Vikan - 05.09.1963, Qupperneq 45
i BLONDUNGNUM
VIKAN 36. tbl. —
Auto Union hefur verið mjög
frjósamt fyrirtœki á þessu ári,
og endurbætt hinn litla DKW
til mikilla muna. Nýjasti bíllinn
frá þeim er Auto Union 1200, sem
kom opinberlega á götuna 27.
ágúst. Meðfylgjandi mynd af
bílnum var tekin úr launsátri,
þar sem verið var að reyna vagn-
inn um mánuði áður en hann var
gerður opinber, og ekki er talið
alveg víst, að bíllinn líti eins út,
þegar hann kemur fyrir almenn-
ingssjónir, en það er ekki talið
munu skakka miklu. Eins og sjá
má, minnir hann ekki mikið á
DKW, nema ef vera skyldi svip-
urinn á afturbrettunum, en þeir
sem heyrt hafa, segja að mótor-
hljóðið sé auðþekkt, og þá getum
við gert því skóna, að Auto Union
1200 sé með þriggja strokka tví-
gengismótor. En hitt er talið
fullvíst, að hann hafi framhjóla-
drif og diskabremsur.
Stirling Moss, hinn frægi kapp-
akari, hefur nýlega lagt sér það
til, að fara að ferðast á skottu
(scooter). Rógburður hefur bor-
izt hingað til lands um það, að
hann hafi ekki náð tilskildum
árangri, þegar hæfni hans til að
stjórna slíkum grip var prófuð.
en það hefur tæplega við rök að
styðjast. Og þó veit maður aldrei.
Það er ekki að furða, þótt hann
sé prúðbúinn, því hann er að
fara til brúðkaups. Brúðhjónin
eru þau Pat systir hans, sem
einnig ekur í kappi, og hinn
sænski kappakari Eric Carlson,
kallaður Carlson á hvolfi, sem
gert hefur SAAB frægan víða
um lönd.
★
Voikswagen verksmiðjurnar hafa
nú komið sér upp sextán sölu-
umboðum og þjónustustöðvum
víðs vegar um Japan. VW vonast
til þess, að geta selt sonum sól-
arinnar um 5000 bíla á ári.
★
Á Fjóni hefur verið gerður upp-
hitaður vegur. Undir slitlaei
hans liggja vatnspípui', og þegar
snjór og frost taka að herja á
Danann, hleypir hann heitu vatni
á þessar pípur, og þykist þar með
öruggur um íslausan og öruggan
veg. Ja — getur verið, að
minnsta kosti er hitaveitustokk-
urinn ofan úr Mosfellssveit oftast
auður.
Sgat er að kirkjusókn hafi auk-
izt mjög í borginni Graz í Aust-
urríki, síðan prestarnir tóku upp
þann sið að arka út að messu
lokinni, til þess að steinka vígðu
vatni á ökutæki þeirra, sem
komu á bílum til kirkjunnar.
Þykja þeir hafa orðið meiri
happatæki eftir en áður, síðan
farið var að skvetta á þá. En
væri ekki einfaldara að vígja
vatnið á þvottaplönunum?
ftalir hafa löngum fengið orð
fyrir, að vera hreint ómögulegir
í umferðinni, og íbúar norðlæg-
ari slóða, sem hafa hætt sér suð-
ur á ítalíu, hvort heldur er á
eigin farartækjum eða á annan
hátt, hafa orðið svo skelfingu
lostnir yfir umferðinni þar, að
þeir geta ekki einu sinni sagt frá
Colosseum eða Péturskirkjunni,
eftir heimkomuna. Hins vegar
hafa þeir verið yfir sig fegnir,
að vera ennþá á lífi. Meðfylgj-
andi teiknimynd er eftir þýzkan
teiknara, sem nýlega fór akandi
á bíl sinum til Rómar. Myndina
nefnir hann: Germanskur öku-
maður í Róm.
<] Ökumenn í Reykjavík bjarga
hundruðum mannslífa á dag, með
því að gefa gangandi fólki rétt-
inn, hvar sem því þóknast að
bjálfast yfir götuna. Við héldum,
að þetta væri algert einsdæmi
og þekktist hvergi annars staðar
í heimnum, en eftir að við sáum
þessa mynd, fóru að renna á okk-
ur tvær grímur. Myndin er sem
sé tekin í Hamborg, og ekki
verður betur séð, en þar séu til
umferðarhænsn, ekki síður en á
ísa köldu landi.
Við getum ekki stillt okkur um
að birta þessa mynd. Þetta eru
þrjú fyrstu módelin af Renault.
Lengst til vinstri er fast að því
frumsmíð þeirra bræðranna, De
Dion þrihjólið. Með lagi gátu
tveir komizt fyrir á því, en ekki
þættu afrek þess farartækis þess
virði að skrifa þau á blað, ef þau
væru unnin núna. Þríhjólið smíð-
uðu þeir 1897. í miðið er tilrauna-
bíll, sem þeir settu saman árið
eftir, eða 1898, og loks, lengst
til hægri, er fyrsti bíllinn, sem
var verksmiðjuframleiddur. Það
var á sama ári, árið 1898.