Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 134
98 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
OKKUR
LANGAR Í
…
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Dagatalið undanfarna viku og næstu vikur fyllist ört af fjölskylduboð-
um, vinaboðum, vinnuboðum og viðburðum og það er ekki lítil vinna
við að stunda samkvæmislífið á næstunni. Það er líka partur af hátíð-
leika jóla og áramóta að fara í eitthvað aðeins sparilegra en venju-
lega, skreyta sig með skarti eða fara í hæstu hælaskóna sína. Hvort
sem maður hefur getað keypt sér einhver föt síðustu vikur eða ekki þá
getur verið hálfgerður höfuðverkur að finna eitthvað til að klæðast í
öll þessi skipti. Hvaða karlmaður kannast ekki við setninguna „En ég
á ekkert til að fara í“ og horfir óskiljandi augum á konuna í lífi sínu
þegar eftir hans bestu vitneskju er fata-
skápurinn yfirfullur af fötum af henni.
Þegar maður á ekki neitt til að fara í þá
er óbrigðult ráð að fara bara aftur í sama
dressið og þér leið einstaklega vel í síðast.
Það er ekkert verra en að mæta í einhverj-
um flippuðum eða framúrstefnulegum
kjól í partí ef maður var aldrei viss um
hvort hann ætti sérstaklega vel við mann.
Þá finnst mér skárra að draga fram gömlu
svörtu gallabuxurnar eða kjólinn og vita
að minnsta kosti að mér líði ekki eins og
fávita það sem eftir lifir kvölds. Óbrigðult
ráð stílista víðsvegar um heim er setning-
in „Accessorize..accessorize..accessor-
ize …“ sem minnir okkur á að fylgihlutir skapa dressið. Þegar knappt
er í búi er líka þjóðráð að henda á sig gamla flotta leðurjakkanum yfir
svarta kjólinn og poppa þetta upp með fallegu hálsmeni eða stóru arm-
bandi. Meira að segja mestu naumhyggjusinnar hafa gaman af smá
punti yfir jólin. Svo er ýmislegt sem ber að forðast í öllum þessum
veisluhöldum. Það er til dæmis ekki góð hugmynd að verða ofurölvi
við nein tækifæri. Jólin eru tilfinningaríkur tími og engan langar til
þess að ranka við sér á þriðja í jólum eftir einhvers konar fjölskyldu-
uppgjör. Þetta á enn frekar við á áramótunum þegar það er best að
spara kampavínið þangað til á miðnætti svo að maður sjái nú yfirleitt
flugeldana og eigi skemmtilega nótt umvafinn þeim sem maður elskar.
Ég á ekkert til að vera í …
Dásamlega svanatösku
eftir Hildi Björk Yeoman frá
Kronkron.
Fjólubláan
kokteilkjól frá
Nostalgíu.
Gullfallegan glimmer-
augnskugga frá Bobbi
Brown í jólaboðin.
Karl Lagerfeld virtist innblásinn úr mörgum áttum þegar hann hannaði vor- og
sumarlínuna 2010 fyrir Chanel. Risavaxinni hlöðu var komið fyrir í miðju sýn-
ingarsvæðisins Grand Palais og fyrirsætur gengu um með strá í hárinu líkt
og þær hefðu verið að gamna sér í heyinu. Allt þetta vakti upp hugmyndir um
Marie Antoinette á átjándu öld eða germanskar yngismeyjar í klossum. Fötin
voru sérstaklega stelpuleg: stutt pils, blúnduskyrtur og siffon. - amb
SVEITARÓMANTÍK HJÁ CHANEL
Stelpulegt og sætt
KLOSSAR Háhælaðir tréklossar við háa
sokka veittu klæðnaðinum kynþokka-
fullan blæ.
BLÓM
Dá samlega
fallegur
hvítur kjóll
alsettur
blómum.
FÖLBLÁTT
Fallegt sítt pils
og skyrta við
klossa.
RÓMANTÍSKT Blómakjóll með siffonsjali
og uppsettu hári.
BLÚNDUR Hvít skyrta og
stuttar buxur með blómum.
RAUTT
Klassískur
tweed-
dressjakki og
stutt pils í
rauðu.
> FATAMARKAÐUR ELMU OG SILJU
Leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir og leikstjór-
inn Silja Hauksdóttir verða með skemmtilegan
fatamarkað í dag frá 16-18. Ýmislegur hátíðar-
varningur úr fórum þessarra smekkkvenna verður
í boði: yfirhafnir, skart, glingur, pallíettur, kjólar
og skór. Markaðurinn verður á Lindargötu 6 hjá
Félagi íslenskra leikara fyrir aftan Þjóðleikhúsið.