Vikan


Vikan - 03.09.1964, Blaðsíða 23

Vikan - 03.09.1964, Blaðsíða 23
Búið til snið með því að teikna þau á pappír eftir uppgefnum málum skýringa- myndanna og klippa út. Bakstykkið er merkt AB við miðju að aftan og D C á öxlum. Framstykkið er merkt D C á öxlum og F við miðiu að framan. Leggið sniðin á efnið, og ath. að þráðrétt liggi við miðju að aftan á afturstykkinu og við öxl á framstykkinu. Sníðið með 1 sm. saumfari 4 stk. af hvoru sniði. Saumið nú stykkin saman, fyrst neðra borð kragans. Byrjið við miðju að aftan A B, þá axlir D C. að síðast miðju að framan F. Saumið síðan yfirborð kragans á sama hátt. Strauið var- lega út saumförin, leggið stykkin saman réttu móti réttu og ath. mjög nákvæmlega, að saumarnir mætist, mælið, þræðið og saumið 1 sm. frá brún. Klippið ójöfnur af saumfarinu, snúið kraganum við, rúllið sauminn mjög vel út ! brúnina og þræðið tæpt. Strauið kragann varlega, leggið á hálsmálið röngu móti réttu, og ath. að stærð hálsmálsins sé hæfileg fyrir innri brún kragans, samræmið með því að kringja, ef með þarf. Saumið kragann við hálsmálið með venjulegu 5—7 sm. breiðu hálsmálsfóðri, sniðnu eftir hálsmálinu. Hafið fóðrið heilt og þráðrétt að aftan og framan og saumið það saman á öxlum. Leggið fyrst kragann á hálsmálið, röngu móti réttu, eins og áður var lýst og síðan hálsmálsfóðrið á kragann, réttu móti réttu, ath. að miðjur og axlir standist á. Saumið 1 sm. frá brún. Klippið upp í saumfarið hér og þar, leggið það út á röngu hálsmálsfóðursins, málslínan ákveðnari og hálsmálsfóðrið helzt kyrrt. Tyllið hálsmálsfóðrinu föstu við axlasaumana. Einnig má ganga frá hálsmálinu með því að sníða 2Vi sm. breitt skáband, leggja það á kragann, réttu móti réttu, og sauma 1 sm. frá brún, klippa upp í saumfarið og stinga það niður á sama hátt og á barmfóðrinu. Brjótið síðan Vi sm. innaf og leggið lauslega niður við í höndum. íiíiililli Pllllii xT ' V:. ■ Ía-íx'K' VIKAN 36. tbl. 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.