Vikan - 26.04.1962, Blaðsíða 24
Ungfrú
Yndisfríð
Hvnr er
örkin hnns
NÓ*?
SíSast þegar clregiS var hlaut verðlaunin:
G'UÐRÚN HARALDSDÓTTIR,
Rauðalæk 41, Reykjavík.
Enn er þaS Örkin lians Nóa, sem ungfrú YndisfríS
hefur falið i blaSinu. Kannski í einhverri mynd-
inni. ÞaS á ekki aS vera mjög erfitt aS finna hana
og ungfrú YndisfríS heitir góSum verðlaunum:
Stórum konfektkassa, sem auðvitað er frá Sælgætis-
gerðinni Nói.
Nafn
Heimilisfang
Örkin er á bls. Simi
Er
athyglisgáfan
i lagi?
Svo virðist sem teikningarnar séu báðar eins,
en látið nú ekki blekkjast! í rauninni hefur
teiknarinn breytt neðri teikningunni i sjö at-
riðum. Reynið nú að finna þessar sjö breytingar
áður en þið flettið upp lausninni, sem er á
bls. 43.
24 VIKAN
Eartha Kitt.
Dansmærin varð fræg
söngkona.
Hún dansaði með hinum fræga dansflokki
Kathryn Dunham og ferðaðist um heiminn.
Einn góðan veðurdag þegar flokkurinn var í
París datt henni í hug að reyna að syngja.
Flokkurinn yfirgaf Paris en hún varð kyrr,
fékk vinnu sem söngkona og söng skömmu
síðar inn á hljómplötu lagið „Under the
bridges of Paris“, sem náði metsölu, og síðan
hverja plötuna á fætur annarri.
Hún heitir Eartha Kitt, auðvitað kannast
allir við hana. Nú syngur hún ekki lengur
inn á plötur sem ná metsölu. Eins og margar
stórar stjörnur kemur hún fram i næturklúbb-
um og sjónvarpsþáttum í nokkra mánuði á ári.
Um þessar mundir hefur Eartha komið fram
á næturklúbb og haía allir grætt, gestirnir góða
skemmtun, klúbburinn mikla peninga og blaða-
mennirnir hverja myndina annarri betri, eins
og t. d. þá sem fylgir þessari, þvi Eartha er
að sögn þeirra, sem séð hafa hana stórglæsi-
legur kvenmaður.
Paul Anka.
Paul Anka: The bells at my wedding og
Loveland. Að sjálfsögðu eru bæði lögin eftir
Paul Anka, sem einnig semur textana. Þannig
hefur það verið með allar þær plötur, sem
Paul hefur sungið inn á undanfarin ár, og
fyrir bragðið er Paul sagður vera tekjuhæsti
unglingur í heiminum, þvi flestallar plötur
hans hafa náð metsölu.
Fyrra lagið á þessari plötu stenzt ekki sam-
anburð við mörg fyrri lög höfundarins, það
er hins vegar þessi létti blær yfir síðara lag-
inu og er ekki ólíklegt að það eigi eftir að
ná vinsældum. Söngurinn hans Anka er orðinn
hrjúfur á köflum og röddin hefur lækkað,
þetta hefur líklega haft sitt áð segja, því á
hann hefur vart heyrzt minnzt á vinsælda-
listanum undanfarna mánuði. E'n þó vinsældir
hans hraki eitthvað sem söngvara, þá mun
hann áreiðanlega halda áfram að semja lög,
þessi einföldu, en skemmtilegu lög, sem við höf-
um heyrt á undanförnum árum. Platan fæst
í Fáikanum, Laugavegi.
Chubby Checker.
Chubby Checker: Oh, Susannah og Pony
time. Konungur twist-laganna er hér í essinu
sínu. Þó eru þetta hvorttveggja lög, sem hann
söng inn á plötu fyrir ári síðan, þegar enginn
hafði heyrt minnzt á twist. En síðan twist náði
vinsældum og Chubby Checker náði heimsfrægð
þá hafa fyrri plötur hans verið gefnar út á
ný og hvarvetna náð metsölu. Bæði eru lögin
upplögð til að dansa twist eftir, er þetta ein
bezta twistlaga platan, sem komið hefur hing-
að.Söngur Chubby er alltaf frískur ogskemmti-
legur. Platan fæst í Fálkanum, Laugavegi.
Gamla myndin.
Þessi mynd var tekin fyrir
eilefu árum af tríói Ólafs
Gauks, sem fór i hljóm-
leikaferð um landið með
skemmtiflokki er nefndist
„Stjörnukabarettinn".
Ólafur Gaukur Þórhalls-
son, gítar (leikur nú í hljóm-
sveit Andrésar Ingólfsson-
ar), Kristján Magnússon,
píanó (starfar nú sem blaða-
ljósmyndari en leikur lítið
sem ekki í hljómsveitum),
Jón Sigurðsson, bassi (leik-
ur í Sinfóníuhljómsveitinni
og er auk þess útsetjari og
stjórnandi æfinga Lúdó-
sextettsins og hljómsveitar
Andrésar Ingólfssonar).