Vikan


Vikan - 12.11.1964, Síða 11

Vikan - 12.11.1964, Síða 11
 \ ■lliH ' ' ,'i;i>:;>:::iS;;||f|'i ;:;::;:,V O Börn Þórðar Úlfarssonar í heimsókn hjá afa og ömmu. Stúlkan heitir Helga Elisabet, en bræðurnir Úlfar Ingi, Einar Sveinn og Þórður Jón, (hann er ekki með á myndinni). Q Það fer mikill tími í að fylgjast með nýjungum og framför- um á sviði læknavísindanna, eins og raunar hjá öllum læknum. :;:;Í :•* Í,'VÍ-'-iÍiii-* * ' Vv ' v' >■>. : * —» Heimilisbítillinn, Sveinn Egill, slær á rafmagnsstrengina, og foreldrarnir hlusta á .. .. O fíiíSa-iW -O Ulfar hefur flókin tæki til i.ugnrannsókna á lækningastofu sinni, en framfarir á þessu sviði hafa orðið miklar á undanförnum árum, og nú eru ennþá fullkomnari tæki til — en þau eru dýr og varla á eins manns færi að kaupa þau. Þess vegna þarf að koma % . upp augnlækningadeild vegum Háskólans, segir hann. Badminton — og raunar allar líkams- æfingar — er nauösynlegt til að við- halda heilsunni og líkamsþrótti. Ljós- tnyndarinn brá sér inn í íþróttahús Vals og smellti af þcssari mynd ... i) mannsstaða. Ég varð því að fá vikufrest til að ákveða mig hvort ég vildi taka að mér embættið, og síðan tók það mig ein tvö ár að komast almennilega inn í knatt- spyrnumálin." „Varstu lengi formaður?" „I f|ögur ár. Það var oft mikill kraftur í þeim málum þá. Menn höfðu meiri frítíma, atvinna ekki eins mikil og nú og auðveldara að fá siálfboðaliða og áhugamenn til að hjálpa sér. Viljinn til starfa er auðvitað ekkert minni nú, en tíma- skortur hjá flestum. Við urðum einna fyrstir til að koma upp grasvelli, og eigum nú þrjá slíka. Við.höfum líka komið upp íþróttahúsi og félagsheimili síðan." ,,Þú varst líka mikið í sundi, var það ekki, Úlfar?" „Jú, satt er það. Ég var einn af stofnendum Ægis, og keppti í sundknattleikleiksflokknum á Olympíuleikiunum ( Berlín 1936." „Hvernig fór það?" „O — svona og svona. Við stóð- um okkur sæmilega, held ég, þótt við kæmumst ekki í úrslit. En það var eftirminnilegt við leikana fyr- ir mig, að ég var rekinn úr leik þegar við vorum að keppa við Sviss. Eini (slendingurinn, sem hefur hlotið þann vafasama heið- ur." „Hvernig í ósköpunum stóð á því, Úlfar?" „Ég man það nú ekki vel ( smá- atriðum. En við áttum í erjum, miðframvörður Sviss og ég, en hann var gríðarstór og loðinn, og lá svo nærri mér að líkast var að ég væri í pels ofan í vatninu. Samt var ég búinn að losa mig við hann, þegar mér fannst hann brjóta gróflega á mér, og hefi siálfsagt tekið um of á móti. En eftir að við vorum skildir, var mér vísað frá leik en honum ekki, og þótti mér það slæmt réttlæti þá. Nú hefur tímans tönn lagað þá augnabliks beiskju, og minningarn- ar um leikina í Berlín eru með því bezta, sem hugurinn geymir, og þakklæti mitt til þeirra sem sendu okkur er rfkt og sterkt, og allir höfum við haldið vinfengi okkar og sumir þessara félaga minna eru enn í dag mínir nán- ustu vinir og trúnaðarmenn og vitja mín flestir þegar þess þarf. Það er gott fyrir ungan mann að reyna þol sitt og getu, en einna mest um vert að efla keppnisþrótt- inn, félagsandann og vináttuna, sem myndast f keppni, iafnt milli samherja sem andstæðinga." „Og ertu iafn áhugasamur í sundinu ennþá?" „Ég er oft í þessu — svona að gamni mínu — annað slagið." „Ekkert keppt síðan?" „Ekki f neinum stórleikium . . ." Frú Unnur hafði verið upptekin við að bera fyrir okkur kaffi og kræsingar, en settist nú hjá okkur við borðið með bandhnykil og heklunálar. „Hvernig er það annars, að vera læknisfrú? Er það ekki dálftið erfitt stundum, þegar enginn friður fæst vegna símahringinga eða anna eiginmannsins?" „Ja — nú er víst bezt að passa sig að segja ekki of mikið. Nei, í alvöru talað, þá er þetta Framhald á bls. 30. VIKAN 46. tbl. 11

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.