Vikan - 26.04.1962, Qupperneq 43
West Side Story.
Framhald af bls. 21.
verzluninni og átti hana vist, halda
heimleiðis og nokkrum mínútum fyr-
ir klukkan sex hélt hin holdþrýstna
stúlka Bernardos einnig á brott —
en sneri við aftur, Tony til mikillar
gremju, barði á hurðina og María
hleypti henni inn. Ekki hafði Aníta
þó staldrað við nema stundarkorn og
var nú farin.
Og nú brá Tony sér yfir götuna.
Hann hafði ákafan hjartslátt, þegar
stúlkan, sem svifið hafði með honum
til stjarnanna í nótt er leið, opnaði
fyrir honum, rétti honum hönd sina
hljóð og ljúf og leiddi hann inn fyrir.
„Ég hélt að klukkan ætlaði aldrei
að verða sex,“ sagði hann.
„Ég horfði stöðugt á klukkuna, og
mér íannst sem visarnir hreyfðust
ekki,“ sagði María.
„Ég segi sama,“ svaraði Tony og
svipaðist um inni í verzluninni. „Það
er ekki svo ákaílega heitt hérna; ekki
líkt því eins og heima.“
Sama sagði senóran. Hún sagði að
það væri svalara hérna en heima í
íbúðinni sinni. Og ég hélt að hún
ætlaði aldrei að koma sér heim."
Tony snart hvitt silkið, sem lá á
borðinu. „Hún gerði Það nú samt í
tæka tíð. En svo sneri hin aftur."
„Anita?“
„Hún heitir það víst .... stúlkan,
sem er með Bernardo."
„Já, Anita," svaraði Maria. „Hún
vildi endilega íá mig heim með sér.
Hvað heidurðu að hún kalli konuna,
sem á búðina?" Og Maria teygði út
armana og hermdi eftir Anítu.
„Skass?"
„Já, og annað lakara. Bruja ....“
„Hvað þýðir það?“
„Galdranorn."
„Einmitt það,“ varð Tony að orði.
„En það mætti vera sterkt sópskapt,
sem bæri hana út í geiminn."
Framhald í næsta blaði.
Hve glögg eruð þið?
LAUSN.
1. Oddurinn á svarta fánanum hef-
ur beinzt upp á við. — 2. Hlaupari
nr. 1 hefur lyft vinstra fæti. — 3.
Hárið á hlaupara nr. 2 er slétt. —
4. Axlarhlirar hlaupara nr. 2 eru
mjórri. — 5. Talan þrír er ekki eins.
•— 6. Hlaupari nr. 6 lyftir vinstri
hendi meira. — 7. Dómarinn hefur
öðruvísi axiir.
Plötur og dansmúsík.
Framhald af hls. 24.
TROMMU-SANDY.
Hann heitir Sandy Nelson og dag
nokkurn þegar hann var að leika
undir hjá einhverjum söngvaranum,
sem var að syngja inn á plötu þá
datt honum í hug hvort ekki væri
hægt að leika inn á plötu með
rhythmahljóðfærum einum saman,
trommum, bassa og gítar og ekki
lag, heldur bara rhythma, en þó
svo að það væru viss kaflaskipti
á þessum þremur mínútum, sem
Sandy Nelson
platan átti að standa yfir.
Nú, hann’lét ekki standa við orð-
in tóm. Og auðvitað náði platan
metsölu, lagið hét „Teen bean“,
síðan kom „Drum party“ og þá
„Bongo rock", sem meira að segja
náði þó nokkrum vinsældum hér.
Svo heyrðist ekkert frá Sandy i
nokkra mánuði, cn það var ckkert
vit. Nú var hann orðinn þckkt
hljómplötustjarna. Hann raðaði nið-
ur rhythma á nýja plötu, skírði
hana „Let there be drums“ og seldist
hún betur en allar hinar til samans.
Og vegna allra þeirra, sem ekki
komust í Háskólabíó til að sjá Laurie
London þegar hann var hér, þá sendi
hann okkur ])essa ágætu mynd af
sér. Og það var reyndar vel til fund-
ið, þvi það birtist ekki mynd af hon-
um þegar minnzt var á hljómleika
hans hér fyrir nokkru.
RAFMAGNSF.LDAVÉLAR
MARGAR GERÐIR
25 ÍRA REIN8LA
Gerð 4403-4 fáanlegar með
3 eða 4 hellum, glópípu
eða steyptum (heilum),
klukku og Ijósi, glóðarrist
og hitaskúffu.
Verð frá kr. 4.750.00
Eldavélasett til innbygging-
ar í ný eða gömul eldhús, 2
gerðir, einnig með glóðarrist
Verð frá kr. 7.090.00 settið
Ódýrasta eldavélin á
markaðnum
Gerð 2650 - 3
steyptar hellur,
auðveldar í hreins-
un, með bökunarofni
KBK
H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN HAFNARFIRÐI
vikan 43