Fréttablaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 122
86 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
ÞÓRARINN BJÖRNSSON SKÓLA-
MEISTARI (1905-1968) FÆDDIST
ÞENNAN DAG
„Sumir eru þannig að allt vex,
verður stærra og fegurra í ná-
vist þeirra.“
Þórarinn var kennari við
Menntaskólann á Akureyri og
síðar skólameistari við sama
skóla. Eftir hann liggja nokkur
ritverk og þýðingar. Meðal ann-
ars þýddi hann Litla prinsinn.
MERKISATBURÐIR
1821 Eldgos hefst í Eyjafjalla-
jökli sem aldrei hafði
gosið fyrr á sögulegum
tíma.
1901 Stórbruni verður á Akur-
eyri og verða 50 manns
heimilislausir er tólf hús
brenna.
1967 Lögræðisaldur er lækkað-
ur úr 21 ári í 20 ár. Síðar
er hann svo lækkaður
aftur í 18 ár.
1969 Alþingi samþykkir að Ís-
land gangi í EFTA frá og
með 1. mars 1970.
1989 Húsnæðisstofnun ríkisins
gefur út fyrstu húsbréfin.
1992 Kvikmyndin Karlakórinn
Hekla í leikstjórn Guð-
nýjar Halldórsdóttur er
frumsýnd.
Rússneska flutningaskipið Wilson Muuga strand-
aði klukkan 4.43 aðfaranótt þessa dags árið
2006, þrjár mílur út af Sandgerði, skammt frá
Hvalsnesi.
Leki komst að skipinu og töluverður sjór inn í
vélarrúmið. Danska varðskipið Tríton og björgun-
arskip frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu komu
fyrst skipa á vettvang. Átta skipverjar af Tríton
fóru í gúmmíbát til að freista þess að komast út
í hið strandaða skip en gúmmíbátnum hvolfdi.
Sjö komust lífs af úr þeim háska en einn danskur
sjóliði lést.
Giftusamlega tókst hins vegar að flytja áhöfn
Wilson Muuga í land, þá höfðu íslensku varðskip-
in Týr og Ægir bæst í björgunarskipahópinn. Þau
komu siglandi frá Vestmannaeyjum og Reykjavík.
Einnig kom þyrla Landhelgisgæslunnar til hjálpar
og sigu lögreglumaður og stýrimaður Landhelgis-
gæslunnar úr henni niður í Wilson Muuga.
ÞETTA GERÐIST: 19. DESEMBER 2006
Wilson Muuga strandaði
WILSON MUUGA Á STRANDSTAÐ. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elskuleg dóttir, móðir, tengdamóðir og
amma,
Birna Bjarnadóttir
lést á Hrafnistu Reykjavík þriðjudaginn 15. desember.
Jarðarförin mun fara fram mánudaginn 28. desember
kl. 13.00 í Bústaðakirkju.
Aðalheiður Sigurðardóttir
Jófríður Sveinbjörnsdóttir
Aðalheiður Sveinbjörnsdóttir
Stefán Þór Sveinbjörnsson Hjörtfríður Guðlaugsdóttir
og barnabörn.
Alúðar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hýhug og vináttu og
heiðruðu minningu okkar ástkæru
Sigurbjargar
Ingvarsdóttur
Hrafntóftum 2, áður Langholtsvegi 44.
Ragnheiður Jónsdóttir Hafsteinn Ingvarsson
Þórunn Jónsdóttir Steinn Þór Karlsson
Elísabet Vilborg Jónsdóttir Steinar Þór Jónasson
Pálína Jónsdóttir Björgúlfur Þorvarðsson
Margrét Fjeldsted
Jóna Borg Jónsdóttir Ludvig Guðmundsson
og afkomendur þeirra.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
50 ára afmæli
Árni Brynjar Bragason
bóndi á Þorgautsstöðum II í Hvítársíðu og
ráðunautur hjá Búnaðarsamtökum Vestur-
lands er fi mmtugur á morgun,
19. desember. Árni hefur m.a. kennt
við bændadeild Landbúnaðarskólans á
Hvann eyri síðastliðin 20 ár. Eiginkona
hans er Þuríður Ketilsdóttir. Árni fagnar
afmæli sínu ásamt fjölskyldu og vinum að
Þorgautsstöðum II á afmælisdaginn.
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir og systir,
Ása Linda
Guðbjörnsdóttir
Möbelvägen 12, Bollebygd, Svíþjóð,
lést að heimili sínu laugardaginn 5. desember.
Bálför hefur farið fram í Svíþjóð. Útför fer fram frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 22. desember kl. 13.00.
Ragnar H. Ragnarsson
Arnar Geir Stefánsson
Guðbjörn H. Ragnarsson
Guðný B. Ragnarsóttir
Guðrún Ragna Pálsdóttir
Björgvin Jens Guðbjörnsson
Gunnar Páll Guðbjörnsson
Rafnar Þór Guðbjörnsson
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, sonar og afa,
Andresar Kristinssonar
Þórólfsgötu 21, Borgarnesi.
Ásta Kristjana Ragnarsdóttir
Ragnar Ingimar Andresson Magnea Kristín Jakobsdóttir
Sigríður Andresdóttir Ingólfur Friðjón Magnússon
Kristinn Grétar Andresson
Gréta Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Halldór Friðriksson
Smáratúni 7, Keflavík,
lést miðvikudaginn 16. desember. Hann verður jarð-
sunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 22. desem-
ber kl. 13.00.
Sigríður Vilhelmsdóttir
Óla Björk Halldórsdóttir
Sigríður Björg Halldórsdóttir Kristján Sigurpálsson
Sævar Halldórsson Susie Ström
Þórunn María Halldórsdóttir Axel Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Tímamót verða hjá Rut Ingólfsdóttur
fiðluleikara á morgun er hún heldur
sína síðustu tónleika með Kammer-
sveit Reykjavíkur sem framkvæmda-
stjóri og konsertmeistari, eftir 35 ára
farsælt starf. Tónleikarnir verða í Ás-
kirkju og verkin eru ekki af verri end-
anum, Brandenborgarkonsertar nr. 2,
4 og 5 eftir Bach. „Það er hefð fyrir því
að leika tónlist frá barokktímanum á
jólatónleikum okkar og Brandenborg-
arkonsertarnir eru perlur sem gaman
er að bjóða upp á af og til,“ segir Rut.
Um kveðjutónleika er að ræða og því
er hún spurð hvernig henni sé innan-
brjósts við þessi þáttaskil? „Ég er bara
glöð og þegar ég tók þá ákvörðun að
hætta þá var ég tilbúin. Ég veit líka að
Kammersveitin fer í svo góðar hend-
ur. Guðrún Hrund Harðardóttir víólu-
leikari tekur við framkvæmdastjórn og
Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari við
sæti konsertmeistara. Margt ungt tón-
listarfólk hefur verið að koma heim frá
námi, sumt af því fyrrverandi nemend-
ur mínir, og ég veit að það mun halda
kyndlinum hátt á lofti.“
Rut stofnaði kammersveitina þjóð-
hátíðarárin 1974, ásamt ellefu öðrum
en kveðst vera ein eftir af þeim sem
hófu leikinn. Margir hafi komið við
sögu gegnum tíðina því fjöldi hljóm-
sveitarmanna hafi farið eftir verkun-
um sem flutt hafi verið hverju sinni.
„Það er ákveðinn kjarni sem mest
hefur verið leitað til. Flest höfum við
verið 35 en talan hefur líka farið alveg
niður í þrjá,“ útskýrir Rut, sem segir
kynningu á tímamótaverkum hafa
verið drjúgan þátt í starfi sveitarinnar.
„Þegar litið er til baka yfir söguna voru
mörg merkileg verk óflutt hér á landi
þegar Kammersveitin var stofnuð. Við
höfum því verið í brautryðjendastarfi
alveg frá byrjun,“ segir hún.
En hvað er nú fram undan? „Ég
mun hafa nóg að gera, það verða bara
aðrar áherslur og kannski frjálsari
tími. Vissulega mun ég halda áfram
að spila með kammersveitinni þegar
vantar fleiri fiðlur og svo ætla ég að
einbeita mér að verkum fyrir fiðlu og
píanó auk þess sem ég er líka í Skál-
holtskvartettinum. Svo ætla ég að sjá
um geisladiskaútgáfu Kammersveitar-
innar áfram. Einnig þarf ég að huga að
skjalasafninu, helst koma því inn á safn
því sveitin er mikilvæg stofnun í tón-
listarlífi Íslendinga.“ gun@frettabladid.is
RUT INGÓLFSDÓTTIR: HELDUR KVEÐJUTÓNLEIKA MEÐ KAMMERSVEITINNI
UNGA FÓLKIÐ MUN TAKA VIÐ
STJÓRNANDI Í 35 ÁR „Ég veit
að sveitin fer í góðar hendur,“
segir Rut um Kammersveit
Reykjavíkur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I