Vikan


Vikan - 10.01.1963, Blaðsíða 42

Vikan - 10.01.1963, Blaðsíða 42
feONA&M&im BÚNAÐARBLAÐIÐ flytur bændum: Frásagnir af reynslu annara bænda við búskap, leiðbeiningar ráðunauta og vísindamanna, erlendar nýj- ungar, sem eiga við íslenzka staðhætti. BÚNAÐARBLAÐIÐ er óháð stjórnmálum og stéttasamtökum. BÚNAÐARBLAÐIÐ er ómyrkt í máli og hefur hag bændastéttarinnar fyrir augum í skrifum sínum. BÚNAÐARBLAÐIÐ kemur út 12 sinnum á ári. Áskriftargjald er aðeins 150,00 krónur á ári. Áskrifendur VIKUNNAR fá blaðið ókeyjpis ef þeir óska. ÁSKRIFTARSEÐILL ; 'í5 Nafn: ..................................................... Heimili: .................................................. Sýsla: .................................................... □ Greiðsla fylgir. □ Sendið í póstkröfu. BÚNAÐARBLAÐIÐ — Skipholti 33 — Pósthólf 149 — Reykjavík. hún úti í bílnum, á leiðinni til Wilmersdorf, þar sem þau bjuggu. Hún sat við hlið Kurt, eiginmanni sínum, og lét höfuð sitt hvíla við öxl honum. Það var dásamlega ró- andi. „Jæja, vina mín,“ sagði hann ann- ars hugar og fór síðan að raula stef úr Pílagrímskórinum eftir Wagner, en það var vandi hans, þegar hann glímdi við einhverjar lögfræðileg- ar gátur. „Heitt bað,“ hugsaði Evelyn og stundi. Heitt bað var henni unaðs- legra en nokkuð annað, hitinn, hvíldin, gleymskan. Hins vegar var það alltaf vandkvæðum bundið að fá heitt baðvatn, þægindin í embætt- ismannabústöðunum voru af skorn- um skammti; venjulega mátti mað- ur þakka fyrir ef vatnið var volgt. Þau voru ekki fyrr komin heim en hún var komin inn í baðherbergið. Sér til óumræðilegrar gleði komst hún að raun um að baðvatnið var 42 VIKAN snarpheitt. Kurt var frammi í eld- húsinu; sennilega var hann að leita þar að ávöxtum. Innan stundar var baðkerið orðið hálffullt og hún tók að afklæðast. „Eru ekki neinir ávextir til,“ kall aði Kurt frammi. Evelyn brá sér fram í búrið, kom að vörmu spori aftur með ávexti í skál og bar inn í svefnherbergið, þar sem hann stóð og var að fara úr samkvæmisskrúðanum. Hann sýndist annars hugar. „Bananar," sagði hann með von- brigðahreim. „Á ég að ná í ávaxtasafa?" spurði Evelyn. Hann virtist hafa gleymt öllu saman. „Já, þakka þér fyrir ... nei, annars ... það er óþarfi," sagði hann utan við sig og í þungum þönkum. Evelyn vildi helzt af öllu fá að vera ein. Fá næði til að hugsa um Frank. Hún lét Kurt einan, þar sem hann stóð inni í svefnherberginu hjá ávaxtaskálinni og gekk inn í baðherbergið. Hún lagðist nakin í heitt vatnið, virti fyrir sér líkama sinn með undrun, eins og hann væri henni framandi. Hún fann til magnleysis í hnjánum, titrings í handleggjunum, einhvers annarlegs hungurs í brjóstunum og ófullnæg- ingar, sem nálgaðist sársauka, í líf- inu. Evelyn vissi ekki hvað hún átti eiginlega til bragðs að taka gagnvart þessum framandi, hungr- aða líkama og fór að hugsa um Frank. Hann hafði heitið að skrifa henni. Sennilega hafði hann ekki einu sinni hugmynd um heimilis- fang hennar. Ósjálfrátt hleypti hún brúnum þegar Kurt kom inn í bað- herbergið. Hann var kominn í nátt- fötin, og í fyrsta skipti varð hún gripin ótta og blygðun yfir því, að hann skyldi líta hana nakta. Ósjálf- rátt greip hún baðhandklæðið og huldi brjóst sín augum hans, enda þótt hann veitti henni ekki neina athygli, heldur tæki að bursta tenn- ur sínar af þeirri natni og vand- virkni, sem jafnan einkenndi hann. „Jæja, vina,“ varð honum að orði, þegar tannburstunarathöfninni var lokið. „Þessi samkomukvöld í klúbbnum eru í rauninni drepleiðin- leg, og þó að prófessorinn sé snjall skurðlæknir, er hann heldur lélegur bridgespilari." Hann gekk að baðkerinu, snart arm hennar og það fór um hana hrollur af andúð. Aldrei áður hafði hún kunnað því illa, að þessi hái, grannvaxni og spengilegi maður snerti líkama hennar, og hún varð að taka á öllu, sem hún átti til, svo að hann yrði þess ekki var. „Ætlarðu kannski að fá þér bað?“ spurði hún, í þeirri von að hann neitaði því og hyrfi á brott úr bað- herberginu, áður en hún stæði upp í kerinu. „Kalda steypu,“ svaraði hann. „Aítli ég láti það ekki duga.“ Þar með var hún tilneydd að standa upp og þerra nakinn líkama sinn, að honum ásjáandi. Sem betur fór, virtist hann ekki veita henni neina athygli, og hún lét baðhand- klæðið skýla nekt sinni, eins og henni var unnt. „Þú þekkir konu að nafni Rupp?“ spurði hann eins og annars hugar. Evelyn var í þann veginn að draga náttkjólinn yfir höfuð sér. „Já,“ svaraði hún, undrandi. „Hvernig kunnir þú við hana?“ spurði hann, og það brá fyrir nokkr- um strangleika í röddinni. Þannig spurði hann eflaust vitnin í réttar- salnum. Evelyn reyndi að muna eitt- hvað í sambandi við þessa konu, sem annazt hafði þvotta og hrein- gerningar fyrir þau um alllangt skeið, þangað til fyrir nokkrum mánuðum. Evelyn mundi að hún hafði verið föl í andliti og frekn- ótt, minnti að hún hefði verið með rautt hár, en var ekki viss um það. Kurt var kominn undir steypuna. „Var hún þjófótt?“ spurði hann. „Hamingjan góða .. . maður veit hvernig þetta fólk er,“ sagði hún. Og í rauninni vissi hún, að það hafði verið ýmislegt, sem þvotta- konan hafði stungið í skreppu sína, en þó einungis smávægilegt. Það fór hrollur um Evelyn þegar hún minntist uppnámsins sem orðið hafði, þegar eldabuskan komst að þessu; fann sápustykki, götótta sokka og gamla vekjaraklukku í skreppu þvottakonunnar og lýsti hana þjóf. Eftir það hafði Rupp ekki komið til starfa. Og nú hafði hún verið dregin fyrir rétt, ákærð um að hafa myrt tengdamóður sína, og hún hafði játað á sig glæpinn. Undarlegt hvernig sérhver mann- eskja átti sitt leyndarmál, hugsaði Evelyn og hleypti brúnum. Það var eins og henni hefði aukizt mjög öll hæfni til að skilja aðra þessa síð- astliðnu viku. Og allt í einu fannst henni sem hún skildi orsök þess að þessi kona hafði hnuplað. Kannski var það sama orsökin, sem réði því, að hún hafði gerzt sek um morð. Kurt stóð nú allsnakinn undir steypunni. Evelyn virti fyrir sér íturvaxinn og spengilegan líkama hans með annarlegri andúð, og loks hætti vatnsniðurinn. „Hún var gift mjög glæsilegum manni og unni honum afar heitt,“ sagði Evelyn. Framhald í næsta blaði.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.