamsrækt.
„Ég veit ekki af hverju þau höfðu
samband við mig. Þau voru að leita
að konu á Íslandi með heilbrigðan
lífsstíl og mér skildist á blaða-
manninum að einhver hefði bent
á mig en ég veit ekki hver það var.
Þau sendu mér svo spurningalista í
lok ágúst sem ég svaraði samvisku-
samlega,“ útskýrir Helga. Hún var
jafnframt beðin um að senda blaða-
manni mynd af sjálfri sér og fékk
Helga með sér ljósmyndara í Bláa lónið
þar sem tekin var af henni mynd í flík
frá 66° Norður.
Helga segist sátt við útkomuna í
Marie Claire en vissi ekki af birtingu
viðtalsins fyrr en vinur hennar hringdi
í hana og sagði henni frá því. „Mér var
sagt að viðtalið yrði væntanlega birt
í desember. Það var vinur minn sem
rakst fyrstur á það, hann var að blaða
í gegnum tímaritið í flugi fyrir stuttu.
Þeir eru fáir hér heima sem hafa séð
greinina en ég er mikið á vinnufundum
í Bandaríkjunum og þar hafa marg-
ir minnst á þetta við mig. Líkurnar á
að menn komist í blöðin þarna úti eru
svo litlar að ég held að þeim þyki þetta
merkilegra en okkur hérna heima,“
segir Helga og hlær. - sm
Sátt við viðtalið í Marie Claire
HEILBRIGÐ Í MARIE CLAIRE Helga Viðarsdóttir,
markaðsstjóri hjá 66° Norður, var tekin í stutt
viðtal í bandaríska tískutímaritinu Marie Claire.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tónlistarmaðurinn Insol hefur
sent frá sér plötuna Hátinda. Um
hálfgerða safnplötu er að ræða
með bestu lögum Insol af plötum
sem hann gaf út á árunum 1999 til
2003. Dr. Gunni sá um að raða lög-
unum saman og Brak-hljómplöt-
ur gefa plötuna út. Henni er lýst
sem sundurleitri en þó heildrænni,
einlægri, fyndinni og fallegri frá
manni sem þorir að vera hann
sjálfur.
Íslenskir tónlistarmenn ættu að
kannast vel við Insol, enda hefur
hann vakið athygli fyrir einlæg lög
og texta. Hátindar hefur að geyma
átján lög, þar á meðal Hvenær mun
hér á Íslandi rísa stjörnusambands-
stöð?, Blóm, friður og ást, Stelpur
vil ég stórar og Jafnréttið er eina
svarið. Platan mun fást á örfáum
stöðum í miðbæ Reykjavíkur sem
og á Akureyri. Hún verður einnig
fáanleg á netinu.
Hátindar frá Insol
INSOL Tónlistarmaðurinn Insol hefur sent frá sér plötuna Hátinda.