Vikan


Vikan - 12.11.1964, Blaðsíða 45

Vikan - 12.11.1964, Blaðsíða 45
Varalitir — Naglalökk — Make-up Avon Einkaumboð: J. P. Guðjónsson h.f. Skúlagötu 26 - Box 1189 - Sími 11740 Já? Nei? Þúsundir kvenna um heim allan nota nú C. D. INDICATOR, svissneskt reikn- ingstæki, sem reiknar nákvæmlega út þá fáu daga í hverjum mánuði, sem frjóvgun getur átt sér stað. Lækna- visindi 56 landa ráðleggja C. D. IND- ICATOR fyrir heilbrigt og farsælt hjónaband, jafnt ef barneigna er ósk- að sem við takmarkanir þeirra. C. D. INDICATOR Pósthólf 1238 — Reykjavík. Sendið eftirfarandi afklippu ásamt svarfrímerki til C. D. INDICATOR, Þósthólf 1238, Rvík, og vér sendum yður allar upplýsingar. Nafn .................................. Heimili Kerim hristi höfuðið. — Þetta rugl- ar mann í ríminu. Ég vona að það eigi ekkert skylt við okkar mál. — En var það nauðsynlegt, að gera heimsókn mína svona opin- bera? spurði Bond rólega. Ég er síður en svo þess fýsandi, að koma þér í nein vandræði. Hvers vegna sendirðu Rollsinn á flugvöllinn? Þá vita þeir að við stöndum saman. Það var umburðarlyndi í hlátri Kerims. — Vinur minn, ég verð að skýra svolítið sem er bezt fyrir þig að vita. Við, Rússarnir og Amerík- anarnir eigum allir launaða menn á hótelunum. Og við höfum allir mútað einhverjum hjá leyniþjón- ustunni í aðalstöðvunum, þannig að við fáum afrit af listanum yfir alla útlendinga, sem koma til Tyrk- lands á hverjum degi, með flug- vélum, skipum eða lestum. Hefði ég fengið nokkra daga í viðbót, hefði ég getað smyg'að þér inn yfir grísku landamærin. En til hvers? Vitneskjan um dvöl þína hér er nauðsynleg, svo vinir okkar geti haft samband við þig. Sam- kvæmt skilyrðunum, sem hún setti, ætlaði hún sjálf að sjá um fund ykkar. Ef til vill treystir hún ekki öryggi okkar. Hver veit? En hún var alveg hörð á þessu og sagði, eins og ég vissi það ekki, að henn- ar menn myndu undir eins fá vitn- eskju um komu þína. Kerim yppti þreknum öxlum sínum. — Svo hvers vegna að gera henni erfið- ara fyrir? Eg hef aðeins áhuga á því að gera hlutina sem allra auð- veldasta og þægilegasta fyrir þig, svo þú hafir að minnsta kosti gam- an af dvölinni hér, jafnvel þótt hún verði árangurslaus. Bond hló. — Ég tek þetta allt aftur, sem ég sagði. Ég gleymdi því að við erum hér á Balkan- skaga, og ég er undir þinni stjórn. Þú segir mér hvað ég á að gera, og ég gegni. Kerim bandaði óþolinmóður frá sér hendinni. — Og nú, úr því að við erum að tala um þægindi. Hvernig er hótelið? Ég er undrandi yfir því að þú skyldir velja Palas. Það er varla skárra en þessi ósið- sömu hús sem — sem á frönsku eru kölluð baisodrome og Rússarn- ir eiga þar greiðan aðgang. En það skiptir svo sem ekki miklu máli. — Það er alls ekki slæmt, og mig langar alls ekki til að vera á Hilton hóteli eða öðrum álíka fín- um stað. Framhald í næsta blaði. Svo kinkaði hann kolli og hélt ákafur áfram: — Þannig eru lög náttúrunnar. Það þarf heila til að ráða yfir þessum hóp. Og heiiinn er það sem vantar, þegar maður hefur of mikið af fót- um. Eða hvað heldur þú, Léttfótur? Maðurinn, sem hann kallaði Léttfót, brosti. Hann sat á grafarbarmi og hélt um brjóstið eins og hann fyndi til. Þetta var kornungur maður, blíðlegur og heiðarlegur á svipinn. Hann sagði andstuttur: — Það er rétt hjá þér, Barcarole. Það er betra að hafa gott höfuð heldur en fætur. Því þegar fæturnir eru búnir að vera, er ekkert eftir. Angelique horfði með undrun á fætur unga mannsins. Þeir voru lang- ir og sinaberir. Hann brosti dapurlega: — Jú þeir eru á mér ennþá, en ég get varla hreyft þá. Ég var hlaup- ari fyrir Monsieur de la Sabliére. Og svo einu sinni, þegar ég hafði hlaupið næstum tuttugu mílur, lét hjartað undan og síðan get ég ekki lengur gengið. — Þú getur ekki lengur gengið, af þvi að þú hefur hlaupið of mikið, hrópaði dvergurinn og fór heljarstökk. Ho, ho, ho! —■ Haltu kjafti Barco, sagði urrandi rödd. — Þú ert leiðinlegur. Sterkur hnefi greip i hálsmál dvergsins og sendi hann fljúgandi inn í eina beinahrúguna. —• Þessi vanskapaði kettlingur er skelfing leiðinlegur, finnst þér það ekki, falleg mín? Nýkomni maðurinn hallaði sér yfir Angelique. Umkringd svona mik- illi vansköpun og skelfingu fann hún einkennilegan létti í hraustlegu út- liti þess nýkomna. Hún sá andlit hans ekki mjög vel, því það var í skugg- anum af barðastórum hatti hans. Hún gat sér þess hinsvegar til, að hann hefði fallega andlitsdrætti, stór augu og vel gerðan munn. Hann var í fullum æskublóma. Brún hönd hans hvildi á meðalkafla stutts sverðs, sem hann bar við belti sér. — Hverjum tilheyrir þú, glókolla? spurði hann mjúkmáll og fram- burður hans bar daufan, erlendan hreim. Hún svaraði ekki, og leit fyrirlitlega i aðra átt. Á þrepi ræðustólsins fyrir framan Stóra Coesre og fiflið hafði ein- hver sett koparkrúsina, sem barnið hafði áður notað fyrir trommu, og meðlimir genserie gengu fram, einn eftir annan og köstuðu í krúsina þeim skatti, sem prins þeirra ákvað. Hver og einn var skattlagður eftir sínu sérfagi. Dvergurinn, sem aftur var kominn til Angelique, sagði henni í lágum hljóðum stéttar- skipun allra þessara betlara. Hann benti henni á riodés, sem voru sóma- samlega klæddir og skömmustulegir á svipinn, þegar þeir réttu fram Pils, ensk og íslenzk — Fjöl- breytt snið og efni. — Peysui og peysujakkar. Jersey peysur og skozk peysusett. Póstsendum. þingholtsstræti 3 simi 11987 VIKAN 46. tbl. —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.