Vikan - 03.09.1964, Side 34
Gerð 404 (5—6 manna).
Við getum útvegað þessar traustu frönsku bifreiðir
með stuttum fyrirvara, og höfum nú á lager bif-
reiðir af gerðinni 403, sem eru 6 manna og heppileg-
ar til leiguaksturs.
Gerð 404 Station (5—7 manna).
Gerðin 403 kostar til atvinnubílstjóra 137 þúsund
krónur og til einkaafnota 172 þúsund krónur.
Höfum okkar eigin varahluta- og viðgerðaþjónustu
í Bílamarkaðnum Brautarholti 22.
Hafraiell hf.
Brautarholti 22 — Símar 20986 og 34560.
PEUGEOT
B I FREIÐIR
eru þekktar um allan heim fyrir traustleika og vand-
aðan frágang, og eru því heppilegar fyrir okkar vegi.
Gerð 403 (6 manna)
í þolraunakeppninni í Suður-Ameríku á síðasta
hausti voru 6 PEUGEOT bifreiðir á meðal fyrstu
10 bifreiðanna, sem komu að marki.
dauður á gólfábreiðunni með sund-
urskotið höfuð. Og meira en það,
kúlan hafði mölbrotið spegilinn eftir
að hafa farið í gegnum höfuðkúpu
herra Kane.
Og Morgan veitti því athygli
alveg sérstaklega, hvað ásjóna
herra Kane var fríð og slétt að sjá.
Morgan laut niður og tók stærsta
spegilbrotið upp af gólfinu, skoðaði
andlitsmynd sína í því, og gat varla
varizt brosi, þegar hann sá hve
afskræmd hún var. Það var eins og
bólgnar varirnar toguðu hægri kinn-
ina niður á við, bólgan í vinstri
kinninni þrýsti vinstra auganu fast
að nefinu. Hann hló og kastaði
spegilbrotinu svo harkalega á nátt-
borðið, að það hrökk í ótal parta,
sem hrutu út um allt gólf.
Svo hélt hann út úr svefnherberg-
inu, ofan stigann og hringdi á lög-
regluna ...
LÍF f HENDI MANNS
Framhald af bls. 27.
en ekki sízt, getur maður séð lík-
indi fyrir ýmsum óorðnum hlutum,
sem tíminn hefur sannað að koma
fram, ef rétt er lesið."
— Mundi það þýða það, að þú
gætir t.d. séð hve langt líf ég á
fyrir höndum . . . hvort ég verði
ríkur eða fátækur . . . hvort ég á
eftir að eiga mörg börn . . . hvort
ég kem til með að búa í Kópavogi
eða Cape Town eftir 10 ár . . . ?
„Ég tel mig geta séð miklar lík-
ur fyrir því hve gamall þú verður.
Það fer ekki aðeins eftir einni línu
í lófanum, eins og svo margir halda,
heldur eftir samspili margra þeirra,
sem gefa til kynna andlegt og lík-
amlegt ástand þitt. Ég þarf ekki
að draga neina ályktun hverju sinni,
því línurnar gera það sjálfar. Mitt
er aðeins að lesa úr þeim eins og
ég hefi lært og hefur sýnt sig að
er mjög nálægt sanni."
— En hvernig fer ef bifreið
æki yfir mig hérna fyrir utan
húsið, þegar ég fer frá þér, og
kálaði mér?
„Ég mundi sjá það í lófa þínum
hve gamall þú yrðir — svona nokk-
urnveginn. Það er ekki hægt að
segja það upp á dag. En ég gæti
sagt þér að einhver ákveðinn ald-
ur væri líklegur fyrir þig. Svo er
það auðvitað þitt að passa þig.
Sennilega mundi ég sjá merki í
lófanum, sem gæfi til kynna mjög
mikla hættu á þessu tímabili — jafn-
vel dauða. Ef þú vissir af þessu,
gætir þú varazt hættuna, og þá
mundi bíllinn aldrei aka yfir þig . . .
en þá mundi lófinn líka breytast
þannig að þetta merki mundi hverfa
eftir að hættan er liðin hjá."
— Breytast . . . ? Breytist lófinn?
„Já, það er nú líklega. Flestar
eða allar línur lófans breytast með
árunum. Oftast er það að aðallín-
urnar halda sér, en breytast nokkuð.
Sumar á sjö ára fresti, aðrar á sjö
mánaða fresti. . . það er misjafnt,
en alltaf breytast þær eftir aðstæð-
um og atvikum. Ég get séð hvort
þú verður ríkur eða fátækur og
hvort þú nærð þeim árangri í iíf-
inu, sem þú óskar eftir, og hvenær.
Ég get líka séð hve mörg börn þú
hefur með að gera á lifsleiðinni.
Það er að segja — það er ekki víst
að þú eigir þau sjálfur, heldur gætu
það t.d. verið tökubörn. Svo gæti
líka verið að þú ættir einhvers stað-
ar börn, sem þú skiptir þér ekkert
af og engin áhrif hafa á líf þitt.
Þau börn sé ég ekki. En f.d. and-
vana fædd börn hjá konu eða fóst-
urlát get ég séð. Það sést aftur á
móti ekki hjá föðurnum, því að á
hann hefur slíkt engin eða lítil sál-
arleg áhrif . . . Hvort þú kemur til
með að búa í Kópavogi eða Cape
Town? Ja, ég get sagt þér á hvor-
um staðnum þú ættir að búa —
hvor staðurinn hæfir þér betur."
— Sérðu þú það í línum lófans?
„Nei, það sé ég með þvi að
beita talnafræðinni. Fæðingardagur
þinn og ár gefa mér ýmsar upplýs-
ingar um hverskonar maður þú sért,
og hvað hæfi þér bezt. Hver bók-
stafur í nafni borga og landa hef-
ur sitt tölugildi, og með útreikning-
um kemst ég svo að því hvort hægt
er að samrýma það gildi þinum
eigin tölum. Það er einfalt."
— Já, mjög einfalt skilst mér. —
Þú virðist vita svör við öllu . . . Þú
getur lesið úr lófanum allt það, sem
mestu máli skiptir í lífi mannsins,
bæði það sem á undan er gengið
og það sem eftir er að koma. Segðu
mér nú ( stuttu máli hvernig þú ferð
að því. . . Hvoru höndina er meira
oð marka?
„Hægri höndin hjá rétthendum
manni sýnir meira staðreyndir.
Framkvæmdir mannsins, líkamlega
eiginleika o.s.frv. Sú vinstri sýnir
aftur á móti tilfinningalíf hans, and-
lega hæfileika, gáfur og möguleika
á þeim sviðum. Vinstri höndin á þér
sýnir t.d. miklu meiri möguleika en
sú hægri gefur til kynna að hafi
verið nýttir. Það þýðir að þú hefur
ekki notað þína hæfileika eins
snemma og þú hefðir átt að gera,
og að þú nýtir þá ekki eins vel og
þú ættir að gera. Þar virðist vanta
mikið á."
— Mig hefur alltaf grunað þetta.
„Þér er óhætt að taka það trúan-
legt. Þú hefur mikla möguleika . . ."
— Ritstjórinn . . .
„Ha?"
— Hann trúir því ekki. Mundir
þú vera fáanleg til að skrifa hon-
um nokkrar línur?
„Það ætti að vera óþarfi. Þetta
kemur í Ijós, ef þú bara reynir sjálf-
ur. Enda sé ég það í lófanum að
það kemur að þvi eftir tiltölulega
skamman tíma."
— Geturðu séð hvort ég fæ kaup-
hækkun?
„Nei, það sé ég ekki, en ég held
að þú þurfir engar áhyggjur að
hafa af fjármálum f framtíðinni.
Þú . . ."
— Viltu gjöra svo vel að hvísla.
— VIKAN 36. tbl.