Vikan


Vikan - 05.09.1963, Side 51

Vikan - 05.09.1963, Side 51
snöggvast til þín, ég var að aka síðasta elskhuganum mínum heim. Hann var leiðinlegur, greyið, og mig langar til að rabba svolítið við þig.“ „Vertu velkomin, Lóa mín,“ svaraði Ása. „Ég var einmitt að hugsa um þig og þú hittir vel á; Herjólfur B. Hanson er á leið- inni hingað. Hann segist vera timbraður og aumur á allan hátt — ég vona að þér lítist samt vel á hann.“ „Ókei, blómið mitt! Ég kem í einum grænum!“ Herjólfur B. Hanson var venju fremur fölur þetta kvöld og hafði eltki fyrr setzt, en hann bað vinkonu sína að gefa sér í bjór- kollu. „Ég var að rökræða við tvö atomskáld og það er alltaf þorstlát skemmtun," sagði hann afsakandi. „Olið hennar mömmu þinnar er indælt, ég vona að þú kunnir líka að brugga það? Þegar við flytjum saman ætla ég að kaupa stóra eikartunnu í Áfeng- isverzluninni og svo sjáum við um, að hún verði alltaf full.“ „Þú ert bjartsýnn í kvöld, vin- urinn,“ sagði Ása. „Og það vill nú svo vel til, að mamma er nýbúin að brugga, en ég er ó- sköp hrædd um, að ég verði aldrei eins flink og hún, hvorki í því né öðru.“ Hún sótti öl í könnu og tvö glös fram í eldhúsið og settist hjá honum í rauða plussófann. i.Ég á von á henni Lóu vinkonu minni,“ sagði hún. „Þið eruð eins og sköpuð hvort fyrir annað." „Það held ég að varla geti ver- ið,“ anzaði sálfræðingurinn og nennti ekki að fara um það fleiri orðum, en saup úr fyrsta glasinu og hellti í það aftur. ,,Gott,“ sagði hann. „Ágætt.“ í sama bili hringdi dyrabjallan og Ása fór fram að taka á móti vinkonu sinni. Þegar hún kom inn aftur, var í fylgd með henni frekar hávax- in, ljóshærð stúlka, með óreglu- lega andlitsdrætti, stóran, nautna- legan munn, snjóhvítar tennur og stór, blá augu. Hún var mjög grannvaxin, en brjóstamikil, há til hnésins og leggjafögur. „Lóa Dalberg, vinkona mín — Herjólfur B. Hanson,“ kynnti Ása og bauð vinkonu sinni sæti við hlið piltsins í sófanum. Því- næst sótti hún glas fram í eld- húsið og skenkti á það handa henni, settist síðan gegnt þeim við borðið. Framhald í næsta blaði. EINANGRIÐ./ GEGN HITA OG KULDA Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum árum í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun notalegri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað). STEINULL H.F. Lækjargötu - Hafnarfirffi - Simi 50975 1 VI KAN 36. tbl. - gj

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.