Vikan - 30.11.1961, Page 37
lnzunni, sem sker úr aO allt sé með
felldu.
Ég spurðl Wisman hvaö gerast
mundi, ef hann reyndi að komast
yfir dulmálsorðin og senda hau áleið-
is sem rásorö. „'Éer yrði skotinn til
bana á staðnum," svaraði hann, og
Það leyndi sér ekki að hann átti við
að kúlurnar myndu koma úr skamm-
byssum hinna vopnuðu samstarfs-
manna sinna.
Þá víkur málinu að flugvirkjunum,
sem stöðugt eru á eftirlitsflugi, inn-
an þeirra takmarka, sem þau mega
ekki fljúga yfir án sérstakrar skip-
unar um að fara beina leið að skot-
mörkum sínum og láta til skarar
skríða. Um borð í sérhverju þeirra
er „þeirra" brot af dulmálssetning-
unni. Eða eins og Wisman komst að
orði — þeir hafa part úr kökunni, en
við höfum hana alia. Um leið og við
sendum þeim alla setninguna, sjá þeir
hvar þeirra rásorð fellur inn í, ann-
ars er rásorðið þeim með öliu gagns-
laust. Af sex manna áhöfn um borð i
hverri flugvél eru það þrír, sem bera
rásorðið á sér, og þeir verða aliir að
taka á móti sendingunni og bera
saman bækur sínar, og fullvissa sig
um að ailt sé með felldu.
Að því loknu verða þrír af áhöfn-
inni, hver á sínum ákveðna stað, og
hver með sinn aðstoðarmann að vinna
saman í nokkrar minútur að fram-
kvæmd sex atriða. sem krefjast ýtr-
ustu nákvæmni, áður en unnt er að
varpa virkri sprengju. Séu ekki öll
þessi atriði framkvæmd til fullnustu,
ailar leiðslur settar í samband og
ailir hemlar leystir, er sprengjan ó-
virk.
Eh hvað mundi gerast ef þrír eða
fleiri af áhöfninni yrðu á eitt sáttir
um að fljúga að áður tilteknu
skotmarki og láta virka sprengju
falla? Sem betur fer getur flugvirkið
ekki vikið af leiö án þess aö vart
verði i eftirlitsstöðvunum. Öllum sér-
fræðingunum bar saman um, að ef
slíkt gerðist, mundu bandarisk yfir-
völd tafarlaust. tilkynna þeim sovézku
það eftir dipiomatiskum leiðum,' og
biðjast um leið mikillega afsökunar
— áður en flugvirkið hefði komizt
nálægt skotmarki sínu. Flugvirkið
yrði Því skotið niður, annaðhvort af
bandariskum flugvélum eða rúss-
neskum, áður en nokkurt mein yrði
að. „Það yrði svo látið iiggja í þágn-
argildi", sagði einn af þeim háttsettu
i flughernum.
Það er því óhugsandi að nokkur
siík flugvél gæti valdið styrjaldará-
tökum. Eins manns flugvélar hafa
aldrei nein kjarorkuvopn meðferð-
is.
En það eru ekki lengur flugmenn-
irnir einir, sem hafa yfir kjarnorku-
sprengjum að ráða. Eða með öðrum
orðum — flugvélarnar eru ekki leng-
ur einu kjarnorkusprengjuberarnir.
Það er haft fyrir satt að tuttugu og
sjö Atlaseldflaugar, sem draga 6.300
mílur, standi rásbúnar í ýmsum flug-
stöðvum í Bandarikjunum; á Bret-
landi er komið fyrir sextíu Thor-eld-
flaugum, sem draga 1500 mílur; tveir
kafbátar eru í förum, hvor um sig
búinn 16 Polarisflugskeytum, og auk
þess hafa ýmis bandarísk herfylki er-
lendis yfir kjarnorkuvopnum að ráða.
Kjarnorkuvígbúnaðurinn eykst
hröðum skrefum. Innan skamms
verða fullbúnar tíu Atlas-skotstöðvar
til viðbótar, hver um sig með níu
kjarnorkueldflaugum. Titan-eldflaug-
arnar, sem draga 6000 mílur, verða
fullgerðar í sumar, og um fjörutíu og
fimm Jupiter-flaugar, sem draga 1500
mílur, verða staðsettar í ýmsum
bandamannaríkjum Evrópu. Gert er
ráð fyrir að nýr Polarisskeytakafbát-
ur veröi tekinn í notkun með nokk-
urra mánaða millibili næstu þrjú árin.
Fyrstu „Minuteman“-eldfiaugarnar
af 500 — en þær draga heimsálfanna
á milli, verða settar 1 skotstöðu áriö
1962.
Af þróun þessari leiðir að stööugt
Frunhald á juecta aiSo.
olivetti
AUDIT 402 BÓKHALDSVÉLIN
*
*
*
*
IÐNAÐUR OG VERZLUN
VIÐSKIPTAMANNABÓKHALD — REKSTURSBÓKHALD — LAUNABÓK-
HALD og BIRGÐABÓKHALD.
BANKAR O G SPARISJÓÐIR
FÆRSLA Á SPARISJÓÐSSPJÖLDUM — ÁVÍSANASPJÖLD —
HLAUPAREIKNINGSFÆRSLUR.
BÆJAR OG SVEITARFÉLÖG
ÚTSVARA OG SKATTAFÆRSLUR — FÆRSLA Á TRYGGINGAGJÖLDUM —
ALMENNT BÓKHALD.
SJÚKRASAMLÖG, VÁTRYGGINGAFÉLÖG
IÐGJALDAREIKNINGAR — IÐGJALDAfTILKYNNINGAR — BÓTA-
GREIÐSLUR O. FL.
OLIVETTI AUDIT 402
ER ÓDÝRASTA BÓKHALDSVÉLIN Á MARKAÐNUM. HÚN
GETUR UNNIÐ 4 ÓSKYLD VERKEFNI í HVERJUM
STJÓRNKAMBI. AUDIT 402 ER FULLKOMIN BÓKHALDS-
VÉL, STERK OG ÖRUGG OG ER SELD MEÐ EINS ÁRS
ÁBYRGÐ. FULLKOMIN VIÐHALDSÞJÓNUSTA Á EIGIN
VERKSTÆÐI TRYGGIR LANGA ENDINGU OG ÓDÝRAN
REKSTUR. AUDIT 402 KOSTAR AÐEINS KR. 59.780.00.
G. HELGASON & MELSTED H.F.
RAUÐRÁRSTÍG 1. — SÍMI 11644.
VIKAN 37