Vikan

Útgáva

Vikan - 25.02.1965, Síða 6

Vikan - 25.02.1965, Síða 6
á M.MJJUfc Mayfag Innbyggður bakarofn með timarofa, grilli, Ijósi og gleri í hurð. HOIV1JMSJ isl Mayfag Eldhúsvifta með viðarkola- síu með Ijósi og tveim hraðastillingum. H O fvl AIN f-j Maylag 2 venjulegar og 2 sjólfvirkar plötur með 12 hitastillingum og timarofa á einni plötu upp í 10 klst. Mjög góðir greiðsluskilmálar VANTAR SMÁVEGIS AÐSTOÐ. Kæri Póstur! Þetta kemur kannske af seint út, en ég held, að það sé alltaf tímabært að ræða um þessa hluti. Ég á við skattskýrsluna. Ég hef nú gert mitt bezta til fylla hana út, og ég hef ekki svikið undan nema svona smávegis, sem mér finnst ekki þurfa að koma fram. Ég fæ víst nóg samt. En samt sem áður er ég í bannsettum vandræðum. Þetta er svo mikið reikningsdæmi og verður allt að passa svo vel saman, að maður veit aldrei hvar maður stendur. Ég vil helzt gera þetta vel og vandlega, og ekkert múður og mas, en það er bara hægara sagt en gert. Segðu mér: Er hvergi hægt að fá lipra aðstoð við svona útfyllingar? Ég veit að hægt er að snúa sér til skattstofunnar, en það dugar ekki ef maður ætlar að svíkja undan 10—20 þúsund. Hvernig á ég að haga mér í málinu? Drómi. --------Nú er ég hræddur um að þú verðir að hafa þinn liöf- uðverk sjálfur, Drómi minn. Mér er ekki leyfilegt að ráðleggja þér neitt, sem ekki þolir opinbera gagnrýni. Sjálfur er ég ekki í neinum vandræðum, því ég hef ekkert til að fela — því miður. En ertu ekki orðinn alltof seinn að skila skýrslunni? HELDUR í STÆRRA LAGI. Kæri Póstur! Ég er 14 ára og er 112 kg og 178 cm á hæð. Ég þjáist mjög út af þessu. Heldurðu að ég stækki meir? Viltu gefa mér ráð við þessu. Og engan skæting. Ein örvæntingarfull. --------Jú, vissulega. Þú gætir stækkað svo sem í tvö ár enn og ekkert er því til fyrirstöðu, að þú verðir um 300 kg og 225 cm á hæð. Nei, það vill nú svo til, að við kunnum ekki ráð við þessu. Leitaðu læknis strax. LANGT BRÉF - OG EKKERT SVAR. Kæra Vika! Ég sé að þú gerir svo margt fyrir lesendur þína. Kannske nærð þú til hans, sem ég kvaddi í „m.s. Esju“ og sé enn íyrir mér með tár í augum og sorg- mæddan. Þann, sem gaf konunni sinni tannaför sín mótuð í Htið bleikt sápustykki á Hótel Skjald- breið. Þann sem skrifaði langa bréfið í haust en fékk ekki svar. Kærkomnar væru nokkrar línur frá honum. Þökk fyrir birtinguna. Þ.S. — — — Vonandi sendir hann nokkrar línur — og eitt fallega bitið sápustykki. HAFA SKAL ÞAÐ SEM SANNARA REYNIST. Þegar ég var að lesa Vikuna, 53. tbl. 1964, og kom að þættin- um „Gamlar myndir“ datt mér í hug, að ekki væri úr vegi að senda ykkur mynd, er ég sá fyr- ir nokkrum árum á heimili for- eldra minna. Myndin er af nið- urjöfnunarnefnd Reykjavíkur um 1920. Ég hafði varla sleppt þess- ari hugsun, er ég sá þessa mynd á bls. 31, en þar er hún sögð vera af gömlum skólabræðrum. Þessir menn eru sko ekki að rif ja upp gamlar endurminningar, heldur eru þeir saman komnir til að ákveða útsvör íbúa höfuð- borgarinnar, og held ég, að þá hafi skattaframtöl ekki þekkzt, heldur hafi verið lagt á „eftir efnum og ástæðum" eingöngu. Því var nefndin svona fjölmenn. Að lokum: Maðurinn lengst til hægri í aftari röð er Hannes Ólafsson, kaupmaður. Virðingarfyllst, Ólafur í. Hannesson. — -----Þökk fyrir leiðrétting- una, Ólafur. Sendandi myndar- inn hefur haft rangt fyrir sér og við vissum ekki hót, til hvers þessir menn voru saman komnir. Og meðal annarra orða: Vikan vill gjarna fá gamlar myndir til birtingar og greiðir 150 krónur fyrir stykkið, séu þær nothæfar. En fyrir alla lifandi muni: Ekki meira af Teofani-myndum. HVERSU ÉG LAS. Kæri Póstur! Hversu ég las frá einum skrif- andi yðar kvartaði hann, að það væri ekki hægt að fá upplýsing- ar um Barracuda tégund frá Chrysler. Kannski get ég hjálpað yður með meðfylgjandi blaðaúr- klippingu. Einnig vantar mér að

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.