Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 48
48 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
Á
ður en bankarnir hrundu og Ísland
varð að brandara í alþjóðlegu til-
liti, gekk hér ýmiss konar vitl-
eysa yfir. Femínistar voru hressir
og hleyptu öllu í bál og brand með
afdráttarlausum yfirlýsingnum
og aðgerðum, dýr og menn fóru á kostum, Skjár
einn dældi hverri snilldinni af annarri yfir okkur
og þjóðin skiptist ítrekað í tvo hópa yfir nýjasta
ruglinu. Það verður ekki skafið af okkur að við
erum dálítið rugluð og ringluð og
vorum það löngu fyrir hrun.
Rugl áratugarins
Nú þegar áratugurinn er að líða er ekki úr vegi að beina sjónum að mesta
ruglinu sem á okkur langþreyttum mörlöndum hefur dunið. Dr. Gunni kíkti
í ruglhauginn, en sleppti því alveg að skoða bankahrunið og kreppuna og
allt það yfirgengilega rugl sem við erum stödd í miðjunni á akkúrat núna.
Ron og Guðrún
Útlifaða klámleikaranum Ron Jeremy var dröslað
til landsins 2002 í tengslum við sýningu á heimildar-
mynd um líf hans og störf. Ron fór á milli fjölmiðla
með þreytta frasa, sem fólki fannst nokk-
uð fyndnir – öllum nema Guðrúnu Gunn-
arsdóttur, sem neitaði að taka viðtal við
karlinn fyrir Stöð 2, en þar vann hún
á þessum tíma. Guðrún vakti mikla
athygli með framgöngu
sinni og var ýmist
kölluð gamaldags
tepra eða hetja sem
spyrnti gegn klám-
væðingunni. Guð-
rúnu var að lokum
veitt viðurkenn-
ing fyrir
framgöng-
una.
Keiko fellur frá
Það var mikið sjónar-
spil þegar háhyrningur-
inn Keikó kom til Íslands
í amerískri herþotu í sept-
ember 1998. Sýnt var beint
frá þessum heimssögulega
atburði, enda var talið að
ferðamannaiðnaðurinn í
Vestmannaeyjum myndi
blómstra. Bjartsýnir sáu
fyrir sér margra hæða risa-
hótel og fullt af túristum
komnum til að glápa á
Keikó. Eitthvað minna varð
úr þessum hugmyndum en
til stóð og Keikó hékk ein-
mana í kví sinni. Reynt var
að gera hvalinn „villtan“ á
ný en allt kom fyrir ekki og
Keikó lést úr lungnasjúk-
dómi 12. desember 2003.
Ógeðslega íbúðin hans Ásgeirs
Óvenju hreinskilið samtal tísku-
frömuðarins Arnars Gauta og
smekkmannsins Ásgeirs Kolbeins fór
fyrir brjóstið á mörgum. Arnar var
að heimsækja Ásgeir í nýja íbúð í
þættinum Innlit/útlit á Skjá einum.
Þótt útsýnið væri „helvíti fínt“ var
flest annað ógeðslegt og klósettið
svo mikill viðbjóður að Ásgeir gat
ekki einu sinni pissað í það. Áhorf-
endur, sem sáu ekki annað en
ágætis snyrtilega íbúð á myndun-
um, klóruðu sér í hausnum yfir
tali félaganna og þótt það væri
hágóðæri voru flestir á því að
strákarnir hefðu farið fram
úr sjálfum sér í snobbi og
flottræfilshætti.
Burt með klámhyskið!
Í ársbyrjun 2007 átti Bændahöll-
in við Hagatorg að verða bæki-
stöð ráðstefnu klámframleið-
enda. Alls konar fólk úr þessum
vafasama bransa var búið að
boða komu sína á ráðstefnuna
Snowgathering og átti að fara á
skíði, taka Gullna hringinn og
hafa það huggulegt. Margir sáu
þó fyrir sér að allsbert og sið-
laust fólk myndi vera hoppandi
kviknakið um fjöll og firnindi
og upphófst mikil andstaða
við fundinn. Borgarstjórn og
hótelstýran blönduðu sér í málið
og settu klámliðinu loks stólinn
fyrir dyrnar – hingað kæmi það
ekki. Aumingjans klámfólkinu
var stórlega misboðið, sérstak-
lega að vera spyrnt saman við
mansal og barnaklám, eins og
var gert í hita leiksins.
Símapeningar Skjás eins
Skjár einn hélt uppi ruglinu lengi
framan af áratugnum með frábær-
um þáttum eins og Tantra,
Íslenski bachelorinn og
Djúpa laugin. Það virt-
ust alltaf vera til nægir
peningar og stuðið virt-
ist aldrei enda ætla að
taka. Síðar kom þó í ljós
að óvenjuleg lánastarf-
semi frá Símanum hafði
haldið stöðinni gang-
andi og því var ekk-
ert skrýtið að Sím-
inn tæki stöðina yfir
þegar þeir sem stóðu
að lántökunni voru
komnir á bak við lás
og slá.
Þriðji ísbjörninn
Í byrjun sumars 2008 fylltist hér
allt af ísbjörnum. Fyrst kom einn
í Skagafjörð og var felldur án
mikillar umhugsunar. Upphófst
þá mikið fjas um ómannúðlega
meðferð á ferðalanginum. Fólk
hafði því tækifæri til að sýna
manngæsku þegar annar ísbjörn
birtist öllum að óvörum skömmu
síðar. Sérstakur ísbjarnafang-
ari var fenginn frá Danmörku
með sérstakt ísbjarnarbúr, en
allt kom fyrir ekki og bangsi
var skotinn á leið til hafs. Eftir
þetta varð ísbjarnarfár og konur
á gangi voru alveg pottþéttar
á að hafa séð þriðja ísbjörninn.
Hann fannst þó aldrei þrátt
fyrir nokkra leit. Norðlenskir
gárungar plötuðu svo Moggann
með uppstoppuðum ísbirni, en
skömmu áður hafði Mogginn
fallið fyrir kríu á hausnum á
gerviönd.
Þjóðhetjan Magni
Íslenska þjóðin sameinaðist sem aldrei fyrr yfir sjón-
varpinu þegar Magni Ásgeirsson keppti í hæfileika-
þættinum Rockstar Supernova. Eftir að hafa verið
valinn úr hópi umsækjenda á Gauknum fór Magni fljót-
lega að láta til sín taka fyrir framan útbrunna rokk-
karla í Hollywood. Þjóðin vakti fram undir morgun
við að kjósa Magna áfram í þættinum, en mátti sín
lítils við margnum, svo Magni lenti í fjórða sæti. Það
breytti því ekki að honum var tekið sem þjóðhetju á
heimkomutónleikum í Smáralind.
Karlremba Icelandair
Til að fá erlenda ferðamenn til landsins verður að beita
öllum tiltækum ráðum. Mörgum þótti Icelandair fara
full glannalega með herferð sinni árið 2002 þegar íslenskt
kvenfólk var notað sem beita á ferðalanga. Eða hvað áttu
slagorð eins og One Night Stand in Reykjavik, Fancy a Dirty
Weekend in Iceland?, Free dip every trip og Pester a beauty
queen, annað að fyrirstilla? Þótt flugfélagið skammaðist sín og
bæðist afsökunar var búið að planta fræinu og lauslátar íslensk-
ar flugfreyjur dúkkuðu upp í mafíuþættinum Sopranos.
Rugluð markmið
Á Íslandi er oft stefnt að rugluðum markmiðum. Eitt
var vímuefnalaust Ísland árið 2000 og annað var Frið-
ur 2000. Svo setti Háskóli Íslands sér það markmið
að komast í hóp eitt hundrað bestu háskóla í heimi
og fram á bjargbrún efnahagshrunsins rembdust
dimplómatar við að koma Íslandi í Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna. Allt kom fyrir ekki. Þjóðin er raunsæ
og fagnaði sem óð væri öðru sætinu í Eurovision og
handboltasilfri á Ólympíuleikunum.
Birgittu Haukdal-dúkkan
Á hátindi frægðar
hennar árið 2006 kom
Birgittu Haukdal-
dúkkan á markaðinn.
Söngkonunni var
auðsýnilega brugð-
ið þegar henni var
sýnd dúkkan í þætti
Gísla Marteins. Ekki
að furða, því Birgittu
Haukdal-dúkkan er
ekkert lík Birgittu.
Dúkkan er ekkert
nema nefið og ef hún
er lík einhverri söng-
konu er það helst Rut
Reginalds. Það er að
segja ef Rut hefði látið
bæta vel við nefið á sér.
Kertavaka fyrir Lúkas
Af öllu ruglinu hlýtur ruglið um smáhundinn
Lúkas að slá öll met. Málið hófst á Bíladögum
á Akureyri sumarið 2007 þegar fullyrt var að
ungir menn hefðu myrt hundinn á hrottafenginn
hátt með því að sparka honum á milli sín í íþrótta-
tösku. Fljótlega bárust böndin að einum aðalsöku-
dólgi, sem var nánast tekinn af lífi á netinu og
þurfti að koma í fjölmiðla til að bera af sér ódæðið.
Mikil sorg ríkti í samfélaginu
vegna myrta hundsins og voru
haldnar kertavökur í Reykjavík,
Akureyri og Hveragerði þar
sem grátandi hundavinir minnt-
ust fórnarlambsins. Lúkas var
hins vegar sprelllifandi allan
tímann og á flandri á fjöllum
ofan við Akureyri. Hundurinn
komst undir mannahendur
tveimur mánuðum eftir meint
andlát, horaður og hræddur, og
var komið til heilsu á ný.
Og allt hitt ruglið
Þetta rugl er nú bara toppur-
inn á ísjakanum. Ris og fall Sil-
víu Nætur, Bubbi fallinn, meint
klámstelling í Smáralindarbæk-
lingi, Ólafur „þú ert ekki fokk-
ing borgarstjóri“ F. Magnússon
og 19. aldar borgarmyndin, tuðið
um Reykjavíkurflugvöll, rausið
um Kárahnjúka, Stuðmenn í
Royal Albert Hall, kappakst-
ursplebbismi ríku strákanna í
Gumball 3000, Leoncie flæmd
úr landi, Árni Johnsen og dúk-
urinn, forsetinn og endasleppt-
ir útreiðartúrar hans, mál-
verkafölsunarmálið, svo ekki sé
minnst á Stóra klaufamálið! Allt
þetta hefði auðveldlega getað
komist á blað. Ísland – einfald-
lega ruglaðast í heimi!