Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 89
matur 11
Ómótstæðilega góð!
Grímur kokkur mælir með:
Gott er að bæta út í steiktum humarhölum
eftir að búið er að hita súpuna upp.
Gott ráð til að gera góða súpu enn betri. 500 ml.
Gríms
humarsúpa
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á matargerð og er allt-af að prófa nýja rétti,“ segir
Elín Albertsdóttir, blaðamaður og
rithöfundur. „Mín uppáhalds stöð
er BBC Lifestyle þar sem boðið
er upp á skemmtilega matreiðslu-
þætti. Það var einmitt í einum slík-
um sem ég fékk uppskriftina að
því sem ég nefni Rækjurétt undra-
barnsins. Ég myndi nefnilega þora
að bjóða Ashkenazy-hjónunum upp
á þennan rétt en parmesan-brauðið
baka ég oft og er vinsælt hjá fjöl-
skyldunni. Þórunn og Vladimir eru
miklir sælkærar og góðu vön þar
sem þau borða á bestu veitinga-
húsum í heimi árið um kring.“
Elín hefur einmitt haft góð
kynni af Þórunni þetta árið en
þær hafa verið í miklu sambandi
þar sem Elín skrifaði ævisögu
hennar, Íslenska undrabarnið,
sem kom út núna fyrir jólin. Hún
viðurkennir að þetta sé nokkuð
sérstök aðventa. „Það er vissulega
skrítin tilfinning að vera hinum
megin við borðið, ég er vanari að
taka viðtöl við rithöfunda og segja
frá nýútkomnum verkum þeirra.
Núna hef ég nóg að gera við að
lesa upp upp úr bókinni minni og
kynna hina óvenjulegu lífssögu
Þórunnar, þessa undrabarns sem
flutti fyrst til Sovétríkjanna, flúði
þaðan og hefur ferðast um allan
heim með eiginmanni sínum og
upplifað geysimargt,“ segir Elín
og brosir. - uhj
RISARÆKJUR
5 risarækjur, skelflettar og
hreinsaðar
Marínering (má líka nota á
fisk eða kjúkling)
3 msk. tamarind paste (fæst
í Asian)
safi úr ½ límónu
safi úr ½ sítrónu
1 msk. fljótandi hunang
1 msk. sojasósa
100 g Panko-brauðrasp
(fæst í Asian)
1 msk. ristuð sesamfræ (má
sleppa)
handfylli af blönduðu salati
Olía til djúpsteikingar.
KÓKOS-SALSA
¼ rauður laukur, smátt skor-
inn
¼ mangó, í smáum bitum
¼ papaya, í smáum bitum
1 rauður chili, smátt skorinn
5 g kókosflögur
10 ml kókósrjómi (fæst í
Asian)
1 msk. ólífuolía
Blandið saman í skál tamar-
ind paste, hunangi, límónu-
safa, sítrónusafa og sojasósu.
Leggið rækjur í blöndu og
látið standa í minnst klukku-
stund. Takið rækjur og veltið
þeim upp úr Panko-brauð-
raspi og djúpsteikið í
stutta stund. Setjið
allt sem á að fara
í salsasós-
una í skál
og blandið
vel saman.
Setjið handfylli af salatblöndu
fallega á disk. Raðið rækjum
í hring ofan á. Stráið sesam-
fræjum yfir. Setjið kókos-
salsablönduna loks ofan á
allt saman eða til hliðar eftir
smekk.
PARMESAN-BRAUÐ
500 g hveiti (blár Kornax-
poki)
2 msk. olía
1 msk. Maldon-salt
30 g pressuger (fæst til
dæmis í Fjarðarkaupum)
1 msk. fljótandi hunang
1 dós hrein jógúrt eða hálf
dós grísk jógúrt
um það bil 2 dl volgt vatn
Parmesan-ostur
Ólífuolía
Leysið pressuger upp í rúm-
lega 1 dl af volgu vatni og
hunangi. Hnoðið saman
hveiti, olíu, jógúrt og salti.
Bætið gerblöndu út í og
hnoðið vel. Bætið vatni við ef
með þarf. Látið deig hefast í
minnst 40 mínútur. Ef nægur
tími gefst er best að slá það
niður og láta hefast tvisvar.
Uppskrift getur dugað í þrjú
lítil snittubrauð eða tvö stærri.
Gerið lengjur úr deigi, skerið
í það raufar, vætið með ólífu-
olíu og stráið síðan ríflega af
parmesan-osti yfir. Setjið í
200° C heitan ofn í 20-
25 mínútur. Gott er að
smyrja brauðið með mjúk-
um geitaosti eða ólífu-
mauki, eða eftir smekk.
RISARÆKJUR MEÐ KÓKOS-SALSA OG
PARMESAN BRAUÐI
Forréttur fyrir einn
FYRIR SÆLKERA
Elín Albertsdóttir hefur hefur dálæti á matargerð. Hér er ein uppskrifta hennar,
risarækjur með kókó-salsa og parmesan-brauði sem hentar sem forréttur.
Framandi forréttur
Elínu finnst gaman að
elda og er alltaf að
prófa nýjar uppskriftir.
Risarækjur í kókos-
salsa að hætti Elínar.
F