Vikan - 03.09.1964, Blaðsíða 36
Barna-kuldaskór
sterkir - ödýrir
ÞESSIR SKÓR ERU SÉRLEGA HEPPILEGIR SEM SKÓLASKÓR, ÞAR
SEM ÞEIR ERU ÓREIMAÐIR OG ÞVÍ AUÐVELT AÐ FARA ÚR ÞEIM
OG í. SKÓRNIR ERU ÚR LEÐRI, LOÐFÓÐRAÐIR, UNDIRSÓLI
ER ÚR GÚMMÍ, MILLISÓLI ÚR LEÐRI. SKÓR ÞESSIR ERU NÚ TIL
í STÆRÐUNUM 24-33. EINNIG VÆNTANLEGIR f STÆRÐUNUM
34-38.
GÓÐIR SKÓR GLEÐJA GÓÐ BÖRN.
Skóhúsið
HVERFISGÖTU 82 - SÍMI 11-7-88.
„Hvísla . . . ?"
— Já, svo lesendur VIKUNNAR
heyri þetta ekki. Þá varðar nefni-
lega ekkert um þessa hluti. Ég segi
þeim svo bara það sem mér þykir
bezt. Að ég nú tali ekki um skatt-
stjórann.
„Allar línur í lófanum," sagði
Amy, sem hélt lófa mínum upp í
loft með annarri hendi, en benti
með hinni, „segja sína sögu. Þessi
er kölluð lífslína og sýnir — ásamt
öðrum línum — lengd lífsins og
fleira. Onnur sýnir ástand heilsunn-
ar, önnur tilfinningar, ein sýnir
hjartalag, ein gefur til kynna hvaða
takmörkum er náð [ lífinu. Hæð-
arnar milli línanna segja líka sí'ia
sögu, lag fingranna, neglurnar,
hnúarnir, — þumalfingurinn gefur
miklar leiðbeiningar, og svona
mætti lengi telja. En ég held að
við ættum ekki að fara nákvæm-
lega út í það, því það mundi taka
of langan tíma ef ég ætti að kenna
þér þetta allt saman, sem hefur
tekið mig nokkur ár að læra."
— Segðu mér eitt, Amy. Ég tel
víst að þú getir spáð fyrir sjálfri
þér, — er það ekki?
„Jú, auðvitað get ég það eins
og öðrum . . ."
— Og þú ferð eftir því, sem þú
sérð í lófanum?
„Já, það geri ég. Auðvitað er
það alltaf svo, að maður reynir að
blekkja sig á vissan hátt, því það
er hægt að þýða táknin á svo marg-
an máta. Ef maður vill telja sér trú
um eitthvað sérstakt, þá gerir mað-
ur það ósjálfrátt. Maður er ekki
eins ópersónulegur við sjálfan sig
og aðra."
— Nefndu mér dæmi . . .
„Ja, til dæmis . . . ef ég sé veik-
indi framundan, þá reyni ég ósjálf-
rátt að telja mér trú um að þau
verði ekki eins alvarleg og þau sýn-
ast í lófanum.
Annars tel ég að maður geti
breytt mörgu því, sem maður sér
í lófanum . . . annars væri tilgangs-
laust að segja fólki frá því. Ef
einhver óþægilegur eða jafnvel
hættulegur atburður eða tímabil
sést framundan, þá á maður að
gera allt sem hægt er til þess að
varna þv! að slíkt komi fram. Þá
breytast línurnar í lófanum jafn-
framt, þannig að ef maður kemst
framhjá slíku tímabili klakklaust,
þá hætta línurnar að sýna það.
— Ef þú sérð veikindi framund-
an . . .
„Ef ég sé veikindatímabil fram-
undan, getur það alveg eins þýtt
að heilsufarslegt ástand mitt sé
tæpt eða bágborið á því tímabili,
og að ég verði veik að óbreyttum
aðstæðum. En ef ég gæti mín vel
þetta tímabil og forðast þreytu,
áreynslu eða einhverja vissa hluti,
þá get ég forðazt veikindin, línurn-
ar breytast smám saman, þangað
til ég er komin yfir tímabilið."
— í þeim tilfellum verður spáin
ekki rétt!
„Jú, hún er rétt að því leyti að
ég spái aðeins hættu á veikindum.
Ekki endilega sjálfum veikindunum.
Jafnvel þótt ég sjái t.d. slys á vissu
tímabili, getur viðkomandi gætt sín
svo vel að aldrei verði af slysinu.
Þá er líka tilganginum með spánni
náð."
— Ef þú værir nú f hjónabands-
hugleiðingum, Amy, og sæir [ lófan-
um að þín áform á því sviði væru
eintóm vitleysa, — hvað mundir þú
gera?
„Það er auðvitað undir svo mörgu
komið. Ég mundi rannsaka ástand-
ið og reyna að finna hvað væri
að. Ef það væri mín sök, mundi ég
reyna að lagfæra það. Einhvernveg-
inn mundi ég reyna að bjarga því
við."
— Og kannske hætta við, ef þú
sæir í lófanum að það væri einasta
ráðið?
„Kannske. En þarna er það eins
og ég sagði áðan. Maður reynir
alltaf ósjálfrátt að blekkja sjálfan
sig. Ef ég væri yfir mig ástfangin
af manninum, mundi ég vafalaust
reyna að telja mér trú um að þetta
væri einhver vitleysa, eða tíma-
bundnir erfiðleikar, sem mundu lag-
ast með góðum vilja."
(Um þetta leyti f viðtalinu fór
Amy að spá fyrir mér, og sagði mér
alla mína ólifaða ævi. Eins og ég
gat um áðan, þá finnst mér að
ykkur varði hreint ekkert um það,
hvernig sú spá var, og leyfi mér að
sleppa henni. Svona aðeins til skýr-
LUCAS- C.A.V. - GIRLING
Notið ávallt orginal varahluti:
LUCAS
varahlutir í rafkerfið.
C.A.V.
varahlutir í olfukerfið og
stærri rafkerfin.
GIRLING
varahlutir í hemlakerfið.
Höggdeyfar.
AÐALUMBOÐ FYRIR
JOSEPH LUCAS (EXPORT) LTD.
R. SÆ MUNDSSON
umboðs- og heildverzlun
Laugavegi 176 — Sími 37456.
Söluumboð:
BLOSSI S.F.
Laugavegi 176 — Sími 23285.
gg — VIKAN 36. tbl.