Vikan


Vikan - 12.11.1964, Blaðsíða 4

Vikan - 12.11.1964, Blaðsíða 4
imdallur ER FELAG IINGA FOLKSINS TflNG SNYRTIVÖRUR FYRIR KARLMENN Rúllið á yður endurnærandi TANG eftir rakstur og fyrir rafmagnsrakstur er í gerbreyttum, nýjum „roll-on“ plastflöskum. Einnig TANG sápa fyrir karlwenn, shampo, hárlcrem og talkum. Stórar og endihgargóðar umbúðir. PRINCE OOURIELLI FRAMLEIVSLA t OPINBERT GISTIHÚS. Vikan, Reykjavik. Mig langar til að spyrja þig einnar lögfræðilegrar spurning- ar, Póstur minn, því mér virð- ist þú vera um flest fróður — eða kannske þú aflir þér upp- lýsinga í hvert sinn. Spurningin er svona: Ef mað- ur hefur misst ökuréttindi um tíma, vegna ölvunar við stýri, en ekur samt bifreið og ert stað- inn að verki — án þess að hafa gert nokkuð af sér annað, og án þess að hafa smakkað vín. Hvaða hegningu má hann búast við? Syndari. -— — — Gistingu á tiltekinni ríkisstofnun í ca. 10 daga ... og það ekki einu sinni ókeypis ... Já, það er rétt. Ég afla mér bara upplýsinga í hvert sinn, — og það gætir þú gert líka, ef þú hefur síma, en í guðanna bænum farðu ekki á bílnum. UPP MEÐ HENDUR, GUNNAR! Kæri Póstur! Vertu nú svo góður að hjálpa mér í vandræðum mínum. Þannig er mál með vexti, að ég var stödd í sjoppu á Eskifirði eftir 9-sýningu að kvöldi hinn 8. september. Þar hitti ég strák, sem ég hafði ekki séð áður og veit engin deili á, nema að hann er sjómaður, en er frá Reykja- vík og heitir Gunnar. Það hafði verið bræla í tvo til þrjá daga, en bátarnir fóru að tínast út dag- inn eftir. Ég hefði að öllum lík- indum átt auðvelt með að kynn- ast honum dálítið betur eða áreiðanlega svo vel, að ég hefði haft einhverja hugmynd um hvar ég ætti að leita hann uppi. En það er nú samt svo, að ein- mitt þá stoppaði ég ekkert, sagði aðeins „sé þig kannski fyrir sunnan", og r’auk síðan út. En nú er svo komið, að þessi Gunnar er sífellt að brjótast um í höfðinu á mér, satt að segja hugsa ég ekki um annað. Hvað get ég gert? Ég verð að hitta hann aftur, en hvernig fer ég að því? Ég vona, kæri póstur, að þú getir hjálpað mér, ef til vill með því að birta þetta bréf sem fyrst, ef hann kynni að rekast á það. Hann er frekar hár, grannur, dökkhærður og með hrokkið hár. Ég var klædd í síðbuxur og peysu. GUNNAR! Ef þú sérð þetta bréf, þá skrifaðu til Vikunnar, merkt „Maja“, og skrifaðu fljótt. Maja. —-------Ég veit eiginlega ekki, kæra Maja, hvers vegna í ósköp- unum þú skrifaSir okkur í þessu tilfelli. Ekki vorum við staddir í sjoppu á Eskifirði þann 8. sept- ember og þaðan af síður þekkj- um við nokkurn sjómann, sem heitir Gunnar, sem er hár og með hrokkið hár. Einfaldlega hefði verið betra að snúa sér til út- gerðarinnar, ef þú vissir nafnið á bátnum, — annars væri reyn- andi að fletta upp í íbúaskrám Reykjavíkur og tína til alla þá Gunnara, er væru sjómenn, hringja síðan til þeirra og spyrja hvort þeir hafi verið staddir í sjoppu á Eskifirði áðurnefnt kvöld. LJÓSMYNDATÆKNl Sæll Póstur góður! Ég á sæmilega góða mynda- vél með ljósmæli, en þar krepp- ir skórinn að, ég kann nefnilega mjög lítið með vélina að fara. Getur þú sagt mér hvaða bæk- ur hafa komið út á íslenzku um Ijósmyndatækni? Hafið þið nú ekki pínulítið pláss þarna í Vik- unni fyrir smápistil um ljós- myndun og getið þið ekki fengið einhvern sérfróðan mann til að skrifa einn slíkan þátt í hvert blað í vetur. Ég veit að það eru margir fleiri en ég sem fá mislukkaðar myndir vegna vankunnáttu, en hafa ekki aðstöðu til að sækja námskeið áhugaljósmyndara, eða eru ekki haldin einhver slík í Reykjavík? Að lokum vil ég þakka ykkur fyrir alla þá skemmtun sem ég hefi af því að lesa Vikuna. Sér- staklega vil ég þakka góða af- greiðslu á blaðinu. Ég á heima í sveit norður í landi og það kemur varla fyrir að Vikan komi ekki á fimmtudegi, geri önnur dag- eða vikublöð betur. Þökk fyrir, Áskrifandi Vikunnar. ---------Þú ert alls ekki einn um það, kunningi, að vera með góða myndavél í höndunum en kunna ekki með hana að fara nema að takmörkuðu leyti. VIK- AN var með ljósmyndaþátt fyrir nokrum árum síðan, en það er ^ — VIKAN 46. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.