Vikan


Vikan - 26.04.1962, Side 13

Vikan - 26.04.1962, Side 13
ís 3 Sama ár reit Docteur Cathelinau sögu sína, „Ferðin til tunglsms'-. Það var fyrsta eiginlega „vísindalega skáldsagan". Þar ræðir meðal annars urn „andþyngdaraflið", en einmitt nú eru Bandaríkjamenn að rannsaka það fyrirbæri í harðri keppni við sovézka vísindamenn. 4 j>eir Le Faure og Graffigni þurftu alls þrjú bindi til að segja frá öli- um þeim ævintýrum, sem rússneskur vísindamaður lenti í úti í geimnum. Þar segir í fyrsta skipti frá „fljúgandi diski“, en sá farkostur var knúinn ljósorku. Bókin kom út árið 1889, en hlaut ekki sérlega góðar viðtökur — höfundarnir voi'U svo langt á undan sarntíð sinni. Og að unnt væri að knýja nokkurn farkost ljósorku — 5 „Eldhringurinn“, skáldsaga Miral-Vigiers kom út árið 1922, og notaði höfundurinn málm nokkurn, 60.000-falt öflugri að geislaorku en radíum, til að knýja farkostinn um geiminn, og kallaði hann „virium“. Eins og myndin sýnir var þarna um útstreymisþrýsting að ræða, eða þá aðferð, sem nú er notuð. 6 K. Gulzine, rússneskur rithöfundur, reit bók um landgöngu á mán- anum, sem kom út árið sem leið, undir nafninu „Fjarlægar veraldir'*. í Sovétríkjunum nýtur rithöfundurinn mikils álits sem góður rithöfundur á sínu sviði. Þannig höfurn við nálgazt landamæri hugaróra og raunveru- leika. Hvenær koma svo fréttirnar af fyrstu tunglferðinni ... ? 1 Árið 1860 reit Alfred Driou bók, sem fjallaði um för Parísargeimfara til tunglsins. Hann og félagar hans brugðu sér þangað í loftbelg — og fengu slæmt kvef í ferðinni. 2 Skáldsaga Jules Verne, „Frá jörðunni til tunglsins“, korn út árið 1865. Jules Verne var fyrsti maðurinn, sem vitað er um að tæki eldflaugarnar „í notkun“. Það er örðugt að gera sér grein fyrir því nú, hvílíkt hugarflug og hugmyndaauðgi þurfti til þess á þeirri tíð. Meðfylgjandi teikning, sem tekin er úr bók hans, sýnir að mun rýmra var þó um geimfarana í skipi hans, en þá Gagarin, Títov og Glenn. Þannig hugsuðu menn sér tunglferðir á öldinni sem leið

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.