Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 158
118 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
„Er það? Já, af seríunum? Æðislegt.
Það er rosalegt magn.“
Svona voru viðbrögð leikstjórans
Ragnars Bragasonar þegar blaða-
maður tjáði honum að vaktaseríurn-
ar þrjár hefðu selst í 48.000 eintök-
um frá upphafi. Fangavaktin, sem
kom út fyrir jólin, hefur farið gríð-
arlega hratt af stað og selst í tæp-
lega 14.000 eintökum. Samkvæmt
útreikningum Fréttablaðsins hafa
diskarnir þrír rakað saman um það
bil 155 milljónum króna síðustu ár.
„Ég hef verið að heyra háar tölur
um hina og þessa titla. Þetta segir
manni að fólk vill eiga íslenskt
efni,“ segir Ragnar. „Ég bjóst ekki
við að Fangavaktin myndi seljast
svona vel núna, vegna þess að það
er svo ofboðslega mikið af góðum
íslenskum titlum í boði fyrir jól.
Fólk verður að njóta þess á meðan
það getur, miðað við fyrirhugað-
an niðurskurð á kvikmyndagerð í
landinu. Það verður ekki mikið af
íslensku efni næstu árin.“
En það er allt að gerast hjá Georg
Bjarnfreðarsyni og félögum þessa
dagana. Lokahnykkur sögunnar,
kvikmyndin Bjarnfreðarson, verð-
ur frumsýnd annan í jólum og í vik-
unni tryggði finnska ríkissjónvarp-
ið YLE sér sýningarrétt á öllum
vaktaseríunum. Óljóst er hvenær
sýningar á þáttunum hefjast þar í
landi, en Ragnar telur þættina eiga
fullt erindi við Finna. „Ég hélt að
vísu að Svíarnir yrðu fyrstir,“ segir
hann og vísar í stórbrotinn áhuga
Georgs á Svíþjóð. „En Finnarn-
ir tengja við myrkrið, kuldann og
þunglyndið.“
Ragnar vonast til að hinar Norður-
landaþjóðirnar taki við sér. Unnið
er að því koma þáttunum þangað,
en fleiri samningar eru ekki í höfn.
„Það er verið að púsla einhverju
saman,“ segir hann.
Finnarnir voru ekki búnir að sjá
Fangavaktina þegar þeir keyptu
seríurnar þrjár og samkvæmt til-
kynningu frá Saga Film vildu þeir
verða fyrstir að kökunni. Spurður
um heiðurinn er Ragnar hógværð-
in uppmáluð. „Þetta er skemmti-
legt vegna þess að það er svo nýtt
að við séum að gera sjónvarpsefni
sem er sambærilegt og samkeppn-
ishæft. Þá er mjög mikill heiður að
ríkissjónvarpsstöð í einhverju öðru
landi sjái gæðin í því.“
atlifannar@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. bauti, 6. í röð, 8. mjöl, 9. bókstafur,
11. gelt, 12. orðtak, 14. hrópa, 16.
pípa, 17. ennþá, 18. fát, 20. tveir eins,
21. gegna.
LÓÐRÉTT
1. viðlag, 3. umhverfis, 4. gróðra-
hyggja, 5. gapa, 7. endurröðun, 10.
skraf, 13. atvikast, 15. sál, 16. iðka,
19. sjúkdómur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. buff, 6. tu, 8. mél, 9.
emm, 11. gá, 12. frasi, 14. öskra, 16.
æð, 17. enn, 18. fum, 20. dd, 21.
ansa.
LÓÐRÉTT: 1. stef, 3. um, 4. fégirnd, 5.
flá, 7. umröðun, 10. mas, 13. ske, 15.
andi, 16. æfa, 19. ms.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Samkynhneigt fólk fær að ganga
í hjónaband.
2 2.700.
3 Asif Ali Zardari.
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
Jólatilboð
50 ljósasería 648 kr.
35 ljósasería 498 kr.
50%
afsl.
„Þetta gekk gríðarlega vel. Þetta var mjög áhrifa-
mikil og eftirminnileg stund,“ segir rithöfundurinn
Sindri Freysson.
Hann las fyrir skömmu upp úr nýjustu bók sinni,
Dóttir mæðra minna, í kvennafangelsinu í Kópa-
vogi. Bókin gerist að miklu leyti í Holloway-kvenna-
fangelsinu á Englandi þar sem íslensk sautján ára
stúlka situr inni árið 1941. „Þegar bókin var nýkom-
in út sagði ég strax að mig langaði að lesa upp í
kvennafangelsinu í Kópavogi,“ segir Sindri. „Þegar
ég var í London að vinna heimildarvinnu krækti ég
mér í rit sem innihalda ljóð og sögur kvenna sem
sitja í breskum fangelsum nútímans. Það opnaði mér
glufu inn í hugarheim kvenfanga,“ segir hann. „Sú
mynd varð enn skýrari þegar ég hitti íslenska stelpu
sem var nýbúin að afplána dóm í frönsku fangelsi
fyrir dópsmygl.“ Í framhaldinu ákvað Sindri að
endurgjalda greiðann ef svo má segja með því að
lesa upp í kvennafangelsinu, þar sem karlar eru
reyndar líka á meðal fanga. „Þau spurðu margra
spurninga og þetta var greinilega vel þegið. Mér
fannst það reyndar pínu einkennilegt að vera að lesa
fyrir fanga upp úr bók sem segir frá líðan fanga en
það voru engar athugasemdir gerðar,“ segir hann og
bætir við: „Ég gæti vel hugsað mér með seinni tíma
útgáfu að gera eithvað sambærilegt. Fólk var þakk-
látt fyrir þetta og þetta var tilbreyting frá þeirri
ömurlegu rútínu sem fylgir því að vera í fangelsi.“
Bókasafn fangelsisins fékk einnig að gjöf allar
þær bækur sem bókaforlagið Veröld gefur út fyrir
jólin og féll það vel í kramið á meðal fanganna. - fb
Upplestur í kvennafangelsinu
Í FANGELSI Sindri Freysson í kvennafangelsinu í Kópavogi þar
sem hann las upp úr sinni nýjustu bók. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Hann kom á fimmtudagskvöldið,
allur gataður í klessu með hatt á
hausnum, klæddur í leðurjakka og
þröngar gallabuxur með kurteisa
krakka með sér og ljóshærða frú.
Þau voru mjög falleg fjölskylda og
ég held hreinlega að ég hafi komið
Slash í jólaskapið,“ segir Stefán
Karl Stefánsson.
Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá leikur Stefán Karl sjálfan
Trölla í söngleik sem nú er sýndur
fyrir fullu húsi í Panteges-leikhús-
inu í Hollywood.
Í vikunni var síðan sagt frá því
að stórstjörnur borgarinnar legðu
nú leið sína í leikhúsið í aðdrag-
anda jólanna til að berja Stefán
og félaga augum. Meðal þeirra
sem hafa sest niður og átt nota-
lega stund með börn-
unum sínum eru þau
Gwen Stefani og Gavin
Rossdale og svo Ben
Stiller, gamanleikarinn
góðkunni. Nafnið Slash
kveikir kannski líka á
einhverjum jólaljós-
um enda var hann gít-
arleikari í einhverri
alræmdustu rokk-
sveit heims, Guns n‘
Roses.
Stefán viðurkenn-
ir að hann hlusti nú
um stundir ekki
mikið á þessa
graðhestatón-
list sem rokksveit
Slash stóð fyrir en
hann hafi alveg dillað hausnum
við Paradise City og Welcome
to the Jungle á sínum tíma. Svo
hrifinn var reyndar Slash af
frammistöðu Stefáns
að hann tróð sér bak-
sviðs eins og alvöru
rokkgrúppía og
heimtaði að ná tali
af Trölla. „Ég vildi
nú ekki láta taka
neina mynd af
mér því ég var
bara á nátt-
sloppnum.
En ha nn
var mjög
hrifinn og
sagði að
þetta hlyti
að vera eins
og að halda
rokk-kon-
sert.“ - fgg
Stefán Karl kom Slash í jólaskapið
PERSÓNAN
TVEIR GÓÐIR Fyrr-
verandi gítarleikari
rokksveitarinnar
Guns n‘ Roses,
Slash, mætti á
söngleikinn
um Trölla
sem Stefán
Karl leikur og
hrósaði íslenska
leikaranum í
hástert baksviðs
fyrir frammistöðuna.
Karl Ágúst Úlfsson
Aldur: 52 ára.
Starf: Leikari, höfundur, þýðandi og
útgefandi.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Fjölskylda: Giftur Ásdísi Olsen og
á börnin Eyvind, Bergþóru, Valgerði,
Brynhildi og Álfheiði.
Búseta: Við búum í Garðabæ.
Karl Ágúst gefur út bókina Meiri
hamingja sem situr á toppi met-
sölulista Eymundssonar.
RAGNAR BRAGASON: FÓLK VILL EIGA ÍSLENSKT EFNI
Vaktirnar á DVD hala inn
hátt í 200 milljónir króna
Snorri Helgason hélt
útgáfutónleika sína
á fimmtudaginn og
spilaði þrumuefni með
bandi. Ríó tríóið
spilaði líka með
hljómsveit en
Högni Egils-
son í Hjalta-
lín kom fram
einn í fyrsta skipti. Hann var eðli-
lega nokkuð stressaður að vera án
félaga sinna í bandinu, en komst
klakklaust í gegnum prógrammið
með því að syngja Hjaltalínlög og
lög með Siggu Thorlacius í bossa-
nóvatakti á portúgölsku. Þótti þetta
nokkuð vel af sér vikið því Högni
kann ekki stakt orð í portúgölsku.
Ævisaga Gylfa Ægissonar
hefur farið fram úr
björtustu vonum
útgefenda. Bókin hefur
verið prentuð þrisvar
sinnum og hefur selst í
rúmum fimm þúsund
eintökum. Þessar
góðu viðtökur hafa
hvatt ævisögurit-
arann Sólmundur
Hólm Sólmund-
arson til dáða því
hann er þegar farinn
að huga að nýrri ævisögu sem á að
koma út fyrir þarnæstu jól. Nokkur
viðfangsefni koma til greina en
ólíklegt er að tónlistarmaður verði
aftur fyrir valinu.
Óskar Páll Sveinsson lagahöf-
undur er með veiðidellu eins og
meðhöfundur hans í Eurovision á
næsta ári, Bubbi Morthens. Óskar
slysaðist framan á Árbók veiði-
mannsins, glaðbeittur með risafisk.
Hann gaf leyfi fyrir myndinni þegar
haft var samband við hann, en
myndina tók hann
sjálfur með tíma-
stilli. Óskar er svo
forfallinn í veiðinni
að hann selur sér-
hönnuð veiðihjól.
- drg, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
GRÍÐARLEG SALA
Vaktirnar þrjár hafa selst í 48 þúsund
eintökum frá því að Næturvaktin kom út á
sínum tíma. „Rosalegt magn,“ segir leik-
stjórinn Ragnar Bragason. Hann bjóst
ekki við að Fangavaktin færi hratt af
stað enda „ofboðslega mikið af góðum
íslenskum titlum í boði fyrir jól“.