Vikan - 04.07.1963, Blaðsíða 26
Frank Tallman.
SPORT FYRIR KARLMENNI
ÞEIR GERA GRIN AÐ
HÆTTUNUM
Hann flaug gegn um auglýs-
ingaskilti úr balsaviði, sem
strigi var strengdur á og hert-
ur pappi. Það fór svo mikið af
drasli í hægri hreyfilinn að
hann drap á sér, framgluggi
vélarinnar brotnaði og hún
lét illa að stjórn. - Skiltið var
aðeins sex fetum breiðara en
vængjahaf vélarinnar.
í sambandi við töku kvikmyndarinnar
The mad, mad, mad, mad, mad world
flp.ug Frank Tallman gegnum auglýsinga-
skilti fyrir Kóka kóla á tveggja hreyfla
flugvél.
Mannkindin hefur alltaf borið
mikla virðingu fyrir því sem gamalt
er. Gamalt góss hefur lengst af skip-
að virðingarsess og hækkað því
meira í verði, sem það hefur orðið
eldra. Þetta átti áður fyrr einkum
við bækur, húsgögn og þess háttar,
en hefur nú á síðari árum færzt
yfir á margt fleira.
Það eru nú tíu ár, síðan farið var
fyrir alvöru að safna -gömlum flug-
vélum í Bandaríkjunum. Þessum
flugvélum er þó ekki safnað til þess
að stilla þeim upp sem sýnisgrip-
um í upphituðum húsum, heldur er
þeim haldið við og flogið á þeim.
Frægastur þessara safnara er án efa
Frank Tallman.
Það má segja um Frank, að hann
sé alinn upp í flugvél. Faðir hans
var einn af fyrstu áhugaflugmönn-
um flugvélaaldarinnar, og drengur-
inn var ekki gamall, þegar faðir
hans tók hann með sér í opinni
tveggja sæta Curtiss Jenny flugvél,
sem hann átti, og ekki leið á löngu,
áður en Frank litli fékk að grípa
í stýri. 19 ára gamall fékk hann
flugmannsréttindi og gat sér mjög
góðan orðstír sem flugmaður í stríð-
— VIKAN 37. tbi.
Vtítffftr.
Hér er Tallman á ferð. Að þessu sinni ekur hann
flugvélinni inn í veitingastað á flugvellinum.
>
Enn Tallman: Hér er hann í einum forngripnum
sínum, Stearman.
Þetta sport er nú hátt skrifað. Bíllinn ekur mcð
sama hraða og flugvélin flýgur, og sportmaður-
inn reynir að ná taki á kaðalstiga, sem hangir
niður úr flugvélinni. Svo er hara að fikra sig
upp stigann — gerið þið svo vel.