Vikan


Vikan - 03.09.1964, Blaðsíða 15

Vikan - 03.09.1964, Blaðsíða 15
3 Karlmennirnir í sænsku konungsfjöl- skyldunni dáðust mjög að Gretu Garbo. Hér er mynd af henni með núverandi konungi Svíþjóðar, Gustaf Adolf, tekin við miðdegisvcrðarboð, scm MGM hélt honum og Louisu drottningu, þegar þau heimsóttu Hollywood, cn þá var hann krónprins. Greta fór heim með „Kungsholm" fyrir jólin 1928, og þegar skipstjórinn, Einar Lundborg, kom scinna til Bandaríkj- anna, heimsótti hann hana í kvikmynda- verið og fékk þá að taka mynd af feg- ursta farþeganum sínum. O íbúar Gautaborgar fjölmenntu til að taka á móti Garbo, þegar hún kom til Svíþjóðar á jólunum 1928. Hún varð að hafa sterkan lög- regluvörð, en samt tókst hrifnum löndum hcnnar að lyfta bílnum hcnnar á bryggjunni í Gautaborg. Kúðurnar voru brotnar og gler- brotunum rigndi yfir fólkið. Frægasli leikarinn i Hollywood, John Gilbert, þrábað um ást liennar, sænsku prinsarnir Gustaf Adolf og Sigvald, dáðu hana, og allt ætlaði af göflunum að ganga, þegar hún kom til Gautaborgar á jólunum 1928. Heimsstjarna liafði myndazt, ævintýrið um Gretu Garbo var orðið veruleiki. En sjálf var Garbo þreytt og vildi helzt flýja frá öllu saman, en hún gat ekki losnað . . . sem Gilbert tólcst að fá liana til að samþykkja að giftast sér. Hann setti hana inni í liraðskreið- asta sportbilinn sinn og ók svo með hana yfir landamærin til Mexico i leit að lientugum stað til giftingar. Þegar þau kornu til Santa Anna, bað Garbo um að fá að fara andartak inn á hótel. Þar faldi hún sig á snyrtiherberginu fyrir konur og laumaðist þar út um gluggann. Hún fór ein heim til Hollywood með lest. Ástæðan fyrir að hún þorði ekki að elska Jolin Gilbert hefur sjálfsagt vcrið sú, að hún þekkti draumóramanninn. Hún vissi að karlmennska hans var sönnust framnii fyrir ljósmyndavélinni, en i einkalífinu var það áfengið, sem hélt uppi dirfsku hans og góðu skapi. Greta átti bitrar end- urminningar um drykkjuskap frá æsku sinni í Stokkhólmi. Hún mundi vel úrhrökin, sem söfn- uðust saman á Fyllbacken skammt frá heimili hennar á Blekingegötu á Söder. Hún kannaðist við hinn brosmilda og laglega Jack, hann var maður með hættulega óró i blóðinu. Hún skrifaði heim til vinar sins: — Ég geri ráð fyrir að þú hafir lesið í blöðunum um mig og vissan leikara, en ég ætla ekki að gifta mig. Hér eru allir á snöpum eftir fréttum, og láta mig þess vegna ekki i friði. Stundum verð ég veik af heimþrá, og nú þegar jólin nálgast, get ég ekki annað en grátið. Hugsa sér, ef ég væri nú komin til Stokkhólms, gæti horft á fólksstrauminn með alla jólapakkana. Þetta verða þriðju jólin, sem ég verð að heiman, og ég er óhamingjusöm og mér finnst þetta ekki vera réttlátt. Það er sjálfsagt barnalegt af mér að' láta svona, þegar ég veit að ég kemst ekki heim, og ég ætti að vera þakklát fyrir stöðu mína og gera mér ljóst, að milljónir manna mundu þakka guði fyrir að standa i mínum sporum. En þannig er þetta.... Þessi lieimþrá og ein- manakennd, sem bréfið sýnir ljóslega, varð svo sterk, að þeir i Metro urðu að sleppa stjörnunni sinni í nokkra mánuði. Það urðu því engin þriðju jól í framandi landi. Til þess að losna við of mikið blaðaumtal, lagði Greta af stað fyrr en til- kynnt hafði verið. Far- miðarnir voru pantaðir fyrir Alice Smitli og upp- hafsstafirnir A.S. stóðu á farangri hennar. Hún komst um borð án þess að nokkur vissi, en brátt barst fréttin út og blaða- mennirnir komu á vett- vang. Hún fór í kringum þá með því að hylja fag- urt andlit sitt undir barða- stórum hatti og dökkum gleraugum. Þetta var í fyrsta sinn sem hún not- aði þennan dularbúning, en hins vegar eki í síð- asta sinn. Þegar Kungs- Framhald á bls. 40. VIKAN 36. tbl. — Jg

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.