Vikan - 26.04.1962, Blaðsíða 16
FALLEGUR OG LETTUR
NATTKJ Ó LL
Hér kemur snið af einföldum og fallegum náttkjól,
sem hvort heldur má sauma saman úr lérefts- eða silki-
efni. — Efni í síðan náttkjól, 3,50 m af 90 cm breiðu efni.
Efni í stuttan náttkj#, 1,65 m af 90 cm breiðu efni.
Byrjið á að búa tiJ sniðið þannig að strika ferninga
á pappir, 5x5 cm hvern ferning.
Teiknið síðan sniðið eftir skýringarmyndinni og klipp-
út. Lengið sniðin eftir vild.
Leggið sniðin á tvöfalt efnið og ath. að miðja að
framan og aftan komi við tvöfalda brún efnisins og
efnið iiggi yíir þræði. Sníðið með 1 cm saumfari.
Sníðið nú fram og afturstykki, 1 stk. af hvoru, siðan
herðastykki að aftan og framan, 2 stk. af hvoru, síðan
pífuna 15 cm breiða og 3 sinnum yfir efnið.
Takið annað herðastykki að framan og merkið fyrir
götum eftir skýringarmyndinni, klippið með fíngerðum
skærum og saurnið með silkitvinna og kappmelluspori.
1 þessi göt er síðar dregið silkiband.
Rykkið fram- og afturstykki, svo Þau verði hæfiieg
við herðastykkin.
Faldið handvegina 1 höndum með rúllufaldi. Saumið
saman axlarsauma á herðastykkjum og strauið út. Saum-
ið herðastykkin við fram- og afturstykki með röngu
mót röngu, ath. að miðjur á stykkjunum mætist. Leggið
efri herðastykkin réttu mót réttu við þau neðri og
saumið, fyrst hálsmáiið og siðan stykkin niður á nátt-
kjólinn. Gjarnan má stinga tæpt í brún við hálsmálið
eða sauma mjóa blúndu við.
Saumið nú saman hliðar náttkjólsins með skyrtu —
eða tvöföldum saúmi.
Saumið pifuna saman með tvöföldum saumi, faldið,
rykkið, mælið og þræðið við kjólinn, þannig að rykk-
ingin verði jöfn allt í kring. Klippið af saumfarinu,
þeim megin, sem pifan er, leggið saumfarið af kjólnum
yfir og leggið niður við í höndum í vélsporið.
Dragið silkiband i götln á herðastykki að framan
og hnýtið slaufu.