Vikan


Vikan - 10.01.1963, Blaðsíða 10

Vikan - 10.01.1963, Blaðsíða 10
ÞAÐ ÞARF MEIRA EN PENINGA, TIL AÐ DREPA LEIKGLEÐINA. SAMA HUGSJÓNIN, SEM HALDIÐ HAFÐI STARFSEMI LR UPPI UNDANFARIN ÁR, HÉLT í ÞVÍ LÍFINU, ÞÓTT KEPPINAUTUR VÆRI FÆDDUR. Þegar Þjóðleikhúsið lók til starfa, töldu margir, a<5 nú væru dagar Leik- félags Reykjavíkur taldir. Fæstum datt í hug, að tvö Jeikhús gætu þrifizt í Reykjavík, auk ]>ess varð sú breyting á með tilkomu Þjóðleikhússins, að skilyrði mynduðust fyrir leikara landsins til þess að lifa af listgrein sinni. Þjóðleikthúsið lióf að borga leikstörfin svo rikulega, að þeir, sem þar voru á samningi, þurftu ekki á annarri vinnu að halda, til þess að framfleyta sér og sínum. Það að auki lijó húsið stórt skarð I hópinn, sem árum saman hafði haldið uppi starfsemi Leikfélagsins. En það þarf meira en peninga til þess að drepa leikgleðina. Fæðing Þjóðleikhússins olli ekki dauða Leikfélagsins, í trássi við þá reglu, að eins dauði sé annars brauð. Sama hugsjónin, sem lialdið hafði starfsemi LR uppi undanfarin ár, hélt í því lifinu, þótt keppinautur væri fæddur. Ungt fólk og efnilegt fyllti skörðin, og Leikfélagið hélt áfram að skemmta gestum sinum í Iðnó, rétt eins og áður. Og oft á tímum hefur Þjóðleikliúsið orðið að sætta sig við það, að leikrit Leikfélagsins væru betur sótt og gengju lengur en þess. Enn gengur þetta á sama hátt. Leikfélagið heldur uppi mikilli og góðri starfsemi, án þess að geta borgað starfskröftum sínum nema örlitla þóknun, brot af ])ví, sem lalið er sæmilegt leikarakaup. Og enn hefur Leikfélagið góðum Icikurum á að skipa. Margir þeirra verða jafnframt að stunda aðra vinnu, til þess að sjá fyrir sér og fjölskyldum sínum. Við skulinn skreppa og spjalla svolítið við þrjá kunna leikara úr þess- um hópi. Við mætum Jóni Sigurbjörnssyni í anddyri Útvarpshússinsj og urðum hon- um samferða inn i lyftuna. Þegar hurðin var nærri komin að stöfum ú eftir okkur, kom roskinn, grannvaxinn maður þjótandi, reif liurðina upp og spurði: ÞORSTEINN O. STEPHENSEN. — Hvert ætlið þið? — Við ætlum að finna Þorslein Ö. — Hann er uppi á sjöttu hæð. Svo fengum við að halda áfram. Þorsteinn var ekki við, þe'gar við komum, svo við snerum okkur að Jóni Múla í staðinn, og fengum að heyra Friedrich Gulda spila jass. Þegar því lauk, var Þorsteinn kominn. — Ég hef alltaf stundað önnur störf jafnhliða leikstörfunum, sagði liann. — Það er orðið langt síðan ég byrjaði hjá Ríkisútvarp- inu, fyrst við þularstörf, var framan af aðstoðarþulur og stundaði jafnframt skrifstofustörf. Ég man aldrei ártöl, og get þess vegna ekki sagl ykkur, hvenær ég gerðist aðalþulur, en i þessu starfi, starii leiklistarstjóra Ríkisútvarpsins, hef ég verið í fimmtán ár. Jafnframt Iief ég litillega stundað þýðingar. Iíkki margar hækur, en dálítið af leikritum, hæði fyrir útvarpið og Leikfélagið. Jú, ég úef leikið nokkuð með Leikfélaginu, einkum á árunum eftir að Þjóð- leikhúsið tók til starfa, en ég hef ekki verið mikið á sviði nú síð- ustu árin. Það gefur auga leið, að maður hefur ekki mikinn tíma til að vera heima, þegar maður vinnur fulla vinnu á daginn, og er svo að leika eða æfa á kvöldin. Það er nú svo með okkur leikarana, að okkar lifnaðarhættir verða dálitið óvenjulegir. Okkar störf hjá Leikfélaginu eru mjög lágt launuð. Við reynum að vísu að borga ölluin, hvort sein ]iað eru leikarar eða aðrir starfs- menn, en ef miðað er við vinnutima og erfiði, erum við áreiðan- 10 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.