Vikan - 08.10.1964, Page 32
Maytag
Innbyggður bakarofn með
tímarofa, grilli, Ijósi og gleri
í hurð.
IHOlVlJMMn
Maytag
Eldhúsvifta með viðarkols-
síu með Ijósi og tveim
hraðastillingum.
H O Iví IN f'J
Maytag
2 venjulegar og 2 sjólfvirkar plötur
með 12 hitastillingum og tímarofa
ó einni plötu upp í 10 klst.
Mjög
góöir greiðsluskilmálar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
HrútsmerkiS (21. marz — 20. apríl);
Á einhvern hátt mun rýmkast hagur þinn, eitt-
hvað, sem þú hefur óskað þér lengi rætist nú á
mjög hagkvæman hátt. Viss persóna, sem þu hefur
haft hálfgerðan ýmigust á, sýnir svo ekki verður
um villst að þú hefur haft hana fyrir rangri sök,
ONautsmerkið (21. apríl — 21. maí);
Ný kynni við yfirmenn þína gefa þér meiri mögu-
leika en áður til að ná takmarki þínu. Það er tals-
vert undir þér sjálfum komið hver árangurinn
verður. Þú verður að sýna mikla þolinmæði og tillit-
semi við ákveðinn fjölskyldumeðlim.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú átt við eitthvert vandamál að stríða, en svo
virðist sem þú ættir að leysa úr því á eigin spýtur
og blanda engum inn í það. í vikulokin eru tæki-
færi fyrir þá sem ástfangnir eru til að sýna mót-
partinum hvað þeim býr í huga..
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú ert ákveðinn í að láta til skarar skríða í ákveðnu
máli og allt bendir til að árangurinn verði giftu-
ríkur. Þú mátt til að slaka svolítið á kröfum þín-
um um fullkomnleika, þær eru á hraðri leið að
verða að öfgum.
Ljónsmerkið (24. júlf — 23. ágúst):
©Þú hefur verið sakaður um að vera heldur laus í
rásinni og allt bendir til að þér væri hollast að
bæta ráð þitt. Þú kemur einhverju ákveðnu til
leiðar á vinnustað sem fær misjafnar undirtektir.
Um helgina skemmtirðu þér vel.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©í vikulokin verða einhverjar breytingar á fjárhag
þínum. Þú færð ráðleggingar , frá félaga þínum,
sem til að byrja með eru þér fjarri skapi, en
síðar meir sérðu að eru þær einu réttu. Haltu
þig að einhverjum ákveðnum félögum.
Vogarmerkið (24. septembcr — 23. október):
Þú hefur haft miklar áhyggjur undanfarið senni-
lega vegna aðsetursskipta. Því miður horfir ekki
vænlega fyrir þér en samt skaltu ekki hætta að
vona. Þú færð vandamál í hendur, en skýringarnar
fyrir þvi eru rangar.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvembcr);
Einn vina þinna fær gott starf og munið þið halda
það hátíðlegt á eftirminnilegan hátt. Þú færð að
súpa seyðið af einhverju hálfgleymdu atviki. Fjár-
hagur þinn stendur með miklum blóma og mun
gera það enn um skeið.
Bogamannsmerkið (23. növember — 21. dcsember):
©Málefni, sem hefur lengi pirrað þig, kemst nú veru-
lega á skrið vegna atbeina eins kunningja þíns.
Þú færð einhverja gátu til úrlausnar, sem í fyrstu
reynist mjög dularfull, en allt á sínar orsakir, eins
og fram kemur.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Fjármálabrask, sem þú hefur staðið í fær nú giftu-
mtrj samlegan endi. Þú hefur undanfarið unnið að erfiðu
verkefni, sem nú er senn til lykta leitt, en fagn-
aðu sigrinum ekki of snemma. Þú umgengst mikið
ákveðna persónu af hinu gagnstæða kyni.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Fjölskylda þín eða mjög nánir vinir hafa orðið fyrir
einhverri sorg. Það mun reyna talsvert á þig í
þessu sambandi. Þú ferð £ stutta ferð, sem veldur
þér síðar miklum heilabrotum. Kringum þig sjálfan
verður mjög rólegt.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú verður fyrir óþægindum, sem standa 1 sambandi
við farartæki, sem kunningi þinn á. Þú færð að
heyra góðan orðróm um sjálfan þig, sem kann að
gera þig svolítið montinn. Náinn ættingi kemur í
heimsókn og flytur þér staðfestingu á ákveðnum grun þínum.
32