Vikan


Vikan - 12.11.1964, Side 10

Vikan - 12.11.1964, Side 10
 HEIMSÆKIR UUFARl ÞORÐARSON AUGNLÆKNI Það er ótrúlegt hvað tíminn getur verið drjúgur þeim mönnum, sem hafa áhuga á að nota hann vel. Fæstir munu halda að starfandi læknir í Reykjavík geti sinnt öðrum verkefnum að ráði, en þegar ofan á 12 stunda vinnudag bætist framkvæmdastjórn í íþróttafélagi, störf í borgarstjórn, rannsókn á fuglalífi sundiðkanir, badminton, starf í Flugbjörgunarsveitinni, sífellt nám, og skyldur heimilisföður, þá fer maður sjálfur að hugsa: Skyldi ég ekki geta notað timann betur en ég geri... ? Sú saga er sögð — auðvitað í einskæru gríni — að þekktur knatt- spyrnukappi hafi einu sinni komið til augnlæknis hér í bænum, því hann var farinn að sjá eitthvað illa og hitti boltann ekki nema stöku sinnum. Augnlæknirinn sá strax hvað að var, fór í verkfæraskápinn sinn og náði í stóra og ógnvekjandi sprautu með hvössum oddi og mundaði hana í árásarstöðu beint fyrir fram- an augun á skjálfandi kappanum. „Jæja, kunningi, í hvaða knatt- spyrnufélagi ertu, segirðu?" „Eg er í KR," svaraði maðurinn skjálfraddaður. „Og ertu að hugsa um að vera þar áfram?" „Já . . ." „Haaa?" spurði læknirinn aftur og hreyfði sprautuna dálítið nær. 1 n — VIKAN 46. tbl. „Ja . . . ég hef nú verið að hugsa um að ganga í Val, undanfarið — en ekkert orðið úr því ennþá." „Þú ættir að láta verða af því, held ég. Sem allra fyrst. Ekki satt. . . ?" „J . . . j . . . jú. Eg geri það strax á eftir." „Gott, vinur. Þá er þetta búið. Þú mátt fara." „En ætlarðu ekki að sprauta?" „Ég er búinn. Þú tókst bara ekk- ert eftir því, af því þú varst að hugsa um allt annað." Auðvitað er sagan tilbúningur einn, eins og tekið var fram í upp- hafi, en allir þeir sem eitthvað þekkja til knattspyrnumála í Reykjavík væru ekki í neinum vafa um hver augnlæknirinn væri. Áhugi Úlfars Þórðarsonar, lækn- is, á knattspyrnumálum — sérstak- lega knattspyrnumálum Vals — er löngu orðinn kunnur, enda bera hann margir saman við Erlend sál- uga Pétursson, nema hvað Erlendur var forfallinn K.R.-ingur. „Þetta er eitthvað óeðlilegt með hann Ulfar," sagði Erlendur einu sinni í kaffisamsæti knattspyrnu- manna. „Valsmaður úr Vesturbæn- um . . . . I" „Þú veizt að ég er ekki innfædd- ur Vesturbæingur," svaraði Úlfar, „en kom hingað líkt og trúboði til villutrúarmanna." „Ertu alveg hættur að sparka, Úlfar?" spurði ég þar sem við sát- um yfir tertukaffi heima hjá honum fyrir skemmstu. „Sparka? Ég hef aldrei verið neitt f knattspyrnu," svaraði Úlfar og brosti út undir eyru. „Hvað ertu að segja . . . ? Varstu ekki í fótbolta þegar þú varst ung- ur?" „Nei, ég hef aldrei verið í því sjálfur — ekki fótþolta." „Nú, en hvað . . . Þú varst for- maður Vals og nú í framkvæmda- nefnd, er það ekki?" „Jú, en það er ekki vegna þess hve góður ég hafi verið í knatt- spyrnu, og þess vegna hef ég í rauninni sjaldan orðið eins hissa eins og þegar strákarnir komu til mín og spurðu hvort ég vildi taka að mér formannsstarfið. Það kom algjörlega flatt upp á mig, enda var ég hreint ekkert „inni í" fót- bolta. Var að vísu í félaginu — hafði keppt þar í drengjahlaupi — en hqfði aldrei dottið í hug for-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.