Vikan - 10.01.1963, Blaðsíða 19
FLYNN
SONUR
ERROL FLYNNS
Erol Flynn, kvennagull, kvik-
myndaleikari og„playboy“ lézt úr
hjartaslagi vestur í Kanada 1959.
Hann var þá maður á miðjum aldri
en búinn að lifa nokkuð hátt. Dauði
hans vakti talsverða athygli, þar
sem Errol Flynn hefur um árabil
verið meðal hinna vinsælustu kvik-
myndaleikara, sérstaklega í hlut-
verki hjartaknúsarans. Hins vegar
var ekki á það minnzt um það leyti,
sem hann dó, að hann ætti nálega
uppkominn son. En nú er drengurinn
í þann veginn að feta í fótspor
föðurins og ráðinn til að leika í
mynd sem heytir „Sonur Bloods
skipstjóra“ og er framhald af mynd,
sem Errol Flynn lék í einhvern tíma
á árunum.
Sean Flynn er nú rúmlega tvítug-
ur og hið mesta glæsimenni. Hann
er 190 cm á hæð vel vaxinn og vegur
90 kg; hefur mjög laglegt andlit eins
og faðir hans, brún augu og skol-
litað hár, liðað.
Það er sagt, að Sean sé kven-
hollur vel, rómantískur en samt
frískur og fjörugur og vinsæll meðal
þeirra, sem kynnast honum.
Móðir hans er leikkona, Lili Dam-
ita, sem var gift Errol Flynn um
skeið. Hún hafði mikið dálæti á
drengnum og gaf honum allt, nema
gott heimili. Honum var komið á
alls konar dýra skóla, en drengur-
inn var meira fyrir kappakstur,
veiðar og sport en lærdóm. Þau
skildu, þegar hann var nokkurra
mánaða gamall og upp frá því sá
hann föður sinn mjög sjaldan. Hann
heimsótti drenginn aldrei. En nú er
Sean þeim óháður og á sjálfsagt
glæsilega framtíð fyrir höndum, ef
ekkert óvænt kemur fyrir.
HRÆDDUR
YIÐ FLUG
Tony Curtis hefur verið illa haldinn af
flughræðslu. Það gekk svo langt, að hann
neitaði hreinlega að fara upp í flugvél — þótt
hún stæði kyrr á flugbraut. Þegar hann þurfti
að fara til f jarlægra landa, vegna myndatöku,
fór hann alltaf með skipi, þótt með því móti
tæki ferðin jafn margar vikur og klukku-
stundirnar hefðu orðið margar með fiugvél.
Svo gerðist það í sumar, að Tony var við
kvikmyndatöku í Lake Tahoe ásamt Danny
Kaye, sem er áhugasamur flugmaður. Og
Danny tókst að lokka Tony upp í flugvélina
sína og taka hann með sér í flugferð. Og þá
gerðist undrið. Tony fannst gaman að fljúga
og gleymdi hræðslunni og hjátrúnni.
Nokkrum dögum seinna þurfti hann að
fara aftur til Hollywood, og vitaskuld fór
hann með flugvél.
FYRIR
UNGA
FOLKIÐ
VIKAI
og þátturinn
ALLT FYRIR UNGA FÓLKIÐ
óskar öllu ungu fólki og öðrum les-
endum sínum árs og friðar með þökk
fyrir liðið ár.
YOKO TANI
HÁRIÐ ER
HENNAR HELGI-
DÓMUR
Austurlenzkt og einkum þó
japanskt kvenfólk hefur verið
talsvert í tízku í kvikmynda-
heiminum að undanförnu.
Þessi, sem myndin er af, er ein
þeirra og heitir Yoko Tani.
Ilún lék nýlega Eskimóastúlku
og núna hefur hún aðalhlut-
verk í kvikmynd, sem heitir
„Geishan mín“. Yoko Tani hef-
ur hár svo sítt, að tekur henni
í mitti og hún lítur á það sem
kórónu sköpunarverksins. Það
er sagt, að hún fari snemma
á fætur á morgni hverjum til
þess að laga það til, áður en
hún fer til vinnu. Fyrst togar
hún í það til þess að örva
blóðrásina að hársrótunum,
burstar það síðan, eltir og
kreistir og finnst, að aldrei
geti hún gert of mikið fyrir hárprýðina.
En Yoko Tani hefur að sjálfsögðu
ýmsa aðra kosti en fallegt og sítt hár.
Hún hefur mjög augljósan kynþokka,
sem enginn krrlmaður kemst hjá að
taka eftir, nema hann sé dauður úr
öllum æðum.
Yoko Tani er bó ekki innfædd í Japan
heldur í Frakklandi, þar sem faðir
hennar var í utanríkisþjónustunni
Framhald á bls. 45.
KATIA LORITI
HUGPRÚÐ HNÁTA
Það má með sanni segja, að hún
sé hugprúð og dugleg, skvísan, sem
við sjáum hér á myndinni. Fyrir
sex árum síðan tók hún sig til heima
hjá sér í Þýzkalandi og festi kaup á
farmiða alla leið til Spánar. Hélt
hún síðan til þess fyrirheitna lands,
ákveðin í að afla sér fjár og frama,
hvað henni heppnaðist von bráðar,
sakir sins einstæða dugnaðar og á-
ræðis. Nú hefur hún þegar leikið í
sex kvikmyndum og er ein dáðasta
kvikmyndastjarna senjóranna og
senjórítanna suður á Spáni. Stúlka
þessi, sem réttu nafni heitir Katia
Loritz er af mörgum nefnd hin
þýzka Sophia Loren og þykir hún
vel að því veglega heiti komin ...
Katia Loritz er sannarlega fagurt
fordæmi þeim ungu stúlkum, sem
hafa hug á að afla sér fjár og frama
en hafa í því efni ekkert að treysta
á, nema eigin hæfileika ...
VIKAN 19