Vikan - 04.07.1963, Síða 45
Bjartsýnisköstin eru algjör
mótsetning þunglyndiskastanna.
Sjúkiingarnir eru kátir og bjart-
sýnir. Þeir eru fullir af athafna-
þrá og hafa ótal járn í eldinum.
Þaö er einkennandi fyrir þá, aö
jíeir hringja stanzlaust í síma og
geta jafnvel gengið svo langt að
eyða þúsundum króna í símtöl
til útlanda. Oft er erfitt að fá
þá til að leggjast inn á sjúkra-
hús, ])ví þeim finnst þeir ekki
vera veikir, þvert á móti, þeim
heldur aldrei á ævi sinni liðið
eins vel, segja þeir. Þess vegna
er það oft nauðsynlegt að leggja
þá inn með valdi, þvi annars
gæti svo farið, að þeir eyddu
fjármunum, sem þeir hafa ver-
ið alla ævi að vinna fyrir.. Þeim
finnst þeir geta allt og vera full-
komnir, og getur það orðið að
hreinu stórmennskubrjálæði.
Sjúklingurinn þykist vera stór-
kostlegur fjármálamaður og er í
engum vandræðum með að græða
næga peninga o. s. frv.
Oft eru peningarnir enga stund
að fara hjá þessum sjúklingum.
Aldrei er
Kodak
litfilman
nauðsynlegri
en þegar
teknar eru
blómamyndir
KODACHROME I! 15 DIN
KODACHROME X 19 DIN
EKTACHROME 1G DIN
HANS PETERSEN H.F.
Sími 2-03-13 Bankastræti 4.
Sjá bls. 33: HVERNIG DÆMIR ÞÚ?
Það mun nokkurn veginn undantekningarlaus regla, að í
afsölum eru ákvæði þess efnis, að hús sé selt í því ástandi,
sem það nú er í og kaupandi hefur kynnt sér og sætt sig við.
Þegar meta á það atriði, að kaupandi liafi kynnt sér ástand
hússins, hefur ávallt verið litið svo á, að ekki bæri að taka þá
yfirlýsingu of bókstaflega. f yfirlýsingunni felst það tvímæla-
laust, að kaupandi hefur kynnt sér allt það, sem húsið snertir
og almennur borgari getur og hefur aðstöðu til að kynnast
við veniulega athugun.
Nú er bygging húss svo margbrotin, að fullkomin könnun
á ástandi þess verður ekki gerð, nema með ítarlegri rann-
sókn fagmanna, og nægir þá sennilega ekki minna en hafa
til staðar fulltrúa frá 5—6 iðngreinum, auk verkfræðings. Slík
rannsókn fer eðlilega aldrei fram við eigendaskipti húsa.
Ef nú gallar koma í ljós á húseign, sem ekki var unnt að
sjá við athugun hins óbreytta borgara, er talað um leynda
galla. Þrátt fyrir yfirlýsinguna um það, að kaupandi hafi kynnt
sér ástandið og sætt sig við það, á hann rétt til bóta fyrir
leynda galla, ef önnur efnisrök hníga til slíkrar bótagreiðslu.
Deiluefni þeirra Jóns Jónssonar og Torfa Tryggvasonar er
nokkuð sérstaks eðlis. Það er ekki leyndur galli, þótt járn vanti
á þak. Við almenna athugun hefði járnleysið komið í ljós.
Jón getur því ekki byggt mál sitt á reglunum um leynda galla,
og vissulega getur hann sjálfum sér um kennt, hvernig kom-
ið er.
Hitt er annað mál, að framkoma Torfa verður talin ámælis-
verð. Sérhvert hús, sem komið er af byggingaraldri, á að hafa
járn eða annað slíkt efni til hlífðar úrkomu á þökum sínum.
Torfa hefur vafalaust mátt vera ljóst, að Jón færi villur
vegar um þetta atriði, og hefði hann því átt að upplýsa Jón
um það. Greinilegast og eðlilegast hefði verið að geta þessa
í afsalinu. Verður ekki annað séð, en Torfi hafi leynt mikil-
vægu atriði við kaupin. í kauptilboði Jóns hefur verið gert
ráð fyrir þakjárni.
Það getur orkað tvímælis, hvort meta eigi hér meira þá
yfirsjón Jóns, að gæta ekki að þakjárninu eða leynd Torfa í
þessum efnum. Ekki kann ég neina dóma, þar sem úr hliðstæðu
máli hefur verið leyst.
Fremur hef ég tilhneigingu til að fallast á málstað Jóns og
játa honum bótarétt.
Ályktunarorð: SENNILEGA Á JÓN RÉTT TIL FÉBÓTA.
J. P. E.
------------------
Einn maður leigði stórkostlega
sýningu, sem haldin var nokkra
stund i þeim bæ er hann bjó,
undirskrifaði samning og hringdi
í flestar stórborgir Evrópu til
að koma lienni þar á fót. Annar
keypti sjö bíla, tólf alklæðnaði
og tólf kjóla á einum degi. Sá
þriðji leigði sér stóra danshljóm-
sveit, til að taka á móti konunni
sinni í borðstofunni, þegar lnin
kæmi heim frá því að verzla í
bænum.
Út af slíkum verzlunarviðskipt-
um verða auðvitað oft vandræði,
þegar farið er að krefjast greiðsl-
un'nar og oft er lðigfræð'ihlið
málsins eitt aðalvandamál geð-
veikrasjúkrahúsanna.
Þær töflur, scm eru notaðar við
manisku tilfellin, innihalda efnið
lithium. Prófessor E. Strömgren
við geðveikrasjúkrahúsið i Árós-
um, sem nýlega fékk 1% milljón
danskra króna styrk frá Ford-
sjóðnum til að ransaka þessi veik-
indi, byrjaði með því að reyna
lyfið á 48 sjúiklingum — 30 kon-
um og 18 körlum. Það hafði
áhrif á helming sjúklinganna, og
meðal þeirra voru nokkrir, sem
ekkert annað hafði dugað við.
Margir þeirra liöfðu árum sainan
verið æstir og móðursjúkir, en
urðu nú skyndilega rólegir. Sum-
ir þeirra sögðu að sér leiddist,
og öðrum fannst töflurnar þvinga
sig, en þrátt fyrir það voru þeir
ánægðir.
Litliiumaðferðin er betri en
rafmagnsmeðferðin að þvi leyti,
að það er hægt að halda sjúk-
lingunum á vissu stigi með því
að gefa þeim litinn skammt af
lyfinu. Nokkrir eru meira að
segja útskrifaðir með lítinn
skammt af töflum með sér —
en aðeins litinn skammt, ]>vi
sjúklingarnir eiga að koma oft til
læknisskoðunar.
Hvers vegna verður fólk geð-
veikt?
Þessi spurning var nýlega lögð
fyrir frægan geðveikralækni.
Þessi maður, sem fengið liefur
æðstu Iieiðursverðlaun fyrir
rannsóknir sinar á orsökum geð-
sjúkdóma, svaraði hreinskilnis-
lega: „Ég hef ekki hugmynd um
það“.
Við ráðningu þessarrar gátu
geta töflur við taugaveiklun og
geðveiki einnig komið að notum.
Það er ekki enn vitað hver álirif
þær hafa á taugakerfið. Eitthvað
eru þó málin að skýrast. Með þvi
að gera tilraunir á sjálfum sér
með eiturefnum, hafa visinda-
menn nálgazt lausnina. Því hef-
ur verið slegið föstu, að í heil-
anum sé til efni, liormon, sem
varnar ýmsum eiturefnum, sem
finnast í náttúrunni, að komast
að heilanum og framkalla þar
geðveiki. Vanti þetta hormon,
eiga eiturefnin greiðan aðgang
að heilanum og valda truflun í
hugsun. Það er álitið að reserpin-
ið (serpasilið) gæti örvað þær
frumur, sem framleiða þetta
mikilvæga hormon. En enn er of
fljótt að fullyrða nokkuð um
þetta. En það er unnið af kappi
við að finna orsakir geðsjúkdóma.
En ef orsök sjúkdóma finnst, er
venjulega hægt að koma í veg
fyrir þá og lækna þá.
Bílaprófun Vikunnar.
Framhald af bls. 22.
Miðstöðin er góð og stillingar á
lienni einfaldar. Stjórntæki öll
eru rétt við höndina; rofi fyrir
þurrkurnar, inniljós, ökuljós og
biðljós, miðstöðvarrofi, rúðu-
sprauta og innsog. Stefnuljósarofi
VIKAN 27. tw. —