Vikan


Vikan - 05.09.1963, Qupperneq 34

Vikan - 05.09.1963, Qupperneq 34
á sínu eigin, gamla andliti. Og hann leit til sólar, lvorfði hátt i von um að allir mættu sjá, að andlit lians var annað en þeirra hinna. Hann gekk hnarreistur um strætin, þar sem fólksfjöldinn var mestur, reikaði urn torgin, heimsótti glæsilegustu veitinga- staðina. Og nú gerðist það, að hann uppgötvaði það smátt og smátt, að andlit hans var ekki einungis annað á svipinn en allra hinna — það var tómt og bert. Grímulaust. Hann gekk einmana og einn manna með nakið andlitið. Hann þrýsti hattinum niður á ennið og hraðaði för sinni, unz hann nam staðar rétt hjá garðs- hliði úti fyrir húsi í einu út- hverfum borgarinnar. Úti fyrir hans eigin húsi. Hann nam staðar bak við rósa- runna og fann að hann undi ekki frelsinu lengur. Þá staðnæmdist bill úti fyrir garðshliðinu. Út úr honum steig miðaldra maður, grannvaxinn og spengilegur. Um leið voru opnaðar úti- dyrnar á han's eigin húsi, og liann heyrði fótatak hennar nálg- ast, þegar hún hraðaði sér til móts við gestinn. — Ástin min, heyrði hann hinn ókunna gest segja. Og svo — VIKAN 36. tbl. varð hljótt nokkra stund. Ann- arlega hljótt. Loks heyrði hann hávaxna og spengilega manninn segja: — Ég fæ bara ekki með neinu móti skilið það, ástin mín, hvernig þér hefur tekizt að koma þessu öllu i kring á svo ótrúlega skömmum tíma .... öldungis eins og þú helzt vildir......... — Sagði ég ekki, að þú skyldir óhræddur láta mig um það ástin mín svaraði hún. En við skulum ekki ræða það nánar nú. Héðan í frá fyrirfinnast einungis tvær manneskjur í öllum lieiminum . . . þú og ég . .. hjartað mitt . . . ★ ENDURMINNINGAR CHRISTINE KEELER. Framhald af bls. 27. tíma var ég að hugsa um að fara í keppni. En af slíku varð nú aldrei. Ég bar ekki mikla virðingu fyrir þeim, sem ekki voru eins duglegir í vatninu og ég. Einu sinni fór skólasystir mín, sem hét Maureen, með mér að synda. Hún var ekki eins dugleg að synda og ég, og skiljanlega þá kaffærðu strákarnir hana, og um stund leit helzt út fyrir, að hún myndi drukkna. Ég sat uppi á bakkanum ,og grét af hlátri, en loksins bað ég strákana að draga hana upp úr. Einn sunnudag hjóluðum við Maureen til bæjarins til þess að fara í kvikmyndahús klukkan fjögur. Við fengum skipanir um að vera komnar heim ekki seinna en klukkan tíu, en ef við hefðum hjólað heim strax og myndin var búin, þá hefðum við auðveldlega getað verið komnar heim klukk- an sjö. Á heimleiðinni mættum við nokkrum strákum, og klukkan varð mikið meira en tíu. Okkur skildist, að nú sætum við laglega í líminu. Ég stakk upp á því, að við skyldum maka hendurnar á okkur út í olíu af hjólkeðjunum, og segja svo, að hjólin hefðu bil- að. En enginn trúði okkur, og við fengum ekki að fara út á kvöldin það sem eftir var vik- unnar. Þegar ég hugsa til baka núna, þá skilst mér, að ég var mjög ó- stýrilátur unglingur. Við stofn- uðum „klúbb“, sem enginn fékk inngöngu í, fyrr en hann hafði uppfyllt ákveðin skilyrði. Eitt af þeim var, að hlaupa í gegn um girðingu, þar sem mannýgur tuddi var geymdur. Einnig að hoppa af hlöðuþaki niður í heystabba, brjóta egg í hænsna- húsum og stela eplum í epla- görðum. Við stálum lika stundum blóm- um frá manninum, sem bjó hinu megin við götuna, en hann hefndi sín á okkur með því að skera sundur boltana okkar, sem óvart hrukku inn í garðinn hans. EIRÐARLEYSI. Ég var um það bil þrettán ára þegcr ég áttaði mig á því, að ég var eirðarlaus og leið á öllum hlutum. Ég held, að flestar ung- ar stúlkur á þessum aldri dreymi um að eignast góðan eiginmann og börn og allt svoleiðis. En ég vildi sko alls ekki setjast í helg- an stein og verða jarðföst neins staðar. Mig langaði í burt, ferð- ast og sjá heiminn. Ég var vön að segja, að ef ég myndi gifta mig, þá myndi ég giftast ríkum karli — og alls ekki fyrr en ég hefði rasað út á eigin spýtur. Allt gekk út á það að vera frí og frjáls. Að minnsta kosti í eitt ár í viðbót. Ég hlakka reglulega mikið til þess dags, þegar ég hitti einhvern, sem mig langar raun- verulega til að giftast. Hver hann er skipti ekki svo miklu máli. Ég er helzt þeirrar skoð- unar, að maður geti vanið sig við hvern sem er. Og ég er al- veg handviss um, að í þessum heimi fyrirfinnst ekkert, sem heitir ást. Ég brosi að fólki, sem barmar sér yfir ástarsorgum. Það er oft ekki af öðru en því, að einhver, sem þeim þykir vænt um, hefur yfirgefið það, og svo situr það, og heldur, að hann eða hún hafi verið sá eini eða sú eina. Gerir þetta fólk sér ekki grein fyrir því, að ef það ekki hefði skilið, hefði án efa komið að því, að það hefði orðið þreytt hvort á öðru? En við skulum snúa okkur aft- ur að bamæsku minni. Það var alltaf heilmikið af strákum, sem var á eftir mér, til dæmis allir kærastar vinkvenna minna, en ég hafði engan áhuga á þeim. Að minnsta kosti ekki mjög lengi í einu. Þegar ég hætti í skólanum, 15 ára gömul, þá hafði ég ekki minnstu hugmynd um, hvað mig langaði að verða. Foreldrar mín- ir áttu heldur engin góð ráð handa mér í þessum efnum. Ég stundaði alls konar vinnu, en ekkert af því varð langvarandi. Það var þegar ég vann við símaskiptiborð, að ég komst fyrst að raun um hvernig eldri menn geta verið. Yfirmaður minn var alltaf að reyna að króa mig af. Stundum elti hann mig í kring um skrifborðið sitt, en aldrei náði hann mér. Og svo var það maður, sem bjó í næsta húsi við mig. Hann átti mjög fallega eiginkonu, og oft stríddi hann henni á því, að ég væri skotin í sér. Kvöld eitt þegar ég var að

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.