Vikan


Vikan - 12.11.1964, Síða 6

Vikan - 12.11.1964, Síða 6
Framhaldssagan 22. hluti eftir Serge og Anne Golon Myndin verður sýnd í Austurbæjarbíói — Ég er Rodogone egypzki. Ég ræð yfir fjögur þúsund mönnum í París. Allar sjálfsölukonurnar gjalda mér skatt, og sömuleiðis sigaunakonurnar, sem lesa framtíðina úr höndum fólks. Yiltu verða ein af konunum mínum? 5. hluti HIRÐ KRAFTAVERKANNA 51. KAFLI Angelique horfði á andlit munksins Bécher gegnum gluggann. Þótt bráðnandi snjórinn félli í dropatali af þaki hússins niður á axlir hennar, stóð hún kyrr í myrkrinu, utan við krána „Græna girðingin". Munkurinn sat yfir ölkollu og augnaráð hans var starandi. Angelique sá hann mjög vel, þrátt fyrir þykkar gluggarúðurnar. Það var ekki mjög mikill reykur i kránni. Munkarnir og skrifstofumennirnir, sem tíðast komu í „Grænu girðinguna", voru ekki miklir reykingamenn. Þeir komu þangað til að drekka, og þó öllu fremur til að stunda fjárhættu- spil. — Halló frænka, þú ættir ekki að vera úti á svona nóttu. Geturðu ekki tekið þátt i gamninu? Angelique sneri sér við til að sjá, hver ávarpaði hana á þennan hátt, en sá engan. Allt i einu kom tunglið fram milli tveggja skýja, og í skímu þess sá hún við fætur sér gildvaxinn dverg. Hann lyfti tveim fingrum og krosslagði þá á sérstakan hátt. Hún minntist þess, hvernig Kouassi- Ba hafði einu sinni krosslagt fingur fyrir hana og sagt, að þegar hann gerði þetta, tækju vinir hans hann í sinn hóp. Ósjálfrátt gerði hún eins. Breitt bros færðist um andlit dvergsins. — Þú ert úr hópnum, þetta hélt ég. En ég get ekki komið þér fyrir mig. Ert þú úr hópi Rodogone egypzka, Tannlausa Jean, Blájakkans eða Hrafnsins? Án þess að svara honum, sneri hún sér aftur við og tók á ný að stara á Bécher gegnum gluggann. 1 einu stökki hoppaði dvergurinn upp á gluggasylluna. Ljósið fyrir innan lýsti upp andlit hans, og hún sá að hann var með óhreinan filthatt. Stórar, þykkvaxnar hendur, en fætur hans í strigaskónum voru of smáir. — Hver er náunginn, sem þú getur ekki haft augun af? — Það er þessi, sem situr þarna í horninu. — Heldurðu, að þessi rangeyga beinasleggja geti borgað þér mikið fyrir ómakið? Angelique dró djúpt andann. Allt í einu fann hún lífið ólga á ný i æðum sínum. Að lokum vissi hún, hvað hún varð að gera. — Þetta er maðurinn, sem ég verð að drepa, sagði hún. Með snöggri hreyfingu strauk dvergurinn lipurri hendi um mitti hennar. — Þú ert ekki einu sinni með hníf. Hvernig ætlarðu að gera það? 1 fyrsta skipti horfði Angelique með athygli á litlu vansköpuðu ver- una, sem hafði skotizt upp úr gangstéttinni eins og rotta; ein af þess- um viðbjóðslegu verum, sem lögðu París undir sig um leið og það fór að skyggja. Klukkustundum saman hafði hún ráfað án markmiðs um borgina. Hvaða hatursinnsæi, hvaða sjötta skilningarvit, hafði leitt hana að „Grænu girðingunni", þar sem hún sá munkinn Bécher? — Komdu með mér, Marquise, sagði dvergurinn allt í einu, um leið og hann stökk niður á götuna. -—• Við skulum fara til Saints-Innocents. Þú getur samið við félagana þar, hvernig bezt verður að drepa fórnar- lambið. Án þess að hika, fylgdi hún honum eftir. Dvergurinn gekk á undan henni með vaggandi göngulagi. — Ég heiti Barcarole, sagði hann eftir stundarkorn. — Finnst þér það ekki fallegt nafn og hæfa mér vel? Hú! Hú! Hann stökk glaðlega upp í loftið, fór heljarstökk og hnoðaði síðan saman snjó og aur i kúlu og kastaði henni í nærliggjandi glugga. — Komdu væna, hélt hann áfram og tók til fótanna. -— Annars drífa þeir sig fram úr, þessir góðu borgarar sem við vorum að trufla, og tæma næturgögn sín yfir höfuð okkar. Hann hafði varla sleppt orðinu, þegar glugganum var svift upp og Angelique varð að stökkva til hliðar til þess að forðast steypibaðið, sem hann hafði spáð. Dvergurinn hafði horfið. Angelique gekk áfram. Það var Þungt að ganga í aurnum. Föt hennar voru rök, en hún fann ekki kuldann. Lágt blístur dró athygli hennar að göturæsi. Ot úr því kom dvergurinn, Bar- carole. — Fyrirgefðu að ég skyldi stinga þig af, Marquise, en ég fór til að ná í vin minn, Janir Trjábotn. Fyrir aftan hann kom önnur vera fram úr sorpræsinu. Þetta var ekki dvergur, heldur fótalaus aumingi, líkami manns, sem sat í stórri tré- skál. 1 höndunum hafði hann tvær eins konar árar, sem hann ýtti sér áfram með. Þessi nýja ófreskja grandskoðaði Angelique. Hann hafði dýrslegt andlit, útatað i bólum og kýlum, en gisið hárið var vandlega greitt yfir gljáandi skallann. Hann var aðeins í einni flik, blárri skikkju með gull- brydduðum hnappagötum og borðum. Þessi flík leit út fyrir að hafa átt betri daga. Upp úr skyrtunni stóð hár flibbi með hörðum hornum. Hann starði lengi á ungu konuna. Ræskti sig svo og spýtti ögrandi á hana. Hún starði á hann í undrun og skelfingu. Tók síðan handfylli sína af snjó og þurrkaði af sér. •—■ Allt í lagi, sagði krypplingurinn ánægður. — Hún kann að sýna virðingu. Hún skilur við hvern hún er að tala. — Tala! Hm! Það er kannske hægt að segja henni Það þannig, hróp- aði Barcarole. Svo rak hann upp sinn dillandi hlátur. Hú! Hú! Er ég ekki sniðugur? — Réttu mér hattinn minn, sagði Trjábotn. Hann setti á sig hattinn, filthatt með fallegri fjöður. Svo greip hann um tréárarnar sínar og lagði af stað. — Hvað vill hún? spurði hann eftir andartak. — Einhvern, sem getur drepið fyrir hana óvin. — Það er hægt að koma því í kring. 1 hvaða hópi er hún? — Ég gat ekki komizt að því.... Smám saman, meðan þau gengu eftir götunum, slógust fleiri verur í hópinn. Fyrst heyrði hún blístur úr dimmum skotum, neðan frá ár- bökkunum eða innan úr görðunum. Svo komu betlararnir í Ijós. Síð- skeggjaðir í víðum rifnum fötum, gamlar nornir, íklæddar rifnum lörfum, sem þær bundu á sig með snærum og stórum talnaböndum. Blindir menn og fatlaðir. Og hinir síðastnefndu héldu á hækjum sínum um öxl, til að komast hraðar yfir. Krypplingar, sem ekki höfðu haft tíma til að taka af sér kryppuna. Ósviknir ræflar og aumingjar blönduðust svo í þenn- an hóp falsara. Angelique átti erfitt með að skilja þjófahjal þeirra, sem byggðist upp á ákveðnum orðatiltækjum. Við gatnamót ein kom hópur af vopnuðum mönnum á móti þeim. Fyrst hélt hún að þetta væru hermenn, eða jafn- vel löggæzlumenn, en sá fljótt að þetta voru aðeins dulbúnir glæpamenn. Angelique sá, að hinir nýkomnu litu hana girndarauga, og leit um öxl til að vita hverjir voru í kringum hana. Hún var umkringd af þessum lýð. — Hrædd falleg mín? spurði einn glæpamannanna og tók utan um hana. Hún ýtti honum frá sér og sagði nei. Þegar hann lét sér ekki segjast, sló hún hann í andlitið. Það varð nokkurt uppþot út af þessu, og Ange- lique velti því fyrir sér, hvað gæti komið fyrir hana. En hún var ekki hrædd. Hatrið, óbeitin og uppreisnarlöngunin, hafði svo lengi altekið huga hennar, að það eina sem hana langaði til var að bíta, slá og klóra. Henni fannst hún vera í fullkomnu samræmi við villidýrin, sem um- kringdu hana. Það var hinn furðulegi Trjábotn, sem loks kom á reglu á nýjan leik, með sínum hræðilegu öskrum. Þessi afskræmdi maður hafði háa, hola og ójarðneska rödd, og ósjálfrátt fór hrollur um þá, sem á hlýddu. Ofsafengin orð hans eyddu deilunni. Angelique leit á glæpamanninn, sem hafði orsakað hana og sá, að niður andlit hans runnu smáir blóð- lækir. Hann hélt fyrir annað augað. Hinir hlógu. — Ho, ho! Helvítis merin hefur látið þig hafa það óþvegið. Angelique heyrði sjálfa sig hlæja líka, framandi og reiðilegum hlátri. \_________________ g — VIKAN 46. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.